Víðförli - 15.11.1987, Page 19

Víðförli - 15.11.1987, Page 19
Trond Kverno ræðir við Helga Bragason organleikara í Hafnarfirði í stuttu kaffi- hléi. Trond Kverno var einn af fyrirlesur- um á Sálmastefnunni. Hann kennir við norska tónlistarskólann, er í handbókanefnd kirkjunnar og sálmalög hans hafa hlotið miklar vinsældir. — Er sungið af gleði í norsku kirkjunni? Víða er það svo, en það er breyti- legt eftir landssvæðum. Við höfum því miður ekki þessa riku kirkju- kórahefð eins og þið íslendingar. Það ættu að vera 60.000 norðmenn í kirkjukórum til að jafnast á við ykk- ur,en það eru 5000 manns. — Fer sönggleðin vaxandi? Jú, sannarlega, þar er blómaskeið kirkjutónlistar. Margt að gerast í sálmasöngvum og því verður æ skemmtilegra að syngja með. Þessi þróun hófst eftir stríð og beinist jafnt að grallarasöng og nýrri form- um af kirkjukveðskap, vísur og vers köllum við það, við þau eru sett nú- tímalög sem hafa aukið sönggleðina. En því er ekki að neita að fyrir ýmsum lágkirkjumönnum eru gregorsöngvar sama sem kaþólska og það er næstum skammaryrði í hópum þeirra. — Hver er munur á sálmi og kirkjuvísu? Hann er ekki skýr. Þegar kirkju- vísan kemur inn í liturgiuna fær hún hins vegar svipmót kirkjusálmsins og verður auðvitað sálmur við það að prentast í sálmabók. — Hverjir hafa helst unnið að nýj- um sálmasöng í Noregi. Þekktustu skáldin eru Svein Ell- ingsen, Liv Nordhaug, Eyvind Skeie sem enn er á fertugsaldri og Tryggve Bjerkheim. Hann þýddi annan af sálmum Hallgrims Péturssonar sem er í norsku sálmabókinni, Víst ertu Jesú kóngur klár. Hinn er Allt eins og blómstrið eina. Valdimar Briem á þar líka sálm. Meðal tónlistarmanna má nefna Egil Hovland, þá Haraldana Gullichsen og Herresthal og svo lík- lega Trond nokkurn Kverno. — Hvenœr kom núverandi sálma- bók ykkar út? Hún er ný, kom árið 1985. Þangað til höfðum við bók frá 1924—26. Við gáfum út tilraunahefti 1972 með 134 sálmum og lögum, af þeim kom- ust rúmlega 100 í sálmabókina sem telur 900 sálma. Líklega féll þriðj- ungur sálmanna í gömlu sálmabók- inni brott. — Hvernig hefur nýju sálmabók- inni verið tekið? Yfirleitt vel. Helst er deilt um end- urskoðun gamalla sálma, þar sem orðalag er gert nútímalegra. Norsk- an hefur breyst meira en íslenskan. Spurt er hversu mikið tillit eigi að taka til hefðarinnar, hvort nota eigi sálma sem skiljast ekki fullkomlega, þar sem orðafar er fyrnt og gamal- dags. Sjálfur er ég ekki ánægður með þessar umyrkingar. Betra að fá nýja sálma á máli fólksins og halda hin- um gömlu óbreyttum. Málskiptingin hefur lika áhrif á sálmabókina. Með nokkrum undantekningum eru sálmarnir annaðhvort á bókmáli eða nýnorsku. — Hverjir eru draumar þínir um norskan kirkjusöng? Að söfnuðurinn verði kjarkmeiri við að reyna nýja tilraunaefnið og þora jafnframt að halda þvi sem best er í hefðinni. Og auðvitað að söngur- inn verði enn glaðari, bæði hjá safn- aðarfólki og kórum. I fréttum Per Lönning aftur biskup í Noregi. Það vakti mikla athygli í Noregi árið 1975 er Per Lönning biskup á Borg sagði af sér biskupsdómi í mót- mælaskyni við nýja löggjöf um fóst- ureyðingar þar í Iandi. Um árabil hafði Lönning verið einn helsti talsmaður kirkjunnar um hin margvíslegustu efni, enda tvö- faldur doktor, fyrrverandi þingmað- ur, þekktur íþróttamaður og kunn- áttumaður um geimrannsóknir. Frá 1975 hefur Lönning unnið að rann- sóknum á vegum Lútherska heims- sambandsins. Nýlega fór svo fram biskupsval í Björgvin og hlaut Lönning þar glæsilegri kosningu en dæmi eru til um langt skeið og hefur nú verið skipaður biskup þar. Aðspurður hvort aðstæður í fóst- ureyðingamálum hefðu breyst svo að hann gæti tekið aftur við biskups- dómi, svaraði Lönning: „Nei, bar- áttan fyrir mannlegu lífi hefur ekki hætt, hvorki fyrir fæðingu né þegar dauðann ber að garði. Jafnframt ber að berjast fyrir lagabreytingum með venjulegum pólístiskum aðferðum. Mótmælaaðgerðir verða að vera þess eðlis að þær efli jákvæða virkni og umhugsun.“ Söngbúðir í Skálholti Ölfuskórinn, sem eru kórar kirkn- anna í Hveragerðisprestakalli dvald- ist í Skálholti við söngæfingar um langa helgi nýlega og undirbjó vetr- arstarfið auk ferðar til ísrael um jól- in. Söngmenn komu með fjölskyld- ur sínar og var mikið líf á staðnum. Makarnir önnuðust matargerð og alla þjónustu svo að söngfólkið gat gefið sig óhindrað að æfingunum. Slíkir söngdagar efla mjög innra líf kóranna og bætir félagsanda auk hinnar góðu æfingar sem fæst. Um miðjan nóvember fagnar Kirkjukórasamband Árnesprófasts- dæmis 40 ára afmæli með tónleikum þar sem einvörðungu verða sungin verk eftir tónskáld upprunnin úr Árnesþingi. Má þá nefna: Pál ísólfs- son, Pálmar Eyjólfsson, Sigfús Ein- arsson, Sigurð Ágústsson og Einar Sigurðsson. VÍÐFÖRLI - 19

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.