Málfríður - 15.11.1993, Side 30

Málfríður - 15.11.1993, Side 30
10. Skriflegar breytingar Hægt er að ganga enn lengra í vangaveltum varðandi sögu- þráð með því að bjóða nem- endum hreinlega að breyta sög- unni, t.d. breyta endinum, prjóna aftan við söguna eða skrifa kaflann sem kom á undan o.s.frv. 11. Rétt röð Kennari skrifar upp 8-10 atriði úr verkinu (á glæru, töflu eða pappír) sem er til umfjöllu- nar, en gætir þess að þau séu ekki í réttri tímaröð. Verkefni nemendanna felst í því að finna rétta röð. Þetta er góð æfing til að rifja upp atburðarás. Önnur æfing af svipuðum toga er þannig að kennari skrifar upp nokkrar setningar sem lýsa at- burðum eða einhverju úr verk- inu, bæði mikilvæg og léttvæg atriði. Nemendur raða atburð- unum síðan í röð eða gefa þeim einkunn eftir mikilvægi í sög- unni. 12. Skýringarmyndir Ýmiss konar skýringarmyndir geta hjálpað nemendum að átta sig á framvindu sögunnar, per- sónum og tengslum þeirra, flækjum og fléttum. Þar má nefna fjölskyldutré, spennukúr- fur, kökurit og súlurit sem sýna t.d. gæfu eða ógæfu persónan- na, gæsku þeirra eða illsku, mik- ilvægi þeirra í sögunni o.s.frv. Nemendum þykir oft gaman að fást við slíkar myndrænar lýsin- gar og þær eru afar einfaldar. ÞÚ SEM NÝTUR MANNRÉTTINDA GETUR HJÁLPAÐ ÞEIM SEM EKKI NJÓTA ÞEIRRA Mannréttindasamtökin Amn- esty International voru stofnuð árið 1961 og starfa nú lands- deildir í um 60 þjóðlöndum auk félaga í fjölmörgum öðrum lönd- um. Baráttumál samtakanna eru að allir samviskufangar verði látnir lausir tafarlaust og án skil- yrða, að pólitískir fangar fái rétt- láta dómsmeðferð, að pynding- ar, „mannshvörf“, aftökur án dóms og laga og líflátsdómar verði afnumdir. íslandsdeild Amnesty Inter- national var stofnuð árið 1974 og eru félagar tæplega fjögur- þúsund. Mannréttindafræðsla er mikilvægur hlekkur í allri mann- réttindabaráttu og samstarf við kennara á öllum skólastigum því ómetanlegt. Tungumálakennarar geta sameinað kennslu erlendra mála upplýsingum og fræðslu um mannréttindi. Amnesty Inter- national byggir baráttu sína fyrst og fremst á bréfaskriftum til yfirvalda og annarra sem sekir eru um brot á mannrétt- indum. Félagar í samtökunum skrifa bréf byggð á nákvæmum upplýsingum um tiltekin mann- réttindabrot. Slíkar bréfaskriftir geta einnig farið fram innan skólanna í samvinnu milli kenn- ara og nemenda. Bréfin eru skrif- uð á erlendum tungumálum og veita nemendum tækifæri til að vinna að þörfu málefni samtímis því að þeir öðlast þjálfun og færni í ritun erlends tungumáls. Nú stendur yfir alþjóðleg her- ferð Amnesty International gegn „mannshvörfum“ og pólitískum morðum. Pólitísk morð og „mannshvörf" um víða veröld eru mesta ógnun sem steðjar að mannhelgi og mannréttindum á yfirstandandi áratugi. Valdi rík- isins er í síauknum mæli beitt til að fremja morð og embættis- menn þess þjálfaðir í tækni laun- morðingja og mannræningja. Reynsla Amnesty International á síðastliðnum rúmum 30 árum hefur sýnt að það er hægt að stuðla að breytingum, alþjóð- legur þrýstingur leiddi til þess að ríflega 300 manns sem höfðu „horfið“ í Marokkó voru látnir lausir árið 1991 eftir allt að 18 ára fangavist. Til að binda enda á pólitísk morð og „mannshvörf" er brýn nauðsyn á samræmdu virku al- þjóðlegu átaki. Samvinna milli Islandsdeildar Amnesty Inter- national, nemenda og tungu- málakennara er því brýn. Skrifstofa íslandsdeildar Amn- esty International er til húsa að Hafnarstræti 15 í Reykjavík. Áhugasamir kennarar eru hvatt- ir til að leita frekari upplýsinga þar og fá afhent tilbúið efni ásamt leiðbeiningum um bréfa- skriftir. Samvinna milli kennara og Amnesty hefur á undanförnum árum aukist hérlendis en er þó hvergi nærri sambærileg við önnur Norðurlönd. Það er því von samtakanna að mikil og góð samvinna verði í framtíðinni. Okkur sem njótum mannrétt- inda ber skylda til að hjálpa þeim sem ekki njóta þeirra. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Islandsdeildar Amnesty Intemational 30

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.