Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 70

Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 70
Smávirkjanir Mannvit veitir víðtæka þjónustu vegna forathugana, áætlanagerðar og undirbúnings smávirkjana. Þjónustan innifelur undirbúningsrannsóknir, vatnamælingar, hönnunarvinnu og mat á umhverfi sáhrifum þar sem við á. Einnig veitum við þjónustu á sviði veituhönnunar og bortækni til jarðhitanýtingar. www.mannvit.is Eimur er sjálf bærni- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra, en mark- mið þess er að stuðla að bættri nýtingu orkuauðlinda svæðisins, að styðja við frumkvöðla og draga fram þau tækifæri svæðisins sem hafa sjálf bærni að leiðarljósi, segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Eims. „Landsvirkjun átti frum- kvæðið að verkefninu en það var sett á fót árið 2016. Ég og Ottó Elíasson hófum störf hjá Eimi í september 2020 og erum ráðin til þriggja ára. Stóra markmið okkar er að auka samkeppnishæfni svæðisins, svo við séum tilbúin fyrir áskoranir framtíðarinnar.“ Bakhjarlar Eims eru orkufyrir- tæki svæðisins, Landsvirkjun, Norðurorka og Orkuveita Húsa- víkur, ásamt SSNE. Á stuttum tíma hafa skapast mörg f lott tækifæri að hennar sögn. „Þar má til dæmis nefna Sumarskóla Eims sem hefur skilað inn metnaðarfullum hug- myndum á svæðið, meðal annars frá erlendum nemum. Einnig má nefna Crowdthermal-verkefnið, sem er alþjóðlegt rannsóknar- verkefni, styrkt gegnum Horizon 2020 rannsóknaáætlun Evrópu- sambandsins. Markmið þess er að ef la tækifæri Evrópubúa í að taka beinan þátt í þróun verkefna sem byggja á nýtingu jarðhita. Hlutverk Eims í þessu verkefni er að þróa hugmynd um samfélags- gróðurhús á Húsavík. Einnig hafa verið haldnar nýsköpunar- samkeppnir í nýtingu jarðvarma í matvælaframleiðslu og sam- keppni um nýtingu heita vatnsins úr Vaðlaheiðargöngum ásamt mörgum f leirum verkefnum.“ Byggja öflugt samfélag frumkvöðla Á næstu þremur árum vilja þau byggja upp öflugt samfélag frum- kvöðla á svæðinu. „Við gerum það með því að vinna með ólíkum Tilbúin undir áskoranir framtíðarinnar Á Norðurlandi eystra fer fram öflugt nýsköpunar- og þróunarstarf í gegnum sjálfbærni- og ný- sköpunarverkefnið Eim. Aðstandendur þess eru bjartsýnir á framtíð nýsköpunar í orkumálum. Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri, og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Eims. Hlutverk Eims er að þróa hugmynd um samfélagsgróðurhús á Húsavík. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON aðilum og búa til vettvang og byggja upp staðbundna þekk- ingu á svæðinu í nýsköpun. Einnig munum við sækja þekkingu í öflugt stuðningsnet nýsköpunar af höfuðborgarsvæðinu, sem er komið töluvert lengra en við á landsbyggðinni í þessum málum. Við viljum fá þau með okkur í lið ásamt atvinnuráðgjöfum svæðis- ins, öðrum nýsköpunarverk- efnum eins og Nýsköpun í norðri í Mývatnssveit og fleira kraftmiklu fólki.“ Einnig er stefnt á að sækja fjármagn í stóra, erlenda rann- sóknasjóði og nýta það fjármagn til að koma af stað öflugum hug- myndum sem auka samkeppnis- hæfni svæðisins. Hún gerir ráð fyrir mistökum á leiðinni en þannig læri þau best. „Mikilvægast er að gefast ekki upp heldur endurskoða hlutina og reyna aftur. Þótt eitthvað virki vel á höfuðborgarsvæðinu þarf það ekki að þýða sömu velgengni á Norðurlandi eða Suðurlandi. Okkur dreymir um að árið 2023 verðum við búin að byggja upp fjárhagsleg verðmæti, staðbundna þekkingu, sterkt stuðningsnet frumkvöðla, sérfræðiþekkingu í návígi við auðlindirnar og hafa skapað tækifæri til að sækja fjár- magn til f lottra verkefna í erlenda sjóði og að hafa aukið þannig sam- keppnishæfni landshlutans.“ Mörg spennandi tækifæri Nýsköpun í orkumálum felur í sér mörg spennandi tækifæri, að sögn Sesselju. „Hér er hreint vatn, hrein orka og mikið landsvæði. Tækifær- in liggja til dæmis í matvælafram- leiðslu með aðstoð hátækni og spennandi tækifæri eru fyrir hendi í framleiðslu á vetni eða metani sem orkugjafa.“ Mývatnssveit gæti orðið miðstöð jarðvarma- og eldfjallafræða í heiminum. „Þar er borhola sem er einstök á heimsvísu, því þar var borað ofan í eldfjallakviku á sínum tíma og hún gæti leitt af sér einstakt tækifæri fyrir vísindamenn og fræðimenn á þessum sviðum alls staðar að úr heiminum. Í Mývatni er gróskumikil þörungaflóra sem hefur mikið verið rannsökuð. Þá þekkingu má til dæmis nýta til ræktunar á þörungum og gera úr þeim öflug fæðubótarefni.“ Loftslagsmálin og umhverfis- málin kalla einnig á skapandi hugsun og endurnýjanlegir orkugjafar gegna lykilhlutverki í því samhengi, að hennar sögn og möguleikarnir takmarkast bara við ímyndunaraflið. „Nýsköpun á landsbyggðinni á heilmikið inni og er nýsköpun í sjálf bærni með nýtingu þeirra auðlinda sem hér er að finna, tækifæri sem við getum og ættum að grípa. Við viljum byggja ofan á það sem við höfum og finna tækifærin í því. Við erum bjartsýn á framtíð nýsköpunar í orkumálum og mjög spennt að takast á við nýjar áskoranir.“ Stóra markmið okkar er að auka samkeppnishæfni svæðisins, svo við séum tilbúin fyrir áskoranir framtíðarinnar. 8 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANDS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.