Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 8
Ágúst Ágústsson segir vörumerki Slæs ekki stolið. MYND/ÚR EINKASAFNI ALRÆMDIR BRÆÐUR OPNA PÍTSUSTAÐ Hinir alræmdu bræður Ágúst Arnar Ágústsson og Einar Ágústsson höfðu varla opnað dyrnar á nýjum veitingastað sínum, pítsustaðnum Slæs, þegar þeir voru sakaðir um lögbrot, en að þessu sinni ekki fyrir fjársvik, heldur hugverkastuld. Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is B ræðurnir Ágúst Arnar Ágústsson og Einar Ágústsson hafa ítrekað ratað á síður fjölmiðla undan- farin ár. Þeir eru athafna- menn sem sífellt leita nýrra sóknarfæra. Um þessar mundir söðla þeir um og eru komnir á veitingamarkaðinn en á dögunum opnuðu þeir pítsustaðinn Slæs. Viðskipta- hættir þeirra hafa þó verið umdeildir í gegnum tíðina. Kickstarter-bræður Bræðurnir vöktu athygli árið 2015 þegar þeir söfnuðu metfé á hópfjármögnunar- síðunni Kickstarter þar sem þeir leituðu fjármagns fyrir þrjú verkefni, sólarrafhlöðu sem er fest á bakpoka, alhliða tengisnúru og vindmyllu til einkanota. Fengu bræðurnir í kjölfarið viðurnefnið Kick- starter-bræður. Kickstarter lokaði fyrir eina söfnunina eftir að um tuttugu milljónir höfðu safnast, en mikið þarf til svo að síðan loki fyrir slíka söfnun. Í kjölfarið var greint frá því að bræðurnir sættu rannsókn sérstaks saksókn- ara. Skömmu síðar vakti það mikla athygli þegar sérstakur saksóknari gaf út ákæru á hendur Einari fyrir umfangs- mikil fjársvik og gjaldeyris- brot, en honum var gefið að sök að hafa svikið tugi millj- óna út úr fjórum einstakl- ingum. Árið 2018 staðfesti Landsréttur dóm Héraðsdóms Reykjaness í málinu þar sem Einar var fundinn sekur um að svíkja 74 milljónir króna út úr fjárfestum sem áttu að renna inn í fjárfestingarfélag í Bandaríkjunum, en Einar nýtti peningana í eigin þágu. Samkvæmt dóminum átti Einar sér engar málsbætur og brot hans voru metin skipu- lögð og úthugsuð og var hann dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi. Zúista-bræður Í árslok 2015 var upplýst að bræðurnir væru skráðir fyrir félagi Zúista, trúfélagi sem lofaði meðlimum að þeir fengju sóknargjöld sín endur- greidd og væri tilgangur fé- lagsins að vekja upp umræðu um trúfrelsismál, en einnig var það sagt byggjast á trúar- brögðum fornrar þjóðar Sú- mera sem eru ein elstu trúar- brögð í heimi. Vegna loforðs um endurgreiðslu skráði mik- ill fjöldi landsmanna sig í fé- lagið og fljótlega urðu Zúistar eitt stærsta trúfélag landsins. Bræðurnir voru þó ekki í for- svari fyirr félagið til að byrja með þótt Ágúst Arnar hafi tekið þátt í stofnun þess árið 2013. Ljóst var því að tugir millj- óna myndu berast félaginu í formi sóknargjalda. Áður höfðu bræðurnir ekki verið við stjórn félagsins en gerðu nú kröfu um yfirráð í krafti þess að þeir voru í forsvari rekstrarfélagsins á bak við það. Öldungaráð Zúista fór fram á að þeir fjármunir sem félagið átti rétt á yrðu frystir á meðan þeir reyndu að stofna nýtt rekstrarfélag, en þeir gátu ekki gert það. Einar og Ágúst Arnar fengu því full yf- irráð yfir félaginu og sóknar- gjöldunum og fyrrverandi for- ráðamenn gáfu út yfirlýsingu um að þeir gætu ekki ábyrgst endurgreiðslu sóknargjalda og hvöttu meðlimi til að skrá sig úr félaginu. Í desember síðastliðnum var svo greint frá því að ákæra hefði verið gefin út á hendur bræðrunum fyrir fjársvik í tengslum við rekstur Zúista. Eru þeir sagðir hafa styrkt og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna íslenskra stjórn- valda að trúfélagið uppfyllti skilyrði fyrir skráningu trú- félags og á þeim grunni tekið við 85 milljónum frá íslenska ríkinu frá október 2017 til janúar 2019. Í ákæru er vikið að því að engin starfsemi fari fram innan félagsins og þar sé ekki lögð stund á átrúnað eða trú. Talið er að bræðurnir hafi flutt um 46 milljónir af sóknargjöldunum yfir á reikning félagsins EAF hf., en Einar er skráður eigandi þess og samkvæmt fyrirtækjaskrá er starfsemi félagsins blönduð heildverslun. Eins er þeim gert að sök að hafa lagt pening inn á persónulega reikninga sína og eytt þeim í veitingar, áfengi, matvörur og ferðalög. Slæs-bræður Greint var frá því í byrjun síð- asta árs að bræðurnir hefðu stofnað félagið Megn ehf. Til- gangur félagsins var skráður veitingarekstur, lánastarf- semi, verslunarrekstur og kaup og sala eigna. Það var þó ekki fyrr enn nýlega sem fyrirtækið hóf eiginlega starf- semi þegar pítsustaðurinn Slæs var opnaður í Garðabæ. Líkt og bræðranna er háttur vakti Slæs fljótlega athygli fyrir annað en flatbökugerð en vörumerki staðarins þótti sláandi líkt vörumerki sams konar staðar í Bandaríkj- unum. Ágúst Arnar hefur þó hafnað því að um hugverka- stuld sé að ræða og segir merkið hafa verið keypt í stærsta myndabanka heims, Shutterstock. Áður hafði Ágúst þó sagt að merkið hefði fengist í gegnum vefsíðuna Fiverr þar sem hægt sé að kaupa þjónustu af einyrkjum. Rétt er að afbrigði vöru- merkisins má finna á Shutter- stock, sem er sláandi líkt vörumerki bandaríska pítsu- staðarins Firecraft Artisian Pizza. Vörumerki bandaríska pítsustaðarins er hannað af manni að nafni Allan Peters og er höfundarréttarvarið. Vörumerki Slæs er nákvæm eftirlíking skráða vörumerkis- ins, jafnvel með nákvæmlega sama rauða litnum. Það er þekkt vandamál að óprúttnir aðilar steli höfundarréttar- vörðum myndum til að selja á Shutterstock, svo kaup á vörumerki frá Shutterstock tryggir ekki að ekki sé um stuld á höfundarréttarvörðu efni að ræða. Bræðurnir hafa því nóg að gera um þessar mundir. Nýr rekstur, mögulega stolið vöru- merki og ákæra fyrir stórfelld fjársvik sem hefur verið þing- fest í héraðsdómi. Þeir verða því líklega seint kallaðir logn- mollu-bræður. n STOLIÐ VÖRUMERKI? Merki nýja pítsustaðar bræðranna og merki bandaríska pítsustaðar- ins. Vart má sjá hvort er hvað. Einar var dæmdur í tæplega fjögurra ára fangelsi. MYND/ANTON BRINK Fljótlega urðu Zúistar eitt stærsta trúfélag landsins. 8 FRÉTTIR 22. JANÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.