Fréttablaðið - 30.01.2021, Side 32
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Íslendingar hafa alla burði til að verða óháðir öðrum um orkuöf lun og ná þannig fullu
orkusjálfstæði,“ sagði Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
á opnum fundi Landsvirkjunar
um ný og græn, orkutengd tæki-
færi fyrr í vikunni. Ráðherra
sagði að orkuna fengjum við úr
rafmagninu okkar og frá öðrum
grænum orkugjöfum, eins og
vetni. „Þannig getum við uppfyllt
orkuþörf samfélags framtíðarinn-
ar á umhverfisvænan hátt. Við
setjum stefnuna á að Ísland verði
jarðefnaeldsneytislaust fyrst allra
landa og að minnsta kosti ekki
síðar en 2050.“
Orkustefnan var unnin í þver-
pólitísku samstarfi og í samráði
við hagsmunaaðila. Fulltrúar allra
þingf lokka auk fjögurra ráðu-
neyta áttu sæti í starfshópnum
sem vann stefnuna. Einhugur var
um niðurstöðuna. „Ný orku-
stefna, sem unnin er í breiðri og
góðri sátt, er afskaplega mikil-
væg,“ sagði Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar. „Hún
gefur fyrirheit um að stjórnvöld
muni styðja við bakið á okkur inn
í áratugi orkuskipta, með hreinni
og grænni framtíð.“
Saxast á forskotið
Klemens Hjartar, meðeigandi
McKinsey & co, sagði í inngangs-
erindi sínu á fundinum að á næstu
grösum væri algjör bylting í orku-
notkun og -vinnslu í heiminum.
Fyrirsjáanlegt væri að raforku-
notkun í heiminum myndi aukast
um 50% frá árinu 2020 til 2050
og að á sama tímabili myndi
umhverfisvæn orkuvinnsla um
það bil sexfaldast. Um leið myndi
hlutdeild orkuvinnslu úr gasi og
kolum dragast verulega saman.
Klemens sagði þessa þróun
valda því að nú saxaðist á forskot
Íslendinga í orkumálum. Orka frá
endurnýjanlegum orkugjöfum,
til dæmis vindi og sólarljósi,
yrði sífellt ódýrari. Það kallaði á
nýsköpun, nýtt regluverk, nýtt
fjármagn, nýja hugsun og ný störf.
Íslendingar yrðu að ákveða hvort
þeir vildu vera við stjórnvölinn
áfram í orkumálum sínum, eða
leiksoppar ákvarðana annarra.
80% orkunnar sjálfbær
Á fundinum var fjallað um
þessar breytingar sem blasa við í
orku- og loftslagsmálum. Þar eru
vissulega ýmsar ógnir, en enn
f leiri tækifæri. Land endurnýjan-
legrar orku hefur alla burði til að
losa sig við jarðefnaeldsneyti og
leggja sitt af mörkum til nýrrar
heimsmyndar. Hörður Arnarson
sagði að Landsvirkjun, orkufyrir-
tæki þjóðarinnar, ætti að vera í
fararbroddi á þeirri vegferð. „Við
byggjum auðvitað á sterkum
grunni, því yfir 80% af frumorku-
notkun Íslands eru sjálf bær. Á
sama tíma þurfum við að leggja
áherslu á að skapa ný tækifæri til
nýtingar grænu orkunnar okkar.“
Nokkur ný tækifæri voru til
umfjöllunar á fundinum, þar á
meðal framleiðsla á grænu vetni
og öðru rafeldsneyti, frekari
uppbygging gagnavera í grænum
heimi, aukin eftirspurn eftir raf-
hlöðum á tímum örrar raf bíla-
væðingar og matvælaframleiðsla í
hátækniumhverfi framtíðarinnar.
Harpa Pétursdóttir, formaður Kvenna í orkumálum, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ræddu orkuskipti, breyttan heim og tækifæri framtíðar.
Dagný Jónsdóttir, nýsköpunar-
stjóri hjá Landsvirkjun, sagði að
loftslagsbaráttan kallaði á grænar
rafhlöður, enda þyrfti heims-
byggðin að skipta úr farartækjum
sem gengju fyrir jarðefnaelds-
neyti yfir í rafknúnar bifreiðar.
Gríðarmikil aukning væri í eftir-
spurn eftir rafhlöðum, sem rekja
mætti til þessarar öru rafbíla-
væðingar.
