Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Qupperneq 23
farið fram á dauðarefsingu. Eftir sat þó spurningin hvers vegna 36 ára gömul, fjögurra barna móðir, fremdi þennan svívirðilega glæp. Myrti hundinn Sorgarsaga Lisu hófst áður en hún fæddist. Móðir hennar, Judy, drakk mikið á meðgöng- unni og Lisa fæddist með það sem kallast áfengisheilkenni, en einkenni heilkennisins getur verið skertur vitsmuna- þroski, skert hreyfifærni og hegðunarvandamál. Fyrstu þrjú árin ólst hún upp með hálfsystur sinni og þriggja ára varð hún vitni að því þegar barnfóstra þeirra, karlmaður, nauðgaði átta ára systur hennar ítrekað. Systir hennar var fjarlægð af heimil- inu eftir að faðir þeirra stakk af, og varð það henni til bjarg- ar. Lisa hins vegar varð eftir hjá móður sinni og martröð hennar var rétt að hefjast. Móðir hennar Judy, var of- beldisfull. Meðal annars átti hún til að tjóðra Lisu til að þagga niður í henni, neyða hana í ískalda sturtu og berja hana með beltum, snúrum og herðatrjám. Eitt sinn drap hún hund fjölskyldunnar fyrir framan Lisu og systkini henn- ar, með skóflu, til að refsa þeim. Judy skipti hratt um karlmenn og giftist oft. Einn eiginmanna hennar var Jack Kleiner sem varð stjúpfaðir Lisu og hennar versti kvalari. Niðurlægingin algjör Jack beitti Lisu margþættu of- beldi. Hann útbjó sérstakt her- bergi fyrir utan hjólhýsið sem þau bjuggu í og þangað átti Lisa að koma beint eftir skóla. Þar fylgdist hann með henni tímunum saman í gegnum gægjugat og nauðgaði henni reglulega. Þegar það nægði honum ekki lengur bauð hann vinum sínum að slást í leikinn og var Lisu hópnauðgað tím- unum saman, barin og niður- lægð. Hún greindi síðar frá því að sumir mennirnir hefðu lokið sér af með því að hafa yfir hana þvaglát. Niðurlægingin og örvæntingin var algjör. Ekki þýddi fyrir Lisu að reyna að streitast á móti of- beldinu. Í eitt sinn er hún hafði gert svo barði Jack höfði hennar í steypt gólfið á her- berginu af þvílíkum krafti að Lisa hlaut varanlegan heila- skaða af. Engin hjálp Ekki gat hún leitað til móður sinnar heldur, en móðir henn- ar var meðvituð um ofbeldið. Hún gekk eitt sinn inn er stjúpfaðirinn var að misnota Lisu. Viðbrögð hennar voru þau að sækja skotvopn, beina því að höfði Lisu og spyrja hana: „Hvernig gastu gert mér þetta?“ Fljótlega sá móðirin þó tækifæri í stöðunni. Þegar hún þurfti að kalla til iðnaðar- menn á borð við pípara eða rafvirkja, bauð hún þeim að misnota dóttur sína frekar en að greiða þeim peninga. Enginn kom Lisu til bjargar. Ekki læknirinn sem skoðaði hana eitt sinn og sá ummerki ofbeldisins. Ekki frændi henn- ar, sem hún greindi frá ofbeld- inu. Ekki barnaverndarnefnd sem kom aðeins einu sinni til að kanna aðstæður hjá henni, ekki skólinn, ekki neinn. Móð- irin skildi loks við Jack og fyrir dómi, er gengið var frá skilnaðinum, greindu bæði Judy og Lisa frá kynferðisof- beldinu. Dómarinn skammaði Judy fyrir að gera ekkert í málunum, en gerði svo ekkert sjálfur. Áframhaldandi ofbeldi Aðeins 18 ára gömul gekk Lisa að eiga stjúpbróður sinn og eignaðist fjögur börn á fimm árum. Eiginmaður hennar beitti hana hrottalegu ofbeldi og tók það meðal annars upp á myndband. Þrautaganga Lisu virtist engan enda ætla að taka. Eftir að Lisa gekk að eiga seinni eiginmann sinn fór hún ítrekað að halda því fram að hún væri þunguð, þrátt fyrir að vera líkamlega ófær um slíkt eftir að hafa eftir nauðg- un gengist undir ófrjósemisað- gerð. Þarna er talið að Lisa hafi verið orðin verulega veik á geði og í litlum tengslum við raunveruleikann. Það hafi því verið sturluð manneskja sem fór til fundar við Bobbie Jo, vafið reipi um háls hennar, kyrkt