Víðförli - 15.12.1989, Qupperneq