Víðförli - 15.11.1987, Blaðsíða 24
f fréttum
Biblían best á vörusýningu.
Stærsta vörusýning Norðmanna
er svonefnd „Gimlimessen“. í sumar
fékk norska Biblíufélagið verðlaun
fyrir besta upplýsingabásinn þar.
Biblíufélagsmenn sögðust vilja
gera fólki það Ijóst að Biblían hefur
boðskap að flytja í öðrum messum
en í kirkjunni, leigðu því stóran bás
sem dró að sér mikla athygli. Póstur
og sími fékk önnur verðlaun og sam-
tök skipasmíðastöðva þau þriðju.
Reynsla frá þessari „messu“ segja
Biblíufélagsmenn, ætti að draga úr
kvíða fólks að fara með Biblíuna út
á „torgin“.
Organistar í fullt starf
Nokkrir organistar eru nú í fullu
starfi við kirkju. Fyrstur var Jón
Stefánsson: Langholtskirkju og síð-
an þeir dr. Orthulf Prummer í Há-
teigskirkju og Björn Steinar Sól-
bergsson við Akureyrarkirkju. Ný-
lega var Þröstur Eiríksson ráðinn að
Garðakirkju. Verksvið hans verður
að leika við messur og athafnir bæði
í kirkju og hinum ýmsu stofnunum í
prestakallinu, taka þátt í fermingar-
starfi og barnastarfi og þjálfa
kirkjukór. Auk þess er honum ætlað
að hafa frumkvæði í tónlistarlífi
safnaðarins og standa fyrir sem fjöl-
breytilegustu starfi á sínu sviði.
Ann Torild Lundstad sem gegndi
með Þresti starfi organleikara í
Laugarneskirkju annast það starf nú
ein. í Seljasókn hefur Kjartan Sigur-
jónsson verið ráðinn tónlistarstjóri
og Örn Falkner til Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði. Jónas Þórir verður org-
anleikari Bústaðasóknar í vetur í
leyfi Guðna Þ. Guðmundssonar. Jó-
hann Baldvinsson hefur verið ráðinn
organisti hjá Glerárprestakalli á Ak-
ureyri. Jóhann hefur nýlokið þriggja
ára námi í Aachen í Þýskalandi.
Biblíuleshópur aldraðra
Á vegum Félagsmálastofnunar
Kópavogs starfar Biblíuleshópur
sem kemur saman aðra hverja viku
og er nú að hefja fimmta starfsár
sitt. Sr. Magnús Guðjónsson er leið-
beinandi, en mikil áhersla er lögð á
Þátttakendur í námskeiði Æskulýðsstarfsins í Skálholti upplifa gleði hins skapandi
starfs, sem ætti að vera burðarás í öllu félagsstarfi.
umræðu og að þátttakendur deili
reynslu sinni og viðhorfum. Nær
þrjátíu manns sækir þessar samver-
ur reglubundið.
Á fyrsta fundi þessa starfsárs voru
um fimmtíu manns og kom þar fram
hjá þátttakendum hversu mikils virði
slíkar samkomur væru öldruðum til
fræðslu, helgihalds og samfélags.
„Ég ólst upp við heimilisguð-
rækni. Þegar ég fór að heiman
fannst mér ég lenda í tómarúmi og
það er ekki fyrr en á þessum fundum
að ég hef fengið það aftur, sem ég
finn núna að ég hef saknað alla
ævi,“ sagði einn þátttakendanna.
Fyrsta kirkjuhljómsveitin
hérlendis.
Stofnuð hefur verið Kammersveit
Háteigskirkju. Er hún skipuð 9
strengjaleikurum, flestum úr sin-
foníuhljómsveitinni, en stjórnandi
er dr. Orthulf Prunner organleikari
kirkjunnar. Hljómsveitin æfir viku-
lega og mun koma fram a.m.k. 5
sinnum á ári. Að sögn dr. Prunners
verða þar á meðal tvennir tónleikar
með verkefnum, sem hæfa helgum
stað um jólin og vorkomu, en þrisvar
verður leikið við athafnir í kirkj-
unni, og þá flutt úrvals verk kirkju-
tónlistar.
Hljómsveitin tekur einnig að sér
að leika annars staðar, enda mun
hún eiga æfð verk á takteinum sem
henta öllum kirkjulegum athöfnum.
Hinar reglubundnu æfingar tryggja
tengsl tónlistarmanna við kirkjuna
og skapa þá tiltmningu fyrir sér-
stöðu tónlistarflutnings í kirkju sem
er nauðsynleg í kirkjutónlist segir dr.
Orthulf Prunner.
Kirkjan greiðir æfingastyrki,
styður við nótnakaup og kynningu.
En greiðslur vegna flutnings tón-
verka verða skv. taxta F.Í.H.
Norrænir söngvarar
flytja Lilju
Á menningarhátíð í Lillehammer í
Noregi var nýverið flutt Oratoría um
Lilju Eysteins Ásgrímssonar.
Tónlistin er eftir Kjell Mörk Karl-
sen en norska þýðingin eftir Knut
Ödegard. Hann var einnig einn af
fyrirlesurunum. Erindi hans um
miðaldirnar og jarðveginn sem Lilja
varð til úr, var mjög rómað. Finnskir
og íslenskir söngvarar fluttu þetta
oratorío ásamt heimamönnum.
Sönghópurinn Hljómeyki söng þar
fyrir íslands hönd auk þess sem þau
komu fram á Olafsvöku sem haldin
var jafnhliða og stóðu sig með mik-
illi prýði. Þar flutti sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson ræðu um kristnitöku
og kristnilíf nú á íslandi. Að sögu
hans lokinni var flutningurinn á
Lilju mjög áhrifaríkur. Öll 100 er-
indin voru flutt af kór lesara og ein-
söngvara.
24 — VÍÐFÖRLI