Fréttablaðið - 30.01.2021, Qupperneq 39
Forstöðumaður rekstrarsviðs
Markmið og sýn LV er að vera eftirsóknar
verður og leiðandi lífeyrissjóður sem byggir
upp trausta fjárhagslega framtíð sjóðfélaga
eftir starfslok. Sjóðurinn veitir traustar og
áreiðanlegar upplýsingar sem miðast við þarfir
sjóðfélaga á hverjum tíma. Lífeyrissjóðurinn
ávaxtar fjármuni sjóðfélaga með gagnsæjum
og ábyrgum hætti.
Hjá LV starfa 50 starfsmenn og er lögð áhersla
á að bjóða upp á góða starfsaðstöðu og
vinnuskilyrði, jafnvægi milli vinnu og einkalífs
og að byggja upp liðsheild sem getur unnið
samhent að krefjandi verkefnum.
www.live.is
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) óskar eftir að ráða forstöðumann rekstrarsviðs í nýtt og
spennandi starf innan sjóðsins. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra og er viðkomandi hluti af
forstöðumannateymi LV.
Hér er einstakt tækifæri fyrir framsækinn breytingastjórnanda sem hefur metnað til að vinna með
samhentu og metnaðarfullum einstaklingum í að byggja upp nýtt og árangursmiðað svið innan
sjóðsins.
Undir forstöðumann rekstrarsviðs heyra 23 starfsmenn í 5 deildum: gæðastjórnun, skrifstofustjórnun
og mannauður, þjónustuver, skráning iðgjalda og lánadeild.
Helstu verkefni:
• Þróa og efla þjónustu sjóðsins, bæði ytri og innri, með áherslu á þjónustugæði og samræmda
aðkomu einstakra deilda.
• Ábyrgð á daglegum rekstri, uppbyggingu og þróun sviðsins.
• Móta, þróa og innleiða stefnu sjóðsins um stafræna þjónustu, samþættingu dreifileiða og umsjón
með gerð kynningarefnis.
• Umsjón með þróun og samræmingu lykilverkferla sjóðsins m.t.t. skilvirkni og gæða starfseminnar.
• Samræming og umsjón með upplýsingagjöf til sjóðfélaga og annarra haghafa, m.a. fjölmiðla.
Menntun og hæfni:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af stjórnunarstörfum og mannaforráðum.
• Farsæl og árangursrík reynsla af breytingastjórnun.
• Reynsla af þátttöku í mótun framtíðarsýnar og stefnu í rekstri.
• Þekking á stafrænni þróun.
• Þekking á gæðamálum og skilvirkni verkferla.
• Leiðtogahæfileikar, framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að byggja upp sterka liðsheild.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Hæfni til tjáningar í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Hilmar
Garðar Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is)
og Jensína K. Böðvarsdóttir
(jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Verkefnastjóri - verkfræðingur
– Betri samgöngur ohf.
Betri samgöngur ohf. er fyrirtæki sem
stofnað var til að hrinda í framkvæmd og
fjármagna uppbyggingu samgönguinnviða á
höfuðborgarsvæðinu fyrir um 120 milljarða á
næstu 15 árum. Markmið þess er að stuðla að
greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum
samgöngum með uppbyggingu innviða
allra samgöngumáta. Auk þess að vinna að
auknu umferðaröryggi og stuðla að því að
loftslagsmarkmiðum verði náð.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu og
upplýsingar um árangur sem viðkomandi
hefur náð og telur að nýtist í starfi.
Betri samgöngur ohf. leita að verkefnastjóra, með viðamikla reynslu af stjórnun verkframkvæmda, til
að taka virkan þátt í stórfelldri uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu, sem fela m.a. í
sér framkvæmdir við Borgarlínuna, göngu- og hjólastíga, umferðarstýringu og stofnvegaframkvæmdir.
Verkefnastjóri skal hafa skýra sýn á undirbúning og framkvæmd verkefna ásamt frumkvæði og
metnaði til að sýna árangur og kraft til að hrinda þeim í framkvæmd. Viðkomandi þarf að hafa sýnt
hæfni í samskiptum og samvinnu og reynslu og metnað til að ná árangri.
Starfssvið:
• Umsjón með heildstæðri áætlunargerð og áhættustýringu.
• Stýra ytri ráðgjöfum sem koma að verk- og kostnaðaráætlunum.
• Að rýna verk- og kostnaðaráætlanir frá ytri ráðgjöfum og verksölum.
• Eftirfylgni áætlana þ.m.t. að tryggja eins og kostur er að verk- og kostnaðaráætlanir gangi eftir.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í verkfræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfinu.
• Víðtæk og árangursrík reynsla af stjórnun framkvæmda og kostnaðareftirliti.
• Góðir samskiptahæfileikar.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsjón með starfinu hafa Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og
Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is).