Víðförli - 15.11.1987, Page 20
Fráfundi norðlenskrapresta áAkureyri. Fremsta röð f.v.: sr. Bjartmar Kristjánsson fyrrum prófastur, sr. Bolli Gústavsson íLaufási,
sr. Örn Friðriksson prófastur á Skútustöðum, sr. Sigurður Guðmundsson settur biskup, Hólum, sr. Sigurpáll Óskarsson Hofsósi,
sr. Kristján Valur Ingólfsson Grenjaðarstað, sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir Hrísey, sr. GuðniÞór Ólafsson prófastur Melstað. Mið-
röð: sr. Þórhallur Höskuldsson Akureyri, sr. Birgir Snœbjörnssonprófastur Akureyri, sr. Jón Helgi Þórarinsson Dalvík. Aftasta röð:
sr. Hjálmar Jónsson prófastur Sauðárkróki, sr. Bjarni Th. Rögnvaldsson, Prestsbakka, sr. Sighvatur Karlsson Húsavík, sr. PéturÞór-
arinssonMöðruvöllum, sr. SvavarÁ. Jónsson Ólafsfirði, sr. Robert Jackfyrrumprófastur, sr. PálmiMatthíasson Akureyri, sr. Vigfús
Þór Árnason Siglufirði, Þorsteinn Kristiansen œskulýðsfulltrúi og sr. Hannes Örn Blandon Laugalandi.
Málstofa í guðfræði
Oft hefur borist í tal á meðal guð-
fræðinga, vígðra jafnt sem óvígðra,
að tilfinnanlegur skortur væri á vett-
vangi fyrir guðfræðilega umræðu
hér á landi. Nú hefur Guðfræði-
stofnun háskólans í hyggju að ráða
nokkra bót á þessu með því að opna
málstofu í guðfræði á vetri kom-
anda. Að því er stefnt að veita guð-
fræðingum og guðfræðistúdentum,
sem lengra eru komnir í námi, tæki-
færi til að koma saman einu sinni í
mánuði yfir vetrarmánuðina, ýmist
til að flytja eða hlýða á fyrirlestur og
taka þátt í umræðum. Mikil áhersla
er á það lögð að öllum guðfræðing-
um er boðin þátttaka. Þarna á að
vera vettvangur til að kynna rann-
sóknir í guðfræði, hvar sem þær eru
stundaðar, innan veggja guðfræði-
deildar að sjálfsögðu, en alls ekki
síður utan veggja hennar.
Það færist í aukana að prestar í or-
lofi dveljist erlendis við guðfræði-
iðkan margvíslega. Þeir væru au-
fúsugestir í málstofu, þegar þeir
hverfa aftur heim. Kandídatar í guð-
fræði stunda framhaldsnám erlend-
is, oft um margra ára skeið. Þeir hafa
af mörgu að taka og miklu að miðla.
Aðrir, þótt heima sitji, eiga ýmislegt
í handraðanum, sem þeir hafa ekki
haft tækifæri til að kynna í hópi
kollega sinna. Fyrir þá gæti málstof-
an verið kjörinn vettvangur, m.a. til
að viðra hugmyndir og fá við þeim
viðbrögð, áður en lengra er haldið,
t.d. með birtingu á prenti. Málstofu
hefur verið valinn staður í Skólabæ,
húsi háskólans, Suðurgötu 26, en
þar er prýðileg aðstaða til samfunda
af því tagi, sem hér er haft í huga.
Málstofa verður opin í fyrsta sinn
þriðjudaginn 27. október n.k., en þá
mun séra Torfi Hjaltalín Stefánsson,
fil.lic., fjalla um rannsóknir sínar, en
hann skrifaði licentiatsritgerð í trú-
fræði við háskólann í Lundi á s.l.
vori, sem hann nefnir: Diskussion-
ene kring Anders Nygrens Motiv-
forskning. Fyrirlesturinn hefst kl.
16, en gert er ráð fyrir að málstofa
verði opin milli kl. 16 og 18.
Öðru sinni verður málstofa opin
þriðjudaginn 24. nóvember, en þá
mun sr. Kristján Valur Ingólfsson
flytja fyrirlestur. Efni hans verður
kynnt síðar.
Þriðjudaginn 26. janúar 1988 mun
dr. Hjalti Hugason, lektor, fjalla um
rannsóknir varðandi upplýsinguna á
íslandi.
Að svo mæltu eru prestar og aðrir
guðfræðingar boðnir velkomnir.
Látum hendur standa fram úr erm-
um. Eflum hag guðfræðinnar með
því að taka virkan þátt í málstofu í
guðfræði. Forstöðumaður Guð-
fræðistofnunar, dr. Björn Björns-
son, prófessor, veitir nánari upplýs-
ingar og tekur á móti óskum manna
um að flytja mál sitt á þessum nýja
vettvangi. Sími hans í háskólanum er
69 43 44.
20 - VÍÐFÖRLI