Fréttablaðið - 30.01.2021, Side 100
Lífið í
vikunni
24.01.21-
30.01.21
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
FELDUR VENUSAR
Leikkonunni Eddu
Björgu Eyjólfs-
dóttur fannst
Roman
Polanski-
myndin
Venus in Fur
ekkert sér-
staklega góð,
en sá mikla mögu-
leika í samnefndu leikriti eftir Da-
vid Yves sem myndin byggir á og
ætlar sjálf að leika hina drottnandi
Venusi í pelsinum þegar hún setur
verkið á svið á næsta ári.
VEIRUBLÓM
Myndlistarmaður-
inn Viktor
Weiss-
happel
byrjaði
að mála á
ný þegar
faraldur-
inn skall
á og blóm
og náttúra
urðu óvart við-
fangsefni hans. Sýningunni hans,
Í blóma, lýkur í Gallery Porti um
helgina.
HUGLEIÐSLUDANS
Dansarinn Inga
Maren Rúnars-
dóttir snýr
aftur á
sviðið um
helgina
með dans-
verkið Ævi.
Verkið var
frumsýnt í haust
en síðustu sýningum var frestað
vegna COVID þar til nú. Áður
ætlaði hún að hætta eftir hverja
sýningu en með hugleiðslu komst
hún yfir sviðsskrekkinn.
CO ZA PORONIONY POMYSL!
„Hugmyndin var að búa til einhvers
konar skemmtilegt sjónarspil fyrir
Pólverja,“ segir Ólafur Ásgeirsson
hjá leikfélaginu PólíS sem frum-
sýndi leikrit hans Úff, hvað þetta
er slæm hugmynd! í Tjarnarbíói í
gærkvöld. Verkið er á pólsku enda
tilraun til þess að bjóða Pólverja
velkomna í leikhús á Íslandi.
Yusif Þór vonast til að fólk leggi söfnuninni lið með fótboltaskóm og fleiru sem nýtist.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Yusif Þór Bonnah er sjö ára strákur sem elskar fátt meira en fótboltann. Hann byrjaði að æfa þegar hann var aðeins tveg gja ára
gamall. Hann stendur nú fyrir söfn
un á fótboltaskóm og vatnsflöskum
fyrir börn í Kenía. Allt var þetta gert
að hans eigin frumkvæði og söfn
unin fer vel af stað. Mamma hans,
Linda Björg Magnúsdóttir sjúkra
liði og svæðanuddari, segir að Yusif
hafi alltaf verið uppátækjasamur og
fljótt ljóst að hann væri með hjarta
úr gulli.
Það var í nógu að snúast hjá Lindu
þegar blaðamaður náði á mæðginin.
„Ég átti fjóra stráka á sjö árum.
Yngsti er í leikskóla. Þannig að það
er nóg að gera,“ segir hún og hlær.
Byrjaði tveggja ára
Hún lýsir Yusif sem algjörum sjarm
ör, klárum dreng, hjartahlýjum,
gjafmildum og vinamörgum. Hann
hefur alltaf haft mikinn áhuga á
íþróttum og segir Linda að ef hann
fengi að ráða væri hann spilandi fót
bolta allan liðlangan daginn.
„Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar
ég var tveggja ára. Í fótboltanum
finnst mér skemmtilegast að sóla.
Mig langar að verða atvinnufót
boltamaður í framtíðinni,“ segir
Yusif Þór.
Yusif Þór fékk hugmyndina að
söfnuninni þegar hann heyrði vin
konu Lindu, móður hans, tala um
fátæk börn í Afríku, sem áttu meðal
annars ekki fótboltaskó þrátt fyrir
að stunda íþróttina.
„Þá sagði ég við mömmu: Ég á sko
fullt af skóm mamma, ég gef þeim
mína,“ segir Yusif Þór. Linda segir að
sonur hennar hafi í kjölfarið rokið
út um allt hús í leit að skóm. Hann
hafi náð að fylla ganginn af fót
bolta skóm af sér og bræðrum sínum
á engum tíma.
Gott að gleðja
Linda Björg á marga góða vini í og
frá Kenía. Yusif Þór fékk að spjalla
við fótboltaþjálfara og börn þar í
landi í gegnum myndbandsspjall.
„Eftir spjallið sagði hann við
mig: „Mamma, fáum þau bara til
okkar. Þau sem eiga ekki mömmu
og pabba, þau geta bara búið hjá
okkur.“ Ég spurði hann auðvitað
hvernig við ættum að koma þess
um börnum fyrir. „Við setjum bara
dýnur út um allt gólf, þá er pláss
fyrir alla.“ Ég reyndi þá að útskýra
að það væri kostnaðarsamt að koma
þeim til landsins. Þá kom hann með
hugmyndina að gefa út bók,“ segir
Linda, sem sjálf átti svipaða drauma
þegar hún var á sama aldri.
„Á þeim tíma gat ég lítið gert en
þessi tilfinning fór aldrei. Ég varð
móðir ung og eignaðist börn sem ég
er afar stolt af. Fyrir nokkrum árum
kynntist ég Maf lour og kærleiks
verkefni hennar sem heitir Loving
Act. Hún hefur staðið fyrir mögn
uðum hlutum. Það er svo æðislegt
að sjá fólk brosa.“
Nú í vor er því von á bók frá Yusif
Þór þar sem hann skrifar um ástríðu
sína fyrir fótboltanum.
„Margir krakkar þarna úti fara
að vinna til að styðja fjölskylduna
vegna fátæktar. Fótboltinn hefur
hjálpað krökkunum mjög mikið og
styrkt fjölskylduböndin. Foreldrar
hafa stundum komið og horft á og
jafnvel hvatt börnin áfram, sem er
mjög eflandi fyrir þau. En að lifa í
mikilli fátækt er mjög niðurdrep
andi fyrir alla foreldra. Að sjá von,
jákvæðni, umhyggju og skilning
getur skipt sköpum,“ segir Linda.
Hægt er að leggja Yusif Þór lið
með því að gefa fótboltaskó eða
vatnsbrúsa í söfnunina. Hægt er að
komast í samband við mæðginin á
Facebooksíðunni FótboltaÁstríða.
steingerdur@frettabladid.is
Safnar fótboltaskóm
fyrir börn í Kenía
Yusif Þór er sjö ára gamall og stendur nú fyrir söfnun á fótbolta-
skóm og vatnsbrúsum til að senda út til jafnaldra sinna í Kenía
eftir að hafa heyrt vinkonu móður sinnar ræða um skortinn þar.
AÐ LIFA Í MIKILLI
FÁTÆKT ER MJÖG
NIÐURDREPANDI FYRIR ALLA
FORELDRA. AÐ SJÁ VON,
JÁKVÆÐNI, UMHYGGJU OG
SKILNING GETUR SKIPT SKÖP-
UM.
Linda Björg
Janúar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Ótrúleg útsala í fjórum
búðum og á dorma.is
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
PURE COMFORT
fiberkoddi
Léttur, ódýr og
þægilegur
fiberkoddi.
Stærð kodda:
50x70cm. 700g.
Má þvo á 60°c..
Fullt verð: 3.900 kr.
Aðeins 3.120 kr.
PURE COMFORT
fibersæng
Létt og þægileg fibersæng.
Stærð: 140x200 cm. Sængin er 300g. Má þvo á 60°c
Fullt verð: 9.900 kr.
Aðeins 7.920 kr.
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð