Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 37
Bananabrauð
2 stórir, þroskaðir bananar
60 g smjör
2 egg
1 dl sykur
2½ dl hveiti
½ dl mjólk
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. vanillusykur
1 tsk. kanill
Byrjið á stilla ofninn á 180°C.
Hrærið egg og sykur saman, þann-
ig að blandan verði létt og ljós.
Bætið hveiti, lyftidufti, kanil og
vanillusykri saman við og hrærið
vel saman.
Stappið bananana og blandið
saman við mjólkina, hellið svo
saman við deigið.
Smyrjið vel brauðform að innan, ég
nota gjarnan PAM-sprey en einnig
má nota smjör eða smjörlíki.
Hellið blöndunni í formið, stráið
smá höfrum yfir og bakið í 30-40
mínútur.
Una í eldhúsinu
Bollakökur með After
Eight súkkulaðibitum
250 g hveiti
300 g sykur
3 tsk. lyftiduft
1½ tsk. vanilludropar
½ tsk. salt
4 egg
100 g smjör, mjúkt
2½ dl mjólk
200 g After Eight súkkulaði
Hitið ofninn í 180°C.
Blandið saman hveiti, eggjum,
sykri, salti, lyftidufti, smjöri, mjólk
og vanilludropum, hrærið í hrærivél
í nokkrar mínutur.
Skerið niður After Eight súkku-
laði í grófa bita og blandið varlega
saman við deigið með sleikju.
Setjið í pappaform og bakið í um
17-20 mínútur.
Frönsk súkkulaðikaka
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði með sjávar-
salti og karamellu
½ dl hveiti
3 stk. egg
Byrjið á því að hita ofninn við 170°C.
Þeytið saman sykur og egg.
Bræðið saman smjör og súkkulaði
við vægan hita. Leyfið blöndunni að
kólna aðeins áður en hún er sett
saman við eggin.
Blandið hveitinu saman við hrærið
vel saman.
Hellið í form, mér finnst best að
nota smelluform og þar sem deigið
er mjög fljótandi er gott ráð að hafa
bökunarpappír í botninum.
Bakið kökuna í um 35 mínútur.
Berið fram með þeyttum rjóma og
ferskum berjum.
Hversu yndislegt er það að vera
saman fjölskyldan á köldum
vetrardegi og baka gott banana-
brauð, franska súkkulaðiköku
og bollakökur með After Eight?
Mæli með þessu fyrir helgina
og allir geta tekið þátt í að baka
saman.
MYNDIR/AÐSENDAR
MATUR 37DV 22. JANÚAR 2021