Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 40

Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 40
Móttökuritari óskast til starfa Heilsugæslan í Lágmúla 4, óskar eftir að ráða móttökuritara í allt að 100% framtíðar starf. Ráðið er í starfið frá 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð • Símsvörun - tímabóknir – afgreiðsla við skjólstæðinga. • Önnur stoðþjónusta við stjórnendur og samstarfsfólk. • Uppgjör afgreiðslukassa. Hæfnikröfur • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Stundvísi og góð mæting til vinnu. • Reynsla af sambærilegum móttöku-/afgreiðslustörfum æskileg. • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði bæði töluð og rituð. • Góð enskukunnátta. • Almenn góð tölvukunnátta - excel, word og outlook töluvpóstur. • Þekking og reynsla á bókunar og skráningakerfinu Sögu er æskileg. • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Heilsugæslan áskilur sér rétt til að óska eftir staðfestingu á hreinu sakavottorði. Umsóknarfrestur er til miðnættis 7. febrúar 2021 Umsóknir óskast fylltar út á www.alfred.is - Móttökuritari á heilsugæslu Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristjana Þórey Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri thorey@hglagmuli.is Vilt þú vinna hjá frumkvöðlafyrirtæki í geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni? SÓL, sálfræði- og læknisþjónusta óskar eftir fagfólki til að starfa með öflugum hópi sérfræðinga í þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Við leitum að sálfræðingum, læknum, og félagsráðgjafa/ þroskaþjálfa/sérkennara til starfa í SÓL: • Leitað er að sálfræðingum til að sinna greiningu og með- ferð vegna taugaþroska-, hegðunar- og geðræns vanda barna og fullorðinna að 25 ára. Reynsla er æskileg en ekki skilyrði. Handleiðsla er í boði frá sérfræðingum í klínískri sálfræði. • Leitað er að barna- og unglingageðlæknum, barnalæknum og sérfræðingum í heimilislækningum sem hafa áhuga á að sinna börnum með taugaþroskavanda, hegðunar- og geðvanda. Leitað er að fullorðinsgeðlæknum til að sinna aldurshópnum 18-25 ára. Til greina kemur að ráða lækna úr öðrum sérgreinum og almenna lækna með áhuga. Handleiðsla er í boði frá sérfræðilæknum í SÓL. • Leitað er að áhugasömum starfskrafti með grunn t.d. í félagsráðgjöf, þroskaþjálfun eða sérkennslu sem getur sinnt ráðgjöf til foreldra og samskiptum við skóla og aðra þjónustuaðila. Handleiðsla er veitt af sérfræðingum. SÓL hóf starfsemi í byrjun árs 2017 með það að markmiði að bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ung- menni að 25 ára aldri. Hjá SÓL starfar fjölbreyttur hópur sál- fræðinga og lækna og byggt er á þverfaglegri teymisvinnu, gagnreyndum aðferðum og einstaklingsnálgun. Verkefni eru fjölbreytt og möguleikar eru á þátttöku í þróun nýrra úrræða. Fyrirspurnir berist til Ágústu Ingibjargar Arnardóttur sér- fræðings í klínískri sálfræði á netfangið agusta@sol.is eða til Steingerðar Sigurbjörnsdóttur barna- og unglingageð- læknis steingerdur@sol.is. Áhugasamir eru eindregið hvattir til að hafa samband. Heilbrigðisgagnafræðingur Starfið felst aðallega í skráningu, meðferð gagna og umsjón sjúkrarskrár, almenn ritarastörf og önnur aðstoð við lækna og stjórnendur. Stöðugt er unnið að bættum verkferlum og samvinnu milli starfseininga og er verkefnalisti því ekki tæmandi. Starfið hentar því afar vel lausnarmiðuðum og röggsömum einstaklingi sem þrífst í líflegu starfsumhverfi. Starfið fer fram á dagvinnutíma alla virka daga og starfshlutfall er eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Menntunar- og hæfniskröfur • Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða reynslu af starfi heilbrigðisgagnafræðinga • Próf í heilbrigðisgagnafræði áskilið (áður læknaritun) • Nákvæmni og röggsemi er skilyrði • Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með góða nærveru Um okkur Læknastöðin og önnur fyrirtæki innan Orkuhússins eru með alla sína starfsemi í nýrri og glæsilegri aðstöðu í Urðarhvarfi 8 í Kópavogi. Hjá Læknastöðinni starfa rúmlega 50 manns og við sérhæfum okkur í bæklunarlækningum. Árlega leita til okkar rúmlega 20.000 einstaklingar og við framkvæmum um 5.000 aðgerðir á ári. Við leggjum metnað okkar í að veita sem besta þjónustu og bjóðum upp á líflegt og gefandi starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri í síma 520 0100. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2021. Umsókn sendist á dagnyj@orkuhusid.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Allar umsóknir eru geymdar í sex mánuði frá því þær berast, eftir þann tíma er þeim eytt. Haft verður samband við umsækjendur ef fleiri störf losna á tímabilinu. Störf í boði hjá Orkuhúsinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.