Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 23
farið fram á dauðarefsingu.
Eftir sat þó spurningin hvers
vegna 36 ára gömul, fjögurra
barna móðir, fremdi þennan
svívirðilega glæp.
Myrti hundinn
Sorgarsaga Lisu hófst áður en
hún fæddist. Móðir hennar,
Judy, drakk mikið á meðgöng-
unni og Lisa fæddist með það
sem kallast áfengisheilkenni,
en einkenni heilkennisins
getur verið skertur vitsmuna-
þroski, skert hreyfifærni og
hegðunarvandamál.
Fyrstu þrjú árin ólst hún
upp með hálfsystur sinni og
þriggja ára varð hún vitni að
því þegar barnfóstra þeirra,
karlmaður, nauðgaði átta ára
systur hennar ítrekað. Systir
hennar var fjarlægð af heimil-
inu eftir að faðir þeirra stakk
af, og varð það henni til bjarg-
ar. Lisa hins vegar varð eftir
hjá móður sinni og martröð
hennar var rétt að hefjast.
Móðir hennar Judy, var of-
beldisfull. Meðal annars átti
hún til að tjóðra Lisu til að
þagga niður í henni, neyða
hana í ískalda sturtu og berja
hana með beltum, snúrum og
herðatrjám. Eitt sinn drap
hún hund fjölskyldunnar fyrir
framan Lisu og systkini henn-
ar, með skóflu, til að refsa
þeim. Judy skipti hratt um
karlmenn og giftist oft. Einn
eiginmanna hennar var Jack
Kleiner sem varð stjúpfaðir
Lisu og hennar versti kvalari.
Niðurlægingin algjör
Jack beitti Lisu margþættu of-
beldi. Hann útbjó sérstakt her-
bergi fyrir utan hjólhýsið sem
þau bjuggu í og þangað átti
Lisa að koma beint eftir skóla.
Þar fylgdist hann með henni
tímunum saman í gegnum
gægjugat og nauðgaði henni
reglulega. Þegar það nægði
honum ekki lengur bauð hann
vinum sínum að slást í leikinn
og var Lisu hópnauðgað tím-
unum saman, barin og niður-
lægð. Hún greindi síðar frá því
að sumir mennirnir hefðu lokið
sér af með því að hafa yfir
hana þvaglát. Niðurlægingin
og örvæntingin var algjör.
Ekki þýddi fyrir Lisu að
reyna að streitast á móti of-
beldinu. Í eitt sinn er hún
hafði gert svo barði Jack höfði
hennar í steypt gólfið á her-
berginu af þvílíkum krafti að
Lisa hlaut varanlegan heila-
skaða af.
Engin hjálp
Ekki gat hún leitað til móður
sinnar heldur, en móðir henn-
ar var meðvituð um ofbeldið.
Hún gekk eitt sinn inn er
stjúpfaðirinn var að misnota
Lisu. Viðbrögð hennar voru
þau að sækja skotvopn, beina
því að höfði Lisu og spyrja
hana: „Hvernig gastu gert mér
þetta?“ Fljótlega sá móðirin
þó tækifæri í stöðunni. Þegar
hún þurfti að kalla til iðnaðar-
menn á borð við pípara eða
rafvirkja, bauð hún þeim að
misnota dóttur sína frekar en
að greiða þeim peninga.
Enginn kom Lisu til bjargar.
Ekki læknirinn sem skoðaði
hana eitt sinn og sá ummerki
ofbeldisins. Ekki frændi henn-
ar, sem hún greindi frá ofbeld-
inu. Ekki barnaverndarnefnd
sem kom aðeins einu sinni til
að kanna aðstæður hjá henni,
ekki skólinn, ekki neinn. Móð-
irin skildi loks við Jack og
fyrir dómi, er gengið var frá
skilnaðinum, greindu bæði
Judy og Lisa frá kynferðisof-
beldinu. Dómarinn skammaði
Judy fyrir að gera ekkert í
málunum, en gerði svo ekkert
sjálfur.
Áframhaldandi ofbeldi
Aðeins 18 ára gömul gekk Lisa
að eiga stjúpbróður sinn og
eignaðist fjögur börn á fimm
árum. Eiginmaður hennar
beitti hana hrottalegu ofbeldi
og tók það meðal annars upp á
myndband. Þrautaganga Lisu
virtist engan enda ætla að
taka.
Eftir að Lisa gekk að eiga
seinni eiginmann sinn fór hún
ítrekað að halda því fram að
hún væri þunguð, þrátt fyrir
að vera líkamlega ófær um
slíkt eftir að hafa eftir nauðg-
un gengist undir ófrjósemisað-
gerð.
Þarna er talið að Lisa hafi
verið orðin verulega veik á
geði og í litlum tengslum við
raunveruleikann. Það hafi því
verið sturluð manneskja sem
fór til fundar við Bobbie Jo,
vafið reipi um háls hennar,
kyrkt og skorið úr henni ófætt
barnið.
