Víðförli - 15.12.1989, Qupperneq 10

Víðförli - 15.12.1989, Qupperneq 10
Frá Hjálparstofnun kirkjunnar Brauð handa hungruðum heimi Um þessar mundir er að hefjast hin árlega landssöfnun Hjálp- arstofnunar kirkjunnar. Eins og mörg undanfarin ár ber söfnun- in yfirskriftina „Brauð handa hungruðum heimi“. í byrjun des- ember var gíróseðlum og söfnunarbaukum dreift inn á öll heimili í landinu. Það er von okkar að sem flestir taki þessari beiðni vel í ár eins og undanfarin ár og leggi Hjálparstofnun kirkjunnar lið. Á þessu ári eru 20 ár síðan ákvörð- un um stofnun Hjálparstofnunar kirkjunnar var tekin. Á þessum tímamótum er ekki úr vegi að rifja upp tildrögin að þessu framtaki og líta yfir farinn veg. Það var á Prestastefnu árið 1969 að prestar samþykktu að verja 1% launa sinna til hjálparstarfa í fátæk- um löndum. Þar með lögðu þeir hornsteininn að stofnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Frumkvöðull þessa framtaks var dr. Sigurbjörn Einarsson biskup. Kirkjan hafði áð- ur veitt nauðstöddum aðstoð, en nú þótti ástæða til að kirkjan hæfi skipulegt hjálparstarf, eins og tíðk- ast hafði lengi í nágrannalöndunum. Frá upphafi tóku landsmenn kalli Hjálparstofnunar kirkjunnar vel og sýndu það með fjárframlögum sín- um að þeir skildu mikilvægi þessarar starfsemi. I þau 20 ár sem stofnunin hefur starfað hafa framlög þjóðar- innar til hennar ævinlega verið rausnarleg. í Iandssöfnuninni fyrir síðustu jól söfnuðust um 20 milljón- ir króna. Verkefni þessa árs Hjálparstarf Hjálparstofnunar kirkjunnar hefur aukist mikið á undanförnum 20 árum, enda hefur þörfin fyrir aðstoð því miður síst far- ið minnkandi. Á árinu sem nú er að ljúka hefur Hjálparstofnunin tekið þátt í hjálparstarfi í tæpum tug landa, í Asíu, Afríku og S-Ameríku. Sú stefna hefur verið mótuð að velja annars vegar lítil sjálfstæð verkefni og hins vegar að taka þátt í samstarfsverkefnum með öðrum hjálparstofnunum. Helstu sam- starfsaðilar erlendis eru systurstofn- anir á Norðurlöndunum svo og Lút- herska heimssambandið og Al- kirkjuráðið. Meðal þeirra verkefna sem Hjálp- arstofnunin tók þátt í á þessu ári voru matvælasendingar til nauð- staddra í Suður-Súdan. Borgara- styrjöldin þar í landi hefur Ieitt til langvarandi hungursneyðar. Hjálp- arstofnanir kirkna víða í heiminum hafa haldið uppi Ioftbrú frá Nairobi í Kenya til Juba í Suður-Súdan um langt skeið og með því komið í veg fyrir hungur þúsunda manna. Hjálparstofnunin tók einnig þátt í hjálparstarfi í Armeníu eftir jarð- skjálftana sem þar urðu í Iok síðasta árs og er mörgum enn í fersku minni. Fjöldi hjálparaðila lagði þar hönd á plóginn. Héðan voru send teppi og matvæli til jarðskjálftasvæðisins. Á Indlandi eru tvö verkefni í gangi á vegum Hjálparstofnunar kirkj- unnar. Þar erum við að byggja heim- ili fyrir vangefin börn og er ætlunin að styrkja einnig rekstur heimilisins fyrstu árin. Við sendum einnig skólastyrki til fátækra barna á Ind- landi. Hér er um að ræða á annað hundrað börn sem nú fá tækifæri til að ganga í skóla. Verkefni þetta er fjármagnað af fyrirtækinu Kaup- þingi og ýmsum einstaklingum, en Hjálparstofnunin hefur milligöngu um að senda peningana áfram til Indlands. Síðastliðiö vor barst Hjálpar- stofnuninni beiðni frá kirkjudeild- um í Brasilíu um fjárhagsaðstoð vegna útgáfu fræðsluefnis um um- hverfismál fyrir kirkjur í landinu. Regnskógarnir í Brasilíu eru í mikilli hættu vegna mengunar og ágangs af manna völdum. Eyðing þeirra hefur alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir Iífríkið í landinu. Kirkjan í Brasilíu starfar á breiðum grunni og er í góðri aðstöðu til að vekja fólk til umhugsunar og hjálpa því að sporna gegn hinni óheillavænlegu þróun. Með stuðningi Hjálparstofnunar kirkjunnar tókst að ljúka þessari út- gáfu. I Lesotho í Afríku styrkjum við átak gegn ofneyslu áfengis. Áfengis- vandi er mikill þar í landi, og má m.a. rekja þetta vandamál til hins hrikalega atvinnuástands sem þar er. Átakið felst í fræðslu um afleiðingar fíkniefnanotkunar og ofneyslu áfengis, auk þess sem áfengissjúkl- ingum er boðið upp á meðferð og ráðgjöf. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur skuldbundið sig til að styrkja þetta verkefni í að minnsta kosti 3 ár. Eins og sjá má af þessari upptaln- ingu eru verkefni Hjálparstofnunar- innar margvísleg, bæði stór og smá. En öll miða þau að því að bæta lífs- kjör þeirra sem líða skort eða eiga undir högg að sækja. Starfið framundan Það er einnig mikið starf fram- undan hjá okkur. Þar má nefna sam- starf við Kristniboðssambandið um að reisa heilsugæslustöð i afskekkt- um dal í Eþíópiu. Fram til þessa hef- ur ekki verið nein heilsugæslustöð í dalnum, en fjöldi alvarlegra sjúk- dóma herja á íbúana. 10 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.