Víðförli - 15.12.1989, Blaðsíða 7

Víðförli - 15.12.1989, Blaðsíða 7
Vistmernn eru leikendur. fannst ölllum svo gaman að syngja. í blaði, er málfundafélagið Ljósið í Bjarkarási gaf út, skrifar einn vist- manna um jólaundirbúning þannig: „Starfsfólkið byrjar að ræða um jólahátíðina í nóvember. Stundum höfum við æft leikrit, t.d. helgileiki, og svo ýmiss konar önnur leikrit eins og t.d. þau sem gerast í þaðstofum eins og í gamla daga. Fyrst þegar ég var í Bjarkarási lék starfsfólkið og við með og þá voru útbúnir aðventu- kransar og við kveiktum á kertunum á mánudögum í stað sunnudaga. Um miðjan desember byrjuðum við að útbúa jólaföndur í skólanum sem við svo setjum í pakka og förum með heim. Við bökum laufabrauð hjá Þórunni matreiðslukennara. Kenn- ararnir og starfsfólkið fletur út kök- urnar en við gerum mynstrin og sker- um í þær. Á meðan við gerum allt þetta eru spiluð jólalög. Við förum heim með laufabrauðskökurnar. Við búum líka til jólakort og skrifum á hér og svo eru þau látin í póstkassa í Bjark- arási. Magga ráðskona byrjar að baka fyrir jólagleðina okkar sem er síðasta kvöldið fyrir jólafríið. Solla vefur grenikrans sem er voða langur og hengdur upp í kringum dagstofugluggann í Bjarkarási. Á kransinn eru hengdar jólaseríur með mismunandi ljósum. Svo útbýr Solla jólaskreytingar með kertum sem lika eru í dagstofunni og í borðstofunni. Gréta skreytir jólatréð og húsið. Fyr- ir jólin höfum við líka safnast saman í dagstofunni á hverjum degi fyrir matarhlé og æft okkur á jólasálm- unum, svo við getum sungið vel á jól- unum. Á jólagleðina kemur alltaf prestur og hefur jólahugleiðingu og við syngjum.“ Miklar og örar breytingar á hög- um vangefinna hafa átt sér stað, og þá hef ég sérstaklega í huga hin breyttu búsetuform. í stað vistheim- ila koma sambýli og íbúðir, en ég hef merkt það í viðræðum við þá vist- menn er hjá mér dvelja og búa á sam- býlum, að kirkjusókn þeirra á að- ventu er mjög almenn. Undirbúningur jóla á sambýlun- um er síður en svo frábrugðinn því sem gerist á öllum venjulegum heim- ilum. Vangefnir taka við jólaboðskapn- um með opnum hjörtum og opnum huga, með þeim möguleikum sem hverjum og einum er gefið. Ég hef svo oft fengið að upplifa ólýsanlega gleði og alvöru, friðinn á himni og jörðu og velþóknun Guðs með okk- ur mönnum í samveru með vangefn- um vinum mínum og þau hafa kunn- að að segja í einlægni, Gleðileg jól. Greta Bachmann. Foreldrafræðsla. Að beiðni Fræðsludeildar hefur Húnavatnsprófastsdæmi skipað starfshóp til að huga að fræðslu for- eldra skírnarbarna eftir skírnina. Er þá haft í huga að söfnuðir bjóði upp á fræðslusamverur fyrir foreldrana um trúaruppeldi. í starfs- hópnum eru: Elín Einarsdóttir kennsluráðgjafi Blönduósi, Guðrún Bjarnadóttir kennari Húnavöllum og sr. Stína Gísladóttir Bólstaðar- hlíð. Hópurinn starfar með sr. Guðna Þór Ólafssyni prófasti. Fræðsludeild hefur skrifað ýms- um prófastsdæmum og óskað eftir samvinnu við framkvæmd margvís- legra fræðsluverkefna, m.a. með skipun starfshópa er vinna fræðslu- efni og reyna það heima í héraði. 40—50 fermingarkyrtlar gefins Kvenfélag Langholtskirkju er að endurnýja fermingarkyrtla sína. Nýju kyrtlarnir eru úr öðru efni og sniði en þeir eldri. Þeir gömlu, sem margir hverjir eru í ágætu standi, í stærð 36—44, eru boðnir að gjöf þeim sem þurfa. Margrét Leósdóttir veitir upplýs- ingar í síma 685485 á kvöldin. Námskeið fyrir sóknarnefndir og starfsfólk safnaða Að frumkvæði Leikmannastefnu hefur verið efnt til námskeiða fyrir leikmenn í kirkjulegri þjónustu. Fjallað hefur verið um erindisbréf, starfskýrslur sóknar, reikningsform og reikningshald, samskipti innan safnaða og kynningarmál. Nám- skeiðin eru skipulögð eftir beiðni prófastdæma og hafa þeir dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor, Helgi Hjálmsson viðskiptafræðingur og sr. Bernharður Guðmundsson fræðslustjóri annast fræðslu, nú síð- ast í Múlaprófastsdæmi, Reykjavík- urprófastsdæmi og Austfjarðar- prófastsdæmi. í Árnesprófastsdæmi var haldið slíkt námskeið í Skálholti nú í haust og önnuðust nokkrir prestar próf- astsdæmisins fræðsluna. Áformuð eru framhaldsnámskeið enda mikil þörf fyrir slíka Leikmannafræðslu. VÍÐFÖRLI — 7

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.