Misnotkunarafsökunin
Lisa hefur verið greind með
umfangsmikil andleg veikindi
og annmarka, geðhvörf, rofinn
persónuleika, alvarlega áfalla-
streituröskun og alvarlegan
heilaskaða, eftir ítrekað of-
beldi sem hún mátti þola frá
stjúpföður sínum og tveimur
eiginmönnum.
Kviðdómur fékk aldrei al-
mennilega að heyra um for-
tíð Lisu, saksóknarar eyddu
heldur púðri í að greina frá því
hvað Lisa væri léleg húsmóðir,
að hún héldi ekki hreint heimili
og eldaði ekki mat, líkt og það
hefði eitthvað með morðið að
gera. Reynsla Lisu af alvar-
legu, líkamlegu og kynferðis-
legu ofbeldi, þar sem hún var
barnung hneppt í kynlífsþrælk-
un þar sem henni var nauðgað
í leggöng, endaþarm og munn,
var kölluð „misnotkunarafsök-
unin“ og alfarið vísað á bug.
Verjandinn sem henni var
skipaður, Dave Owen, hafði
enga reynslu af málum þar
sem dauðarefsing kom til
álita, honum var skipaður til
aðstoðar virtur verjandi með
mikla reynslu af því að vinna
með þolendum ofbeldis, Judy
Clarke, en Owen þoldi ekki til-
hugsunina um að kona færi að
segja honum til verka svo hann
fékk Clarke setta af, eftir að
hún hafði náð góðu trúnaðar-
sambandi við Lisu. Talið er að
vörn hennar hafi verið veru-
lega ábótavant.
Engin lokaorð
Það var því barist allt til síð-
ustu stundar fyrir lífi Lisu.
Systir hennar og lögmenn biðl-
uðu til fráfarandi Bandaríkja-
forseta, Donalds Trump, um
að þyrma lífi hennar og taka
tillit til ofbeldissögu hennar.
Enginn var að fara fram á
að Lisa fengi frelsi, hún ætti
heima á bak við lás og slá, en
hún ætti ekki skilið að tapa líf-
inu, heldur vist á stað þar sem
hún gæti fengið viðeigandi að-
stoð við veikindum sínum.
Það reyndist þó til einskis
og 13. janúar lét Lisa lífið
eftir að hafa verið sprautuð
með banvænni blöndu efna
er dauðarefsingu hennar var
framfylgt. Hún var 52 ára
gömul. Aðspurð hvort hún
hefði eitthvað að segja áður
en hún léti lífið svaraði hún
„nei“. Það var hennar síðasta
orð. Hálf öld af hryllingi, af
ofbeldi, niðurlægingu og pynt-
ingum. Enginn kom henni til
bjargar þá og hví ætti einhver
að gera það núna? Hvað var
þá í reynd eftir fyrir Lisu að
segja annað en nei? n
Bobbie Jo var dáin og að-
koman hræðileg. Helst leit út
fyrir að magi hennar hefði
sprungið, og lögreglumenn
sem fyrstir voru á vettvang
hafa lýst aðstæðum sem í
hryllingsmynd. Ekkert bólaði
á barninu sem hún hafði borið
undir belti.
Vel undirbúið
Tæpum 300 kílómetrum í
burtu sýndi Lisa Montgomery
vinum og vandamönnum ný-
fætt barn sitt. Ekkert virtist
sérstaklega athugavert við
það, enda Lisa búin að vera
ólétt í níu mánuði og því eðli-
legt að sjá hana með nýfætt
barn.
Hins vegar var það athuga-
vert í ljósi þess að Lisa var
ófrjó. Hún hafði undirgengist
ófrjósemisaðgerð mörgum
árum fyrr, eftir að hún átti
sitt fjórða barn. Engu að síð-
ur hafði hún statt og stöðugt
haldið því fram að hún gengi
með barn undir belti.
Það tók lögregluna ekki
langan tíma að bera kennsl á
Darlene Fischer, sem reynd-
ist dulnefni Lisu sjálfrar. Í
kjölfarið var Lisa handtekin
og ákærð fyrir sérstaklega
hrottalegt morð og mannrán.
Á daginn kom að Lisa hafði
mætt til Bobbie vel undir-
búin. Hún hafði með sér reipi,
hníf og búnað til að taka á móti
barni. Áður hafði hún kynnt
sér hvernig keisaraskurður
var framkvæmdur. Allt bar
með sér að um ósvífið morð af
yfirlögðu ráði væri að ræða og
þegar Lisa var sótt til saka var
Bobbie Jo var nýgift og átti von á barni. MYND/ÚR EINKASAFNLisa átti hryllilega æsku. MYND/LÖGMENN FYRIR LISU MONTGOMERY
Lisa þóttist ætla að skoða hvolpa hjá Bobbie Jo. MYND/GETTY
FÓKUS 23DV 22. JANÚAR 2021