Víðförli - 15.11.1987, Blaðsíða 21

Víðförli - 15.11.1987, Blaðsíða 21
Aleinn heima Stundum fær Lalli að vera einn heima, að vísu ekki lengi í einu, en samt alveg einn. Það finnst Lalla mjög spennandi. Honum finnst hann vera orðinn stór, þegar hann verður að passa sig sjálfur. Mamma hefur margoft sagt hon- um hvað hann má ekki gera þegar hann er einn heima. Hann má ekki kveikja eld, ekki nota eldspýtur, ekki sjóða neitt á eldavélinni og ekki Ieika sér með vissa hluti. Lalli veit að mamma leggur svo mikla áherslu á þetta svo að hann meiði sig ekki þeg- ar hann er einn, og þess vegna fer hann eins vel eftir því og hann getur. Það er ekkert erfitt, því að það er svo margt annað skemmtilegt að gera þegar maður er aleinn heima. — Lalli, ég þarf að hlaupa út í búð að kaupa í matinn. — kallar mamma. — Getur þú verið heima og passað Soffíu? Hún sefur inni hjá sér! — Lalla finnst það enginn vandi að passa litlusystur þegar hún er sof- andi. Það er erfiðara þegar hún er vakandi, þá fer allt í háaloft. — Auðvitað get ég það — sagði Lalli og fannst hann vera orðinn stór og duglegur. — Mundu þá eftir því sem ég hef sagt að þú mættir ekki gera þegar þú ert einn — sagði mamma um leið og hún fór í kápuna. — Já, já — sagði Lalli. Hann hélt áfram að leika sér að lestinni sinni. Þá heyrði hann allt í einu að Soffía var farin að gráta. Hann þaut inn til hennar og sá að hún hafði dottið fram úr rúminu og hágrét svo undir tók í húsinu. Lalli reyndi að lyfta henni upp, en hún öskraði enn þá hærra þegar hann snerti hana. Skyldi hún hafa meitt sig. Nú varð Lalli hræddur. Hann reyndi að tala við hana og hugga hana, en hún grét bara meira. Hann gáði að marblettum eða sár- um, en fann ekkert. Nú vissi Lalli ekkert hvað hann ættu að gera. Hann var aleinn í öllu húsinu, nema náttúrlega Soffía litla, en það var ekki hægt að telja hana með því hún var bara smábarn. En allt í einu datt Lalla í hug að hann gæti beðið Jesú um hjálp. Þá var hann heldur ekki lengur aleinn með hágrátandi litlusystur. Lalli vissi nefnilega að þegar maður verður ofsa hræddur eða líður illa, þá er besta ráðið að biðja Jesú að vera hjá sér og hjálpa. Dyrabjallan hringdi. Lalla brá mikið því mamma hafði sagt að hann mætti ekki opna húsið fyrir ókunnugu fólki. Lalli læddist að úti- dyrunum og þá heyrði hann að mamma kallaði gegnum bréfalúg- una, — Vertu ekki hræddur Lalli minn. Það er bara mamma. Ég gleymdi lyklinum. Lalli opnaði dyrnar á augabragði og mamma kom inn. Soffia hætti að gráta þegar hún heyrði í mömmu en Lalli sagði í hljóði:— Þakka þér fyrir hjálpina Jesús. — VÍÐFÖRLI — 21

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.