Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 8
Ágúst Ágústsson segir vörumerki Slæs ekki stolið. MYND/ÚR EINKASAFNI
ALRÆMDIR BRÆÐUR
OPNA PÍTSUSTAÐ
Hinir alræmdu bræður Ágúst Arnar Ágústsson
og Einar Ágústsson höfðu varla opnað dyrnar á
nýjum veitingastað sínum, pítsustaðnum Slæs,
þegar þeir voru sakaðir um lögbrot, en að þessu
sinni ekki fyrir fjársvik, heldur hugverkastuld.
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
B ræðurnir Ágúst Arnar Ágústsson og Einar Ágústsson hafa ítrekað
ratað á síður fjölmiðla undan-
farin ár. Þeir eru athafna-
menn sem sífellt leita nýrra
sóknarfæra. Um þessar
mundir söðla þeir um og eru
komnir á veitingamarkaðinn
en á dögunum opnuðu þeir
pítsustaðinn Slæs. Viðskipta-
hættir þeirra hafa þó verið
umdeildir í gegnum tíðina.
Kickstarter-bræður
Bræðurnir vöktu athygli
árið 2015 þegar þeir söfnuðu
metfé á hópfjármögnunar-
síðunni Kickstarter þar sem
þeir leituðu fjármagns fyrir
þrjú verkefni, sólarrafhlöðu
sem er fest á bakpoka, alhliða
tengisnúru og vindmyllu til
einkanota. Fengu bræðurnir
í kjölfarið viðurnefnið Kick-
starter-bræður. Kickstarter
lokaði fyrir eina söfnunina
eftir að um tuttugu milljónir
höfðu safnast, en mikið þarf
til svo að síðan loki fyrir slíka
söfnun. Í kjölfarið var greint
frá því að bræðurnir sættu
rannsókn sérstaks saksókn-
ara.
Skömmu síðar vakti það
mikla athygli þegar sérstakur
saksóknari gaf út ákæru á
hendur Einari fyrir umfangs-
mikil fjársvik og gjaldeyris-
brot, en honum var gefið að
sök að hafa svikið tugi millj-
óna út úr fjórum einstakl-
ingum. Árið 2018 staðfesti
Landsréttur dóm Héraðsdóms
Reykjaness í málinu þar sem
Einar var fundinn sekur um
að svíkja 74 milljónir króna
út úr fjárfestum sem áttu að
renna inn í fjárfestingarfélag
í Bandaríkjunum, en Einar
nýtti peningana í eigin þágu.
Samkvæmt dóminum átti
Einar sér engar málsbætur
og brot hans voru metin skipu-
lögð og úthugsuð og var hann
dæmdur í þriggja ára og níu
mánaða fangelsi.
Zúista-bræður
Í árslok 2015 var upplýst
að bræðurnir væru skráðir
fyrir félagi Zúista, trúfélagi
sem lofaði meðlimum að þeir
fengju sóknargjöld sín endur-
greidd og væri tilgangur fé-
lagsins að vekja upp umræðu
um trúfrelsismál, en einnig
var það sagt byggjast á trúar-
brögðum fornrar þjóðar Sú-
mera sem eru ein elstu trúar-
brögð í heimi. Vegna loforðs
um endurgreiðslu skráði mik-
ill fjöldi landsmanna sig í fé-
lagið og fljótlega urðu Zúistar
eitt stærsta trúfélag landsins.
Bræðurnir voru þó ekki í for-
svari fyirr félagið til að byrja
með þótt Ágúst Arnar hafi
tekið þátt í stofnun þess árið
2013.
Ljóst var því að tugir millj-
óna myndu berast félaginu
í formi sóknargjalda. Áður
höfðu bræðurnir ekki verið
við stjórn félagsins en gerðu
nú kröfu um yfirráð í krafti
þess að þeir voru í forsvari
rekstrarfélagsins á bak við
það. Öldungaráð Zúista fór
fram á að þeir fjármunir sem
félagið átti rétt á yrðu frystir
á meðan þeir reyndu að stofna
nýtt rekstrarfélag, en þeir
gátu ekki gert það. Einar og
Ágúst Arnar fengu því full yf-
irráð yfir félaginu og sóknar-
gjöldunum og fyrrverandi for-
ráðamenn gáfu út yfirlýsingu
um að þeir gætu ekki ábyrgst
endurgreiðslu sóknargjalda og
hvöttu meðlimi til að skrá sig
úr félaginu.