og skorið úr henni ófætt barnið. Misnotkunarafsökunin Lisa hefur verið greind með umfangsmikil andleg veikindi og annmarka, geðhvörf, rofinn persónuleika, alvarlega áfalla- streituröskun og alvarlegan heilaskaða, eftir ítrekað of- beldi sem hún mátti þola frá stjúpföður sínum og tveimur eiginmönnum. Kviðdómur fékk aldrei al- mennilega að heyra um for- tíð Lisu, saksóknarar eyddu heldur púðri í að greina frá því hvað Lisa væri léleg húsmóðir, að hún héldi ekki hreint heimili og eldaði ekki mat, líkt og það hefði eitthvað með morðið að gera. Reynsla Lisu af alvar- legu, líkamlegu og kynferðis- legu ofbeldi, þar sem hún var barnung hneppt í kynlífsþrælk- un þar sem henni var nauðgað í leggöng, endaþarm og munn, var kölluð „misnotkunarafsök- unin“ og alfarið vísað á bug. Verjandinn sem henni var skipaður, Dave Owen, hafði enga reynslu af málum þar sem dauðarefsing kom til álita, honum var skipaður til aðstoðar virtur verjandi með mikla reynslu af því að vinna með þolendum ofbeldis, Judy Clarke, en Owen þoldi ekki til- hugsunina um að kona færi að segja honum til verka svo hann fékk Clarke setta af, eftir að hún hafði náð góðu trúnaðar- sambandi við Lisu. Talið er að vörn hennar hafi verið veru- lega ábótavant. Engin lokaorð Það var því barist allt til síð- ustu stundar fyrir lífi Lisu. Systir hennar og lögmenn biðl- uðu til fráfarandi Bandaríkja- forseta, Donalds Trump, um að þyrma lífi hennar og taka tillit til ofbeldissögu hennar. Enginn var að fara fram á að Lisa fengi frelsi, hún ætti heima á bak við lás og slá, en hún ætti ekki skilið að tapa líf- inu, heldur vist á stað þar sem hún gæti fengið viðeigandi að- stoð við veikindum sínum. Það reyndist þó til einskis og 13. janúar lét Lisa lífið eftir að hafa verið sprautuð með banvænni blöndu efna er dauðarefsingu hennar var framfylgt. Hún var 52 ára gömul. Aðspurð hvort hún hefði eitthvað að segja áður en hún léti lífið svaraði hún „nei“. Það var hennar síðasta orð. Hálf öld af hryllingi, af ofbeldi, niðurlægingu og pynt- ingum. Enginn kom henni til bjargar þá og hví ætti einhver að gera það núna? Hvað var þá í reynd eftir fyrir Lisu að segja annað en nei? n Bobbie Jo var dáin og að- koman hræðileg. Helst leit út fyrir að magi hennar hefði sprungið, og lögreglumenn sem fyrstir voru á vettvang hafa lýst aðstæðum sem í hryllingsmynd. Ekkert bólaði á barninu sem hún hafði borið undir belti. Vel undirbúið Tæpum 300 kílómetrum í burtu sýndi Lisa Montgomery vinum og vandamönnum ný- fætt barn sitt. Ekkert virtist sérstaklega athugavert við það, enda Lisa búin að vera ólétt í níu mánuði og því eðli- legt að sjá hana með nýfætt barn. Hins vegar var það athuga- vert í ljósi þess að Lisa var ófrjó. Hún hafði undirgengist ófrjósemisaðgerð mörgum árum fyrr, eftir að hún átti sitt fjórða barn. Engu að síð- ur hafði hún statt og stöðugt haldið því fram að hún gengi með barn undir belti. Það tók lögregluna ekki langan tíma að bera kennsl á Darlene Fischer, sem reynd- ist dulnefni Lisu sjálfrar. Í kjölfarið var Lisa handtekin og ákærð fyrir sérstaklega hrottalegt morð og mannrán. Á daginn kom að Lisa hafði mætt til Bobbie vel undir- búin. Hún hafði með sér reipi, hníf og búnað til að taka á móti barni. Áður hafði hún kynnt sér hvernig keisaraskurður var framkvæmdur. Allt bar með sér að um ósvífið morð af yfirlögðu ráði væri að ræða og þegar Lisa var sótt til saka var Bobbie Jo var nýgift og átti von á barni. MYND/ÚR EINKASAFNLisa átti hryllilega æsku. MYND/LÖGMENN FYRIR LISU MONTGOMERY Lisa þóttist ætla að skoða hvolpa hjá Bobbie Jo. MYND/GETTY FÓKUS 23DV 22. JANÚAR 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.