Dagný sagði að spáð væri að
rafbílasala yrði 10 sinnum meiri
árið 2030 en nú, eða um 34 millj-
ónir bíla, sem jafnframt þýddi að
kolefnisútblástur bíla yrði 6-700
milljónum tonna minni en hann
er nú. „En kolefnisútblásturinn
sem sparast við að koma bílum á
rafmagn skiptir ekki einungis máli,
heldur skiptir að sjálfsögðu miklu
máli fyrir loftslagið að orkan sem
notuð er í framleiðslu rafhlaðn-
anna sé græn. Framlagið til lofts-
lagsmála verður því meira eftir því
sem framleiðslan á rafhlöðunum
er umhverfisvænni,“ sagði Dagný
og bætti við að rafbílafram-
leiðandinn Tesla hefði lýst því yfir
að hann myndi einungis notast
við græna orku í sinni framleiðslu í
framtíðinni.
Dagný sagði mikil tækifæri fyrir
Ísland í rafhlöðuframleiðslu, sem
helguðust að hluta til af aukinni
sjálfvirknivæðingu framleiðslunn-
ar, sem fram að þessu hefði gert
hagkvæmara að staðsetja hana
á láglaunasvæðum í Asíu. Lands-
virkjun hefði þegar fengið fjölda
fyrirspurna um málið og landið
lægi vel við mörkuðum, jafnt í
Norður-Ameríku sem Evrópu.
Eftirspurn eftir
grænum rafhlöðum
Haraldur Hallgrímsson, for-
stöðumaður viðskiptaþróunar
hjá Landsvirkjun, benti á að árið
2018 hefðu Íslendingar flutt inn
680 þúsund tonn af jarðefnaelds-
neyti, það er bensín og olíur, fyrir
innlendar samgöngur. „Við notkun
þessa eldsneytis losnuðu um 1,7
milljónir tonna af koldíoxíði út í
andrúmsloftið og fyrir þennan
innflutning greiddum við um 50
milljarða króna, sem er sambærileg
upphæð og árleg útgjöld ríkissjóðs
til háskólanna á næstu árum,“
sagði hann. „Og ef við tökum flugið
með getum við rúmlega tvöfaldað
þessar tölur,“ bætti hann við.
Haraldur sagði að í þessari stað-
reynd fælist áskorun, en um leið
tækifæri. „Orkuskipti með grænu
vetni er raunhæft og spennandi
tækifæri fyrir okkur Íslendinga.
Vetni hentar alveg sérstaklega vel
til orkuskipta stærri farartækja í
samgöngum, þar sem rafvæðing er
ekki hagkvæm,“ sagði hann.
Haraldur benti á að með áræðni
og samvinnu innan lands sem
utan, gætu Íslendingar til dæmis
byggt upp framleiðslu á grænu
vetni og skapað nýja útflutnings-
grein. „Framleiðsla á grænu vetni
þarf hagkvæma endurnýjanlega
raforku í umtalsverðu magni, og þá
orku eigum við svo sannarlega hér
á landi. Tækni til framleiðslu, dreif-
ingar og notkunar á vetni innan-
lands er að verða samkeppnishæf.
Það er alveg ljóst að orkuskipti sem
fylgja vetnisvæðingu geta sparað
mikinn gjaldeyri og farið langleið-
ina með að gera landið kolefnis-
hlutlaust.“
Áskorun en
samt tækifæri
Ríkarður Ríkarðsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaþróunar-
og nýsköpunarsviðs Landsvirkj-
unar, benti á að þjóðin hefði áður
gengið í gegnum orkuskipti, þegar
hitaveita var lögð í hús á fyrri hluta
20. aldar. Hann sýndi fundargest-
um mynd sem var tekin af Tjörn-
inni upp úr 1930, þegar Reykjavík
var kolakynt og kola reykurinn sást
í bakgrunninum. Árið 1971 voru
98% Reykvíkinga tengd hitaveitu,
„en vegferðin þangað var allt
annað en sjálfsögð, enda var mikil
óvissa um að hitaveita væri tækni-
lega og samfélagslega raunhæf á
fjórða áratug 20. aldar.“ Hann sagði
að sambærilega sögu mætti segja
af rafvæðingu Íslands, sem hófst
með byggingu Sogsvirkjana um og
upp úr seinna stríði.
Nú væri þverpólitísk samstaða
um jarðefnaeldsneytislaust
Ísland 2050. Núverandi orkukerfi
og orkusækin starfsemi sem því
tengdist, væri stærsta framlag
Íslendinga til loftslagsmála,
sagði Ríkarður og ítrekaði þau
tækifæri sem væru til að halda
áfram á sömu braut. „Alþjóðlegar
breytingar skapa tækifæri og við
eigum þess kost að keppa á grund-
velli frábærrar orkuauðlindar
okkar, öflugs orkukerfis og áhuga
Íslendinga á orkumálum og fram-
lagi þeirra til umhverfis, samfélags
og efnahags,“ sagði hann.
„Hér er um að ræða risavaxið
verkefni og það er undir okkur
komið að móta framtíðina. Sam-
eiginleg ábyrgð okkar er að kynna
okkur málin og ákveða hvað við
viljum.“
Orkukerfið
stærsta framlagið
Sigurður H. Markússon, nýsköp-
unarstjóri hjá Landsvirkjun,
sagði matvælakerfi heims komið
að þolmörkum. „Eina stærstu
ástæðu þess að mannkyninu
hefur tekist að vaxa og dafna
eins og raun ber vitni, má rekja til
framfara í framleiðslu matvæla.
Í dag erum við um 7,7 milljarðar
og okkur mun fjölga fram á miðja
öldina, samkvæmt spám.
Samhliða því þarf matvæla-
kerfið að vaxa gríðarlega, eða um
eða yfir 50%. Þetta þýðir að við
þurfum að framleiða meiri mat
til ársins 2060 en samtals frá upp-
hafi landbúnaðarbyltingarinnar,
fyrir 10.000 árum,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði jafnframt að
þessi stærsta iðngrein í heimi
nýtti 37% alls gróðurlendis og
70% allrar ferskvatnsnotkunar
heims væru vegna hennar.
Matvælaframleiðsla í heim-
inum öllum væri því komin
að ákveðnum þolmörkum og
umhverfisfótspor matvælakerfis-
ins gríðarlegt – ekki bara með
tilliti til gróðurhúsalofttegunda,
heldur einnig áhrifa á lífríki jarðar,
eins og nýleg skýrsla Loftslags-
ráðs Sameinuðu þjóðanna benti
á.
Sigurður sagði að matvæla-
framleiðsla framtíðar yrði hins
vegar stýrt hátækniumhverfi. Hér
væru kjöraðstæður fyrir sjálf-
bæra matvælaframleiðslu og um
leið yrði að horfa til útflutnings,
rétt eins og gert væri í sjávarút-
vegi, enda væri íslenskur mark-
aður of lítill til að framleiðslan
borgaði sig.
Matvælakerfi komið
að þolmörkum
Vala Valþórsdóttir viðskiptaþró-
unarstjóri fjallaði um gagnaver,
sem eru afar orkufrek. Hún benti
á að hér á landi stæði þeim til
boða 100 prósenta endurnýjan-
leg orka, en þar að auki þyrftu
þau minni orku en víða annars
staðar vegna þess kalda loftslags
sem hér er.
Spáð væri 9 prósenta vexti á
ári hverju næstu árin í þessum
iðnaði, enda færi gagnanotkun
hraðvaxandi í heiminum.
„Þessi þróun mun halda áfram
í veldisvexti næstu árin og
ástæðan er einföld: Ekkert okkar
notar minna af gögnum í dag
en í gær og öll munum við nota
meira af gögnum á morgun en við
gerum í dag.“
Vala sagði að ljóst væri að í
þessum vexti gagnavera í heim-
inum væri eftir töluverðum við-
skiptum að slægjast fyrir Lands-
virkjun. „Gagnaver nota mikla
orku og raforka getur verið allt að
40% af rekstrarkostnaði þeirra.
Nýjustu spár sýna að hlutur
gagnavera af raforkunotkun í
heiminum mun fara úr 1% árið
2018 í 13% árið 2025.“
Vala sagði að samkeppni um
fjárfestingar í gagnaverum væri
gífurlega hörð á alþjóðavísu.
„En að mínu mati ætti Ísland
ekki að vera neinn eftirbátur
annarra þjóða í að laða þessa
starfsemi til sín, heldur þvert á
móti,“ sagði Vala og nefndi að nýr
gagna-sæstrengur milli Íslands
og Írlands væri afar flott verkefni,
sem myndi bæta samkeppnis-
hæfni Íslands til muna.
Mikill vöxtur í
starfsemi gagnavera
Framhald af forsíðu ➛ Við byggjum
auðvitað á sterk-
um grunni, því yfir 80%
af frumorkunotkun
Íslands eru sjálf bær.
Hörður Arnarson
2 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANDS