Málfríður - 15.11.1993, Qupperneq 18
ENSKUKENNARANAMSKEIÐ
í CAMBRIDGE
Dagana 9.-13. ágúst sl. sumar var
haldið námskeið á Englandi á vegum
enskukennarafélagsins. Námskeiðið
sem var haldið í The Bell School of
Languages in Cambridge sóttu um 30
grunn- og framhaldsskólakennarar víðs-
vegar að af landinu. Þann 8. ágúst safn-
aðist stærsti hluti hópsins saman á
Heathrow flugvelli en þangað sendi
skólinn langferðabíl til að flytja þátttak-
endur á áfangastað.
Er til Cambridge var komið komu
menn sér fyrir á herbergjum sínum, en
hópnum var skipt niður á þrjú gisti-
heimili og þurftu sumir að búa talsvert
þrengra en þeir áttu að venjast. Það var
hins vegar útskýrt með því að ákaflega
erfitt er að fá gistingu í Cambridge á
þessum tíma árs.
Að morgni 9. ágúst var síðan haldið
af stað í skólann og enn ofbauð sumum
fslendingnum, sem ekki er vanur að
bregða mikið fyrir sig betri fætinum,
þegar í ljós kom að skólinn var í röskra
20 mínútna göngufjariægð frá gistiheim-
ilum. Brugðust menn við þessu með
ýmsu móti, þótt flestir hafi tekið þessu
sem kærkominni hressingargöngu.
Skólinn, The Bell School of Langu-
ages, er í útjaðri Cambridge. Hann
þjónar fyrst og fremst erlendum skóla-
nemum sem hyggjast sækja frekara
nám í enskumælandi landi eða vilja af
öðrum ástæðum bæta enskukunnáttu
sína. Skólinn hefur verið starfræktur í
um 40 ár og rekur útibú víða á Bretlandi
og í nokkrum öðrum löndum, svo sem
Ungverjalandi, Ítalíu og Sviss. Nem-
endur skólans eru af ýmsum þjóðernum
og kennt er í litlum blönduðum hópum,
til þess að minnka líkur á að nemendur
noti móðurmál sitt til samskipta. Nám-
skeiðið sjálft stóð í 5 daga og var að
flestra mati til mikillar fyrirmyndar
hvað varðaði skipulagningu. Kennarar
sem skráðir voru á námskeiðið fengu
bréf frá skólanum sl. vor þar sem þeir
voru beðnir um að fylla út könnun varð-
andi hvað þeir vildu að lögð yrði áher-
sla á í námskeiðinu. Þannig settu menn
fram sínar hugmyndir um hvort tím-
anum ætti að verja í umfjöllun um
kennslu í málfræði, talþjálfun, bók-
menntum, eða hvort beina ætti sjónum
að menningu og sögu fyrst og fremst.
Þegar í skólann var komið lýstu nám-
skeiðshaldarar yfir ánægju með það
hversu vel kennarar hefðu brugðist við
þessu og auðveldað þar með skipulagn-
ingu námskeiðsins.
Dagskrá námskeiðsins, sem fylgir
hér á eftir, var þannig uppbyggð að haf-
ist var handa kl. 9 hvern morgun og
unnið í tveimur lotum til hádegis. Þá
var snæddur hádegisverður í matsal
skólans - og verður að segjast að ljúf-
fengur tvíréttaður málsverður ofan á
hefðbundinn enskan morgunmat og
kaffihlé með kexi er talsvert meira
fæðumagn en kennarar venjulega inn-
byrða. Því var ekki laust við að menn
væru farnir að draga úr morgunverð-
arskammtinum er leið á vikuna. Eins og
sést, var námskeiðinu skipt í fyrirlestra
um margvísleg efni, umræðu um að
aðferðafræði og um notkun málsins og
kennslu ákveðinna hugmynda.
Fyrirlestrar voru meðal annars um
Cambridge og þróun staðarins, um
skólakerfið í Bretlandi og Roger Gower,
sem margir íslenskir kennarar þekkja
frá þeim kennslubókum sem hann hefur
sent frá sér, hélt fyrirlestur um bók-
menntakennslu. í málnotkuninni var
fjallað um orðtök, mismunandi mál-
lýskur og fleira. Aðferðafræðin var auk
annars um málfræði, orðaforða, notkun
tölva og annarra hjálpartækja í ensku-
kennslu.
Einnig var kynnt bókasafn skólans
og heimanámsaðstaða, þar sem sér-
staka athygli vakti kerfi sem byggt er
upp til sjálfsnáms. Nemendur geta í
samráði við kennara sína gert sér grein
fyrir því hvar veikir punktar þeirra
liggja (t.d. í ákveðnum þáttum mál-
fræði, hlustun eða lesskilningi) - og síð-
an tekið verkefnablöð í þeim þáttum
þar sem vísað er á æfingar í bókum sem
til eru á safninu. Nemendur vinna þetta
efni og leiðrétta og halda síðan skrá yfir
hvernig gengur og geta fylgst með fram-
förum sínum. Þetta krefst að vísu vel
búins bókasafns, og geysileg vinna
liggur að baki að safna viðeigandi verk-
efnum á hvert verkefnablað - en þarna
er komið til móts við þarfir hvers ein-
staklings á þann hátt sem aldrei er
hægt í 20-30 manna bekk.
Því miður gafst lítill tími fyrir hvern
og einn þátt, en óhætt er að segja að
menn kynntust nýjum hugmyndum, auk
þess sem dustað var rykið af gömlum.
Skoðunarferð um Cambridge, krá-
arheimsókn, leikhúsferð til London og
skoðunarferð til Ely, auk móttöku- og
kveðjusamsætis, voru einnig á dagskrá
sem hluti af námskeiðinu. Auk þess má
sjá að þátttakendum stóðu til boða,
sem hluti af skipulögðu félagslífi skól-
ans, þolfimitími, myndbandssýning - og
náttfatapartý!
Flesta daga var formlegri dagskrá
lokið um kl. 15 og tóku menn þá á rás
niður í bæ til að njóta þeirra lystisemda
sem þetta forna setur æðri menntunar
hefur upp á að bjóða. Þar sem lok-
unartímar búða eru með einkennilegum
hætti í Cambridge var ekki laust við að
sumir væru andstuttir þegar sest var
niður á kaffihúsum og krám víðs vegar
að slaka á eftir erfiðan dag. Sumir fóru
auk þess í útileikhús og sáu vel heppn-
aða Shakespeare-sýningu, aðrir létu sér
nægja að rölta um bæinn þar sem há-
skólabyggingar og kirkjur standa í röð-
um milli bókabúða og minjagripaversl-
ana. Ferð til Ely - þar sem skoðuð var
ein stærsta dómkirkja landsins og
drukkið te - var sérlega ánægjuleg, auk
þess sem hluti hópsins naut leiðsagnar
eins þátttakanda sem á árum áður
stundaði nám í Cambridge og rifjaði
meðal annars upp hæfileika sína í flat-
bytnusiglingum. Að morgni iaugardags-
ins 14. ágúst var haldið til London - og
þaðan heim allt eftir ferðaáætlun hvers
og eins.
Það sem eftir stendur er minning um
vel heppnað námskeið þar sem bæði
voru kynntar nýjungar og hnykkt á
þekktari atriðum, skemmtilegar og fjör-
ugar umræður um skólamál, kennslu
og kennsluaðferðir, auk þess sem gott
var að dusta rykið af enskukunnátt-
unni f „náttúrulegu“ umhverfi.
Valborg Sveinsdóttir
Menntaskólanum á Egilsstöðum
18