Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 38
38 SPORT 433 22. JANÚAR 2021 DV
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
ÆVINTÝRAMAÐUR Á
LEIÐ TIL RÚSSLANDS
Sara Björk Gunnarsdóttir, besti íþróttamaður Ís-
lands árið 2020, hefur séð til þess að Árni Vil-
hjálmsson, atvinnumaður í knattspyrnu, hefur
haldið sér í sínu besta formi í atvinnuleysi. Árni er
ævintýramaður, sem hefur meðal annars leikið í
Póllandi, Úkraínu og er nú á leið til Rússlands.
Árni sem er 26 ára hefur á stuttum tíma flakkað víða um Evrópu og heldur nú til Rússlands. MYND/GETTY
Ævintýramaðurinn, Árni Vilhjálmsson hefur undanfarið
hálft ár verið án atvinnu.
Eftir vel heppnaða dvöl í
Úkraínu ákvað hann að róa á
önnur mið, en ekkert beit á til
að byrja með. Árni hefur síð
asta hálfa árið búið í Frakk
landi þar sem unnusta hans,
Sara Björk Gunnarsdóttir,
leikur með Lyon. Þessi besti
íþróttamaður Íslands hefur
haldið Árna við efnið og nú
stefnir allt í að hann haldi til
Rússlands.
Ekki til í að fara
hvert sem er
Árni hefur verið atvinnu
maður í knattspyrnu frá
árinu 2015, fyrst í Noregi og
Svíþjóð en síðan í Póllandi
og Úkraínu. Hann gerði vel í
Úkraínu og nú síðast með Kol
os Kovalivka, félagi sem er
staðsett rétt utan við Kænu
garð.
„Ég var ekki tilbúinn að
fara bara hvert sem er og
þess vegna hef ég verið í
þeirri stöðu að vera án fé
lags, ég var búinn að byggja
upp góða hluti í Úkraínu og
var ekki tilbúinn að fórna
þeirri vinnu með því að fara
í slakari deild eða eitthvað
sem var miklu verra fyrir
mig fjárhagslega. Ég endaði
á því að sitja og bíða í hálft
tímabil,“ sagði Árni, sem mun
að öllum líkindum semja við
Krylia Sovetov Samara sem
leikur í næstefstu deild Rúss
lands, lið í úrvalsdeild þar í
landi hafa þó áhuga.
„Þetta kom upp núna í Rúss
landi. Ég hafði verið í sam
bandi við þá í fjóra mánuði.
Það er nánast allt klárt en
á sama tíma er ég með aðra
kosti á borðinu sem gætu
verið áhugaverðir, það kom
allt í einu upp á borð mitt
eftir að ég mætti á æfingar
hjá Krylia.“
Ekki í boði að sitja
heima og grenja
Atvinnuleysið fór ekki illa í
Árna sem lagði hart að sér
í Frakklandi til að halda sér
í formi. „Ég held að maður
sé ekki alveg eðlilegur í
hausnum, maður er með eitt
hvert markmið. Þegar þú
tekur sjálfur ákvörðun um að
hafna liðum og bíða aðeins, þá
getur þú ekkert setið heima
hjá þér og grenjað. Ég hef
verið í Frakklandi hjá Söru í
sex mánuði og það hafa bara
verið æfingabúðir, þú ert
með markmið í hausnum um
að fara eitthvað og ert bara
að vinna í því. Á einhverjum
tímapunkti var þetta smá erf
itt, maður býr í óvissu. Innra
með mér þá vissi ég að þetta
myndi nú reddast,“ segir Árni
um síðustu mánuði.
COVID19 faraldurinn
hefur haft veruleg áhrif á
fjárhag flestra íþróttafélaga,
áhorfendabann og aðrir hlutir
hafa verið þeim dýrkeyptir.
„Ég vissi það í raun ekki
hversu slæmt fjárhagslegt
ástand er hjá flestum félögum
vegna veirunnar, lið sem eru
ekki í Meistaradeild eða Evr
ópudeild eru flest í vondum
málum. Ég hef náð að halda
einbeitingu og æfa vel, en
maður var orðinn þreyttur á
því að vera einn að stilla upp
æfingum í tvo tíma á dag.“
Fann sig ekki í Svíþjóð
Segja má að dvöl Árna á
Norðurlöndunum hafi verið
misheppnuð, frá 2015 til 2016
gekk lítið upp hjá Lilleström
í Noregi og sömu sögu var að
segja ári síðar hjá Jönköp
ing Södra í Svíþjóð. „Ég fer
til Póllands frá Svíþjóð, þá
þurfti ég bara eitthvað nýtt.
Ég fílaði lífið í Svíþjóð en
fékk ekki ánægjuna frá fót
boltanum þar, ég sem karakt
er fann mig ekki þar. Ég vildi
taka skref þar sem ég þyrfti
að berjast fyrir hlutunum,
það leit allt vel út á blaði í
Póllandi, en síðan var algjört
rugl sem kom þar upp sem ég
má því miður ekki tala um.
Það skref leiddi mig til Úkra
ínu sem gekk vel.“
Naut þess að búa
í Kænugarði
Eftir dvölina í Póllandi var
Árni í Úkraínu í tvö ár og
raðaði inn mörkum, hann
segir fótboltann þar mjög
öflugan. „Deildin yfir höfuð
í Úkraínu er mjög sterk, fót
boltinn í Svíþjóð var ekki að
ganga upp. Kannski vantaði
mig þroska en ég kem í miklu
sterkari deild og þá fer allt
að gerast, það voru margir
að setja spurningarmerki
við Úkraínu, en svo er okkar
besti varnarmaður kannski í
sögunni að skrifa undir þar.
Við Íslendingar sjáum bara
fréttir í sjónvarpi og vitum
lítið um þessa deild, hún er
virkilega sterk,“ segir Árni,
en Ragnar Sigurðsson er nú
mættur til Úkraínu.
Árni lék síðast með Kolos
Kovalivka frá samnefndum
bæ, íbúar þar eru aðeins 1.500
og búa allir leikmenn liðsins
í Kænugarði. Hálftími er þar
á milli. „Ég bjó í Kænugarði,
þar búa allir leikmenn liðsins.
Það er hálftími yfir í Koval
ivka en við æfðum oftast bara
í Kænugarði,“ segir Árni,
sem staddur var í Tyrklandi
að semja um kaup og kjör við
Rússana. n
Þá getur þú
ekkert setið
heima hjá
þér og
grenjað.