Fréttablaðið - 30.01.2021, Qupperneq 98
EF ÞÚ MEIKAÐIR ÞAÐ Í
PRÚÐULEIKURUNUM
ÞÁ MEIKAÐIRÐU ÞAÐ HVAR SEM
ER.
Sjónvarpsþættirnir The Muppet Show, eða Prúðu-leikararnir, sem runnir voru undan rifjum brúðu-meistarans Jim Henson, nutu mikilla vinsælda á
árabilinu 1976 og 1981 þegar Kermit
froskur, fröken Svínka, Fossi björn,
sænski kokkurinn og f leiri fyrir-
bæri létu gamminn geisa og móðan
mása í 120 þáttum.
Þegar áhorfið var sem mest var
talið að um 235 milljónir manna
hafi horft á þættina í yfir hundrað
þjóðlöndum í viku hverri og á
Íslandi voru Kermit og félagar fasta-
gestir á einu sjónvarpsstöð landsins
á föstudagskvöldum.
Börn og fullorðnir sátu sem límd
saman við skjáinn, þannig að The
Muppet Show vega þungt í ótal
bernskuminningum auk þess sem
margir tengja Prúðuleikarana við
það þegar litasjónvörp urðu stöðugt
algengari hjá almenningi, með til-
heyrandi dramatískum breytingum
á ásjónu litskrúðugs persónugaller-
ísins.
Lífið í lit
„Þættirnir byrjuðu fyrir alvöru
árið sem ég fæddist, 1976, og mínar
æskuminningar eru bara mest um
Prúðuleikarana af því að sjónvarpið
litar svo allar minningar og ég man
það til dæmis mjög skýrt og greini-
lega þegar við fengum litasjónvarp
í fyrsta skiptið,“ segir Kjartan Guð-
mundsson sem hefur haldið tryggð
við Prúðuleikarana allt sitt líf.
„Það fyrsta sem ég sá í litasjón-
varpinu var Prúðuleikararnir og
þú getur rétt ímyndað þér muninn
á Prúðuleikurunum í svart hvítu
og lit,“ segir Kjartan og bætir við að
hann hafi orðið fyrir einhvers konar
vakningu sem hafi í raun jafnast á
við trúarlega upplifun.
Komi Kermit fagnandi
Þættirnir hafa ekki verið neitt sér-
staklega aðgengilegir í seinni tíð
en Disney+ mun heldur betur gera
bragarbót á því 19. febrúar, þegar
allir fimm árgangarnir og 120 þættir
renna saman við streymið þar.
Kermit stöðvar tímans þunga nið
Kermit froskur, fröken Svínka, Fossi björn, sænski kokkurinn og allir hinir Prúðuleikararnir úr The Muppet
Show eru óumdeildur hápunktur í íslenskri sjónvarpssögu og hafa verið sjaldséðir í seinni tíð. Þetta breytist í
febrúar þegar Disney+ byrjar að streyma öllum 120 þáttunum, mörgum væntanlega til ómældrar ánægju.
Ballið byrjaði eftir að froskurinn Kermit ávarpaði brúður og fólk og bauð alla velkomna á sýningu kvöldsins þar sem
undrin gerðust í hverjum þætti. Fljótlega verður hægt að komast í 120 slík partí hjá Disney+. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Grínbjörninn
Fossi og eftir-
lætis Prúðu-
leikari Kjartans
leitar huggunar
hjá ekki minni
heiðursgesti
en sjálfri Diönu
Ross. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
Alice Cooper smellpassaði inn í
fjörugt persónugalleríið í leikhúsi
Kermits og fór mikinn í einum
uppáhaldsþætti Kjartans Guð-
mundssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ungfrú Svínka lét engan eiga neitt
inni hjá sér en vélmennið C-3PO
úr Star Wars komst nokkuð vel frá
nánum kynnum við hana, þegar
leikarinn Anthony Daniels fylgdi
Mark Hammill til fundar við Prúðu-
leikarana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þættirnir um
Prúðuleikarana
byrjuðu fyrir al-
vöru 1976, árið
sem Kjartan
Guðmunds-
son fæddist,
og hann
hefur reynt á
eigin skinni að
Prúðuleikar-
arnir virka jafn
vel á börn sem
fullorðna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
„Ég held þetta ætti að svínvirka,“
segir Kjartan, sem hámhorfði á alla
þættina fyrir nokkrum árum eftir
að hafa eignast þá á DVD í kringum
aldamótin.
