Fréttablaðið - 30.01.2021, Side 90

Fréttablaðið - 30.01.2021, Side 90
„Jæja,“ sagði Kata og glotti. „Við verðum of sein!“ Bætti hún við og hermdi eftir áhyggjurödd Konráðs sem óttaðist fátt meira en að vera of seinn. „Ég er búinn að heyra þetta of oft og nenni ekki að heyra það einu sinni í viðbót.“ Konráð byrjaði að Konráð á ferð og flugi og félagar 439 Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið?? ???malda í móinn en hætti svo við. „Það gerir ekkert til að vera aðeins of sein,“ sagði Kata. „Það er aftur á móti gaman að glíma við að finna rétta leið í gegnum völundarhús.“ Hún bretti upp ermarnar. „Koma nú, inn með ykkur, ég finn réttu leiðina og sannið þið til, við verðum ekkert of sein,“ sagði Kata roggin um leið og hún arkaði inn í dimm göng völundarhússins.  Akureyringurinn Jökull Bergmann Kristjánsson er tólf ára, verður þrett­ án í apríl. Hann er heima á miðjum, virkum degi og ég verð hissa. Er enginn skóli í dag? Nei, það er viðtalsdagur þar sem foreldrarnir mæta. Þá getur þú leikið þér í snjónum. Er það ekki áhugamál? Jú, það er eitt af þeim . Ég er snjóbrettastrákur. Hvað varstu gamall þegar þú byrj- aðir á bretti? Ég held ég hafi verið sjö ára en ég var oft búinn að vera uppi í fjalli á skíðum með mömmu og pabba. Hefurðu góðan brettakennara? Já, mjög góðan. Pabbi er brettakennari en þjálfar annan f lokk sem ég er í núna. Hefurðu áhuga á f leiri íþróttum? Ég æfi fótbolta og er líka á fjalla­ hjóli. Hefurðu meitt þig? Já, ég hef oft meitt mig en þó aldrei brotið mig. Ertu stundum hræddur? Já, ég hef verið hræddur en ég er samt dálítið í að gera hlutina og hugsa ekkert alltof mikið um þá því þá verð ég of hræddur. Áttu happatölu? Nei, en ég er með töluna 22 á fótboltabúningnum. Með hvoru liðinu spilarðu? KA eða Þór? Ég spila með A­liði KA á yngra ári. Þarftu ekki að borða hollt fyrst þú æfir svona mikið? Jú, ég þarf þess en geri það samt ekki alltaf. Fæ mér stundum pítsu. Hyggstu ná langt? Ég ætla mér að ná langt á snjóbretti, já. Hefurðu farið í keppnir á því? Já, oft. En mér finnst það ekki eins gaman og að vera með vinum uppi í fjalli. Ég verð svo stressaður. Þarf eiginlega tónlist til að róa mig niður því ég er með svo mikið keppnis­ skap. M a n s t u e f t i r e i n h v e r j u skrítnu sem hefur komið fyrir þig? Ég var einu sinni að gera bakk­tripp á snjóbretti og lenti skringilega – eiginlega á andlitinu og allt í einu var ég farinn að tala við sjálfan mig í huganum: Af hverju var ég að þessu? Þetta var eins og gert til að meiða mig. Oft meitt mig en þó aldrei brotið Jökull Bergmann ætlar sér að ná langt á snjóbretti. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Er samt dálítið í að gera hlutina og hugsa ekkert alltof mikið um þá því þá verð ég of hræddur. Listaverkið Úti í Eyjum nefnist þessi mynd eftir Mika-el Þór Árnason, 10 ára, sem fór í dagsferð til Vestmannaeyja síðasta sumar. 1 Hvaða þrjú mannanöfn geta sést út um gluggann? 2 Hvað er minna en mús og hærra en hús? 3 Hvar finnur þú vegi án bíla, skóg án trjáa og borgir án húsa? 4 Hvaða tröll eru til í veruleik- anum? 5 Hvað heyrir án eyrna, talar án munns og svarar á öllum tungu- málum? Gátur 1 Stígur, Steinn, Máni 2 Eldur 3 Á landakorti 4 Tryggðatröll 5 Berg- máliðSvör: 3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.