Í desember síðastliðnum var
svo greint frá því að ákæra
hefði verið gefin út á hendur
bræðrunum fyrir fjársvik í
tengslum við rekstur Zúista.
Eru þeir sagðir hafa styrkt og
hagnýtt sér þá röngu hugmynd
starfsmanna íslenskra stjórn-
valda að trúfélagið uppfyllti
skilyrði fyrir skráningu trú-
félags og á þeim grunni tekið
við 85 milljónum frá íslenska
ríkinu frá október 2017 til
janúar 2019. Í ákæru er vikið
að því að engin starfsemi fari
fram innan félagsins og þar
sé ekki lögð stund á átrúnað
eða trú. Talið er að bræðurnir
hafi flutt um 46 milljónir
af sóknargjöldunum yfir á
reikning félagsins EAF hf., en
Einar er skráður eigandi þess
og samkvæmt fyrirtækjaskrá
er starfsemi félagsins blönduð
heildverslun. Eins er þeim
gert að sök að hafa lagt pening
inn á persónulega reikninga
sína og eytt þeim í veitingar,
áfengi, matvörur og ferðalög.
Slæs-bræður
Greint var frá því í byrjun síð-
asta árs að bræðurnir hefðu
stofnað félagið Megn ehf. Til-
gangur félagsins var skráður
veitingarekstur, lánastarf-
semi, verslunarrekstur og
kaup og sala eigna. Það var
þó ekki fyrr enn nýlega sem
fyrirtækið hóf eiginlega starf-
semi þegar pítsustaðurinn
Slæs var opnaður í Garðabæ.
Líkt og bræðranna er háttur
vakti Slæs fljótlega athygli
fyrir annað en flatbökugerð
en vörumerki staðarins þótti
sláandi líkt vörumerki sams
konar staðar í Bandaríkj-
unum. Ágúst Arnar hefur þó
hafnað því að um hugverka-
stuld sé að ræða og segir
merkið hafa verið keypt í
stærsta myndabanka heims,
Shutterstock. Áður hafði
Ágúst þó sagt að merkið hefði
fengist í gegnum vefsíðuna
Fiverr þar sem hægt sé að
kaupa þjónustu af einyrkjum.
Rétt er að afbrigði vöru-
merkisins má finna á Shutter-
stock, sem er sláandi líkt
vörumerki bandaríska pítsu-
staðarins Firecraft Artisian
Pizza. Vörumerki bandaríska
pítsustaðarins er hannað af
manni að nafni Allan Peters
og er höfundarréttarvarið.
Vörumerki Slæs er nákvæm
eftirlíking skráða vörumerkis-
ins, jafnvel með nákvæmlega
sama rauða litnum. Það er
þekkt vandamál að óprúttnir
aðilar steli höfundarréttar-
vörðum myndum til að selja
á Shutterstock, svo kaup á
vörumerki frá Shutterstock
tryggir ekki að ekki sé um
stuld á höfundarréttarvörðu
efni að ræða.
Bræðurnir hafa því nóg að
gera um þessar mundir. Nýr
rekstur, mögulega stolið vöru-
merki og ákæra fyrir stórfelld
fjársvik sem hefur verið þing-
fest í héraðsdómi. Þeir verða
því líklega seint kallaðir logn-
mollu-bræður. n
STOLIÐ VÖRUMERKI?
Merki nýja pítsustaðar bræðranna
og merki bandaríska pítsustaðar-
ins. Vart má sjá hvort er hvað.
Einar var dæmdur í tæplega fjögurra ára fangelsi. MYND/ANTON BRINK
Fljótlega urðu
Zúistar eitt
stærsta trúfélag
landsins.
8 FRÉTTIR 22. JANÚAR 2021 DV