Víðförli - 15.11.1987, Qupperneq 17
í byrjun ágústmánaðar sl. fékk Hjálparstofnun kirkjunnar
beiðni frá Alkirkjuráðinu í Genf um að senda föt til Suður-
Afríku handa flóttafólki frá Mósambík. Fjöldi flóttafólks
streymir yfir landamærin til Suður-Afríku hungrað og illa á sig
komið. Borgarastyrjöld er í Mósambík, mikill vöruskortur og
kemur flóttafólkið fatalítið yfir landamærin. Kalt hefur verið á
þessum slóðum og fólk dáið úr vosbúð, þess vegna er mikil þörf
á hlýjum fatnaði.
Beiðni Alkirkjuráðsins var svarað
strax játandi og landssöfnun á fatn-
aði fór fram dagana 27.—29. ágúst
sl. Nær allir söfnuðir landsins og
stór hluti þjóðarinnar tóku þátt í
þessari söfnun. Tekið var á móti föt-
um í flestum kirkjum landsins og sá
safnaðarfólk um móttöku á þeim.
Að aflokinni söfnun var fötunum
safnað saman í Breiðholtsskirkju
þar sem endanlegur frágangur á
þeim fór fram. Almennt var álitið að
Breiðholtsskirkja væri nógu stór til
að rúma allan þann fatnað sem safn-
ast myndi en þar reyndust jafnvel
bjartsýnustu menn hafa misreiknað
sig því þátttakan í söfnuninni var slík
að harðsnúið lið pökkunarmanna
varð að vinna hratt og vel við að
koma tilbúnum pökkum út úr kirkj-
unni og í gáma til að rýma fyrir nýj-
um fatnaði til pökkunar. Frágangur
á fatnaðinum var allur unninn í
sjálfboðavinnu. Það var fólk frá
söfnuðum, skiptinemasamtökun-
um, æskulýðsfélögum og einstakl-
ingar sem réttu okkur hjálparhönd.
70 tonn af fatnaði
AIls söfnuðust um 70 tonn af fatn-
aði. Áberandi var í hve góðu ástandi
fatnaðurinn var og það var auðsjá-
anlegt að gefendur höfðu lagt mikla
vinnu í að koma fötunum frá sér
hreinum og heilum. Fötin eru þegar
á leiðinni til Suður-Afriku og má bú-
ast við að þau nái áfangastað um
miðjan október. Samband íslenskra
samvinnufélaga sá um flutninginn
og veitti góðan afslátt af flutnings-
kostnaði. Heildarkostnaður vegna
söfnunarinnar verður um 1.4 mill-
jónir kr. Allflestir sem þátt tóku í
þessari söfnun vildu greiða undir
flutning á sínum fötum og þannig
fékkst fyrir öllum kostnaði. Segja
má að söfnunin hafi tekist vel í alla
staði.
Um miðjan ágúst gaf Rauði Kross
íslands 6 tonn af vetrarfatnaði sem
þeir áttu tilbúinn í Danmörku til
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Sá
fatnaður var sendur til Malawi og er
þegar búið að dreifa honum meðal
flóttafólks frá Mósambik. Það var
danska hjálparstofnunin sem sá um
flutninginn okkur að kostnaðar-
lausu og kunnum við báðum þessum
stofnunum bestu þakkir fyrir.
Það er enginn vafi á því að þessi
fatasöfnun hefur verið mikill ávinn-
ingur fyrir Hjálparstofnun kirkj-
unnar og er spor í rétta átt að vinna
stofnuninni aftur það traust sem hún
hafði í þjóðfélaginu. Vil ég nota
þetta tækifæri til að þakka innilega
Föt á
ferð
þá samvinnu sem við höfum við
söfnuði landsins og jafnframt þakka
öllum þeim sem lögðu okkur lið,
unnu óeigingjarnt starf og gerðu
fatasöfnunina að veruleika. Tryggj-
um rekstur Hjálparstofnunarinnar.
Jólin nálgast og fyrir þessi jól
verður sala á svokölluðum „friðar-
kertum“. Það er von mín að þau fái
fastan sess í jólaundirbúningi lands-
manna.
Prófsteinn okkar verður hin hefð-
bundna jólasöfnun „Brauð handa
hungruðum heimi“. Söfnunin verður
með svipuðu sniði og fyrri jólasafn-
anir. Hún hefst 6. desember n.k.
Verkefnin eru mörg sem bíða. Tug-
ir beiðna um aðstoð berast okkur
mánaðarlega bæði frá Lútherska
heimssambandinu og Alkirkjuráð-
inu. Þessar beiðnir eru m.a. vegna
hungursneyðar í Mósambík, flóða í
Bangladesh en þar eru hundruð
manna heimilisslausir, flóttamanna
o.fl. o.fl. Til þess að geta orðið við
þessum beiðnum verðum við að
tryggja rekstur Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Það er því mikið í húfi
að jólasöfnunin takist vel því með
þeirri söfnun ræðst framtíð Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar.
Sigríður Guðmundsdóttir.
VÍÐFÖRLI — 17