Fréttablaðið - 30.01.2021, Qupperneq 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Úrsúla María mælir heils hugar með Hair Volume fyrir mæður og aðra sem
lenda í miklu hárlosi.
Hárþynning og hárlos er eitt-
hvað sem margir kannast við og
getur valdið fólki mjög miklu
hugarangri. Almennt missir fólk
50-100 hár á dag og ný hár koma
í staðinn, en þegar hárlos verður
meira en telst eðlilegt og endur-
nýjun hægari, er um hárþynningu
að ræða. Bæði konur og karlar
á öllum aldri geta þjáðst út af of
miklu hárlosi, þunnu og líf lausu
hári og þó að skallamyndun sé
mun algengari hjá körlum, getur
hún einnig gerst hjá konum.
Orsök hármissis
Ýmislegt getur valdið því að hárið
þynnist og verður líf laust:
n Erfðir og aldur
n Hormónabreytingar
n Streita
n Sveppasýking í hársverði
n Barneignir
n Næringarskortur
n Járnskortur
n Vöðvabólga
n Veikindi
n Lyfjameðferð
Hvað er til ráða?
Það er hægt að hafa áhrif á hár-
svörð og heilbrigði hársins á
margvíslegan hátt og sporna við
almennu hárlosi sem telst meira
en eðlilegt. Hvort sem rekja má
hárþynningu til erfða, hormóna-
breytinga, umhverfisþátta eða
næringar, þá eru nokkur atriði
sem gott er að hafa í huga.
n Næring – Vandaðu mataræði
þitt og borðaðu fjölbreyttan
mat svo þú fáir öll nauðsynleg
næringarefni sem líkaminn
þarfnast til að viðhalda heil-
brigðu hári.
n Streita – Finndu leiðir til að
draga úr andlegu álagi en mikil
streita getur haft margvísleg
neikvæð áhrif á líkamann og
valdið ýmsum einkennum, eins
og auknu hárlosi.
n Vöðvabólga – Viðvarandi og
mikil vöðvabólga getur dregið
úr blóðflæði til hársvarðar og
ýtt undir hárlos og því mikil-
vægt að finna leiðir til að bæði
fyrirbyggja og losa um upp-
safnaða spennu og bólgur með
nuddi, slökun, réttri líkams-
beitingu og hreyfingu.
n Hárvörur – Vandaðu val þitt á
hárvörum og veldu vörur með
náttúrulegum, hreinum og
öruggum innihaldsefnum.
n Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum
– Hárklinikken sérhæfir sig í
að greina rót vandans og veita
ráðgjöf.
n Bætiefni – Veldu sérvaldar
bætiefnablöndur sem hafa það
að markmiði að efla og styrkja
hárið og næra hársvörðinn.
Hair Volume er sérvalin
bætiefnablanda fyrir hár
Hair Volume frá New Nordic er
náttúrulegt bætiefni unnið úr
jurtum sem getur hjálpað til við að
viðhalda þykkt hársins og aukið
hárvöxt en það inniheldur meðal
annars jurtaþykkni úr eplum sem
er ríkt af Proxyanidin B2, ásamt
öðrum mikilvægum efnum fyrir
hárið eins og bíótíni sem hvetur
hárvöxt og eykur umfang hársins.
Hair Volume inniheldur einnig
kopar sem hjálpar til við að við-
halda háralit ásamt amínósýrunni
L-cysteine, sem getur komið í veg
fyrir hárþurrk og viðheldur áferð
og þykkt hárs, sink og þykkni úr
hirsi sem stuðlar að líf legu og heil-
brigðu hári.
Munur á einum mánuði
Úrsúla María er 26 ára lögfræðing-
ur og móðir sem glímdi við hárlos
eftir barnsburð en hún hefur þetta
um Hair Volume að segja:
„Eftir barnsburð fór ég að glíma
við hárlos og var hárið á mér farið
að þynnast verulega, sérstaklega
hjá kollvikunum. Það var virki-
lega erfitt að sjá og finna hárið
verða þynnra með hverjum degi
sem leið og var það farið að valda
mér áhyggjum. Ég fór því að velta
fyrir mér hvað ég gæti gert til að
laga ástandið. Ég hafði ekki endi-
lega mikla trú á að fæðubótarefni
gætu breytt miklu en hafði heyrt
um Hair Volume og ákvað að gefa
því séns. Það kom því verulega á
óvart hversu f ljótt hárið tók við
sér og eftir aðeins einn mánuð
var komið fullt af nýjum hárum
og kollvikin sem höfðu myndast
voru að hverfa.
Þetta var auðvitað kærkominn
viðsnúningur og núna eftir aðeins
nokkra mánuði á Hair Volume
hefur hárið jafnað sig og árangur-
inn er betri en ég hefði getað
ímyndað mér. Ég er gríðarlega
þakklát fyrir að hafa kynnst Hair
Volume og finnst þessi vara algjör
snilld fyrir mæður. Ég mun halda
áfram að taka Hair Volume til að
viðhalda heilbrigðu og þéttu hári.‘‘
Útsölustaðir: Apótek, Stórmark-
aðir, heilsuverslanir og Heimkaup
Mælt er með að neytendur leiti álits
læknis eða annars fagfólks áður
en þeir ákveða að taka inn vítamín
eða fæðubótarefni. Sérstaklega á
þetta við um barnshafandi konur
og konur sem eru með barn á
brjósti. Fæðubótarefni eiga ekki að
koma í staðinn fyrir fjölbreytt og
hollt mataræði.
Hair Volume er náttúrulegt bætiefni sem getur hjálpað til við að viðhalda þykkt hársins og aukið hárvöxt.
Til vinstri eru
kollvikin fyrir
inntöku Hair
Volume, til
hægri má sjá
heilbrigða hárið
hennar Úrsúlu
í dag.
Framhald af forsíðu ➛ Það kom mér
verulega á óvart
hversu fljótt hárið tók
við sér og eftir aðeins
einn mánuð á Hair
Volume var komið fullt
af nýjum hárum og
kollvikin að hverfa.
MÆLIR MEÐ
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R