Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 36

Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 36
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða | Gagnheiði 35 | 800 Selfossi Sími 480 8500 / 860 2054 | raekto@raekto.is | raekto.is Jarðborar á ferðinni Vantar vatn eða varma? Borum eftir heitu og köldu vatni, varmadæluholur, rannsóknar- holur, metangasholur og sjóholur. Allt frá grunnum holum til djúpra og grannra til víðra. Erum með borverkefni í gangi víðsvegar um landið og mætum óskum verkkaupa um boranir hvar sem er. Endilega hað samband ef ykkur vantar holu. Áratuga reynsla við jarðboranir. Fyrir ungt fólk sem vill hafa áhrif til framtíðar og vinna að því að skapa hér sjálf­ bært og jarðefnaeldsneytislaust samfélag, þá þarf greiðan aðgang að grænni orku. Það er fyrirséð að vöxturinn í geiranum þarf að vera mikill, huga þarf að tækni­ nýjungum, framþróun og bættri nýtingu auðlinda okkar, til þess að geta sinnt orkuþörf framtíðarkyn­ slóða,“ segir Vordís Eiríksdóttir, formaður Jarðhitafélags Íslands og forstöðumaður rekstrar jarðvarma hjá Landsvirkjun. „Mér finnst gríðarlega spennandi að hugsa til þess að Ísland hafi raunveruleg tækifæri til þess að verða fyrst landa í heiminum til að losa sig alveg við bensín og olíur. Íslenska orkan okkar er lykillinn að grænni framtíð Íslands. Hver myndi ekki vilja taka þátt í þeirri vegferð?“ Sameinar uppáhaldsfögin Vordís hóf upphaflega nám í raf­ magnsverkfræði við HÍ og kláraði fyrsta árið. „Eftir það ár sá ég hins vegar að áhuginn minn lá ekki í rafmagnsfræðinni. Ég rakst þá á þetta nám, jarðeðlisfræðina, og sá að þar næði ég að sameina öll uppáhaldsfögin mín, stærðfræði, eðlisfræði og jarðfræði. Á síðari stigum bættist svo jarðhita áhug­ inn við og skráði ég mig í alla þá framhaldskúrsa í jarðhitavísind­ um sem ég fann. Það má svo segja að ég hafi náð að sameina þetta ágætlega í lokin því nú snýst starf mitt um að fram­ leiða rafmagn með jarðhita.“ Ótrúlega fjölbreytt starf Í starfi sínu sem forstöðumaður rekstrar jarðvarma hjá Lands­ virkjun, fær Vordís að leiða hóp frábærra starfsmanna sem sjá um rekstur þriggja jarðgufuvirkjana á Norðausturlandi, en það eru Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkj­ un og Gufustöðin í Bjarnarflagi. „Starfið er ótrúlega fjölbreytt og hver einasti dagur býður upp á nýjar og spennandi áskoranir. Fyrir nokkrum árum hefði ég ekki getað ímyndað mér að rekstur væri svona skemmtilegur, en ég hef alveg kolfallið fyrir starfinu og framtíðarsýn Landsvirkjunar og hlakka til hvers vinnudags.“ Miklar breytingar fram undan Orkugeirinn mun taka miklum breytingum á komandi árum og áratugum að sögn Vordísar, enda leikur hann lykilhlutverk í baráttunni við loftslagsvána. „Endurnýjanleg og græn orka mun verða verðmætari, vind­ orkan spilar stærra hlutverk og frekari nýting jarðvarmans og hliðarafurða aukast á komandi árum. Við eigum eftir að sjá f leiri sprotafyrirtæki og frumkvöðla vaxa innan geirans. Framþróun orkugeirans mun síðan styðja við frekari uppbyggingu á fjölbreyttu atvinnulífi víðs vegar um landið og opnar vonandi á ný tækifæri fyrir sveitarfélögin til uppbygg­ ingar.“ Vilja sjá meiri tengingu Vordís var kjör in formaður Jarðhita fé lags Íslands síðasta sumar og segist spennt fyrir starfinu fram undan. „Við vinnum nú að undirbúningi rafrænna fundaraða sem verða kynntar f ljótlega og ég hvet fólk til að fylgjast með. Hlutverk félagsins er að leiða saman fræðimenn á þessu sviði og það blasir við að við munum hafa fjölmargt að ræða á næstunni. Við viljum tengjast öðrum fræði­ mönnum innan lands sem utan og höfum einnig sérstakan áhuga á betri tengingu við háskólasam­ félagið.“ Spennandi starfsvettvangur í framtíðinni Mörg spennandi tækifæri eru fram undan í orkugeiranum hér á landi og því er hann tilvalinn vett- vangur fyrir ungt fólk til að stefna á, segir Vordís Eiríksdóttir, formaður Jarðhitafélags Íslands. Vordís Eiríks- dóttir, for- maður Jarðhita- félags Íslands og forstöðu- maður rekstrar jarðvarma hjá Landsvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Mér finnst spenn- andi að Ísland hafi raunveruleg tækifæri til þess að verða fyrst landa í heiminum til að losa sig alveg við bensín og olíur. 6 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANDS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.