„Þegar maður var krakki hafði
maður bara gaman af öllum þessum
litum og dúkkunum og öllu þessu.
Það er ekkert fyrr en seinna þegar ég
horfði á þetta allt aftur sem maður
fattar að þetta voru auðvitað ekkert
beint barnaþættir. Þetta voru bara
ógeðslega góðir gamanþættir fyrir
allan aldur og svo hefur maður lesið
að það var pælingin hjá Jim Henson
allan tímann.“
Góðir gestir
„Ég man alveg mjög skýrt eftir að
hafa horft á ákveðna þætti og þetta
eru fáránlega margar, skýrar minn-
ingar sem tengjast Prúðuleikur-
unum frá því maður var pínkulítill.
Ég man eftir að hafa séð Elton John
í þessum páfuglabúningi sínum að
spila Crocodile Rock.“
Og víkur þá talinu að mennsku
gestastjörnunum en ein slík mætti í
hvern þátt, oftar en ekki við mikinn
fögnuð bæði Prúðuleikaranna sem
og áhorfenda heima í stofu.
Gestaleikarar urðu sífellt frægari
eftir því sem á leið og auk Elton John
má til dæmis nefna Paul Simon,
Peter Sellers, Debbie Harry, Johnny
Cash, Roger Moore, Sylvester Stal-
lone, Twiggy og stjörnustríðsleikar-
ann Mark Hamill, sem mætti ásamt
vélmennunum C-3PO og R2-D2.
„Þátturinn með Alice Cooper er
nú einn af mínum uppáhalds,“ segir
Kjartan. „Ég meina Alice Cooper
mætir þarna og syngur bara Wel-
come to My Nightmare og þetta
small svo fullkomlega saman ein-
hvern veginn og ef þú meikaðir það
í Prúðuleikurunum þá meikaðirðu
það hvar sem er.“
Kjartan minnir á að Stallone var
þarna á hátindi frægðar sinnar og
rifjar síðan upp að Alice Cooper var
hikandi. „Hann var ekki alveg viss
um að það væri flott fyrir ímyndina
að vera þarna.“ Hann skipti hins
vegar snarlega um skoðun þegar
hann heyrði að meðal nýlegra gesta
væru hryllingsgoðsagnirnar og
leikararnir Vincent Price og Chri-
stopher Lee.
Fossi allra tíma
Þegar Kjartan er spurður hvort
hann eigi sér einhvern eftir-
lætis Prúðuleikara í gegnum árin
stendur ekki á svari. „Bæði þegar
ég var krakki og enn þá bara er ég
eiginlega hrifnastur af Fossa,“ segir
Kjartan, sem er örugglega ekki einn
um að hafa heillast af hjartahreina
og misheppnaða uppistandsgrínar-
anum Fossa birni.
„Það er bara eitthvað við það
hvað hann er einhvern veginn svo
óheppinn og ekkert sérstaklega
hæfileikaríkur í því sem hann vill
gera. En hann er svo góður og hann
reynir endalaust.
Það er líka erfitt að horfa fram hjá
Bikar. Hann er helvíti góður og þótt
hann segi ekki margt þá er hann
traustur þarna á kantinum,“ segir
Kjartan, um hinn taugaveiklaða og
sípípandi aðstoðarmann uppfinn-
ingamannsins Doktor Loga Daggar-
dropa. toti@frettabladid.is
Raforkukaupendur ON eru hæstánægðir
annað árið í röð.
Okkar er ánægjan!
3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