Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 22
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
SAKAMÁL
Þ ann 22. október 2007, eftir aðeins fimm klukkustunda íhugun,
lýsti kviðdómur í Bandaríkj-
unum Lisu Montgomery seka
um morð. Jafnframt mælti
hann með dauðarefsingunni.
Lisa var tekin af lífi þann 13.
janúar, þrátt fyrir að teymi
lögmanna sem og systir
hennar hefðu barist ötul-
lega fyrir því að mál hennar
yrði tekið til endurskoðunar.
Lisa ætti ekki skilið að deyja.
Lisa hefði verið viti sínu fjær
eftir hrollvekjandi ævi, sem
enginn kæmist óskaddaður
í gegnum. Hún var fyrsta
konan í tæp 70 ár sem tekin
var af lífi af alríkisstjórninni
í Bandaríkjunum.
Óléttur dýravinur
Bobbie Jo Stinnett var ham-
ingjusöm 23 ára kona, ný-
gift og átti von á sínu fyrsta
barni. Árið var 2004. Bobbie
var mikill dýravinur og
ræktaði hunda. Vegna þessa
var hún virk á spjallborði
á netinu um áhugamál. Þar
kynntist hún konu að nafni
Lisa Montgomery. Þær skrif-
uðust mikið á, enda elskuðu
þær báðar hunda og áttu þar
að auki báðar von á barni.
Ekkert virtist athugavert við
samskiptin.
Bobbie var með hvolpa sem
þurftu að komast á nýtt heim-
ili. Við hana hafði samband
Darlene nokkur Fischer, sem
hafði áhuga á að fá hjá henni
hvolp. Þær mæltu sér því mót
svo Darlene gæti hitt hvolp-
ana og beinast lá við að hitt-
ast á heimili Bobbie Jo. Þetta
varð seinasta heimsóknin sem
Bobbie fékk í lífinu.
Skömmu síðar kom móðir
hennar að heimili hennar til
kanna stöðuna á dóttur sinni,
enda sú síðarnefnda komin
átta mánuði á leið og spennan
mikil. Við henni tók þó ekki
blómleg dóttir með framtíð-
ina fyrir sér, heldur blóðugur
vettvangur skelfilegs glæps.
HROLLVEKJANDI LÍF
LISU MONTGOMERY
Lisa Montgomery var tekin af lífi þann 13. janúar
fyrir hrottalegt morð. En var Lisa í ástandi til að
skilja alvarleika brots síns, eða hafði áratuga mis-
notkun, ofbeldi og pyntingar gert hana ósakhæfa?
Húsið þar sem Bobby Jo var myrt. MYND/GETTY
Mótmæli vegna aftökunnar. MYND/GETTY
Lisa eyddi
rúmum áratug
á dauðadeild.
MYND/LÖGMENN FYRIR LISU MONTGOMERY
22 FÓKUS 22. JANÚAR 2021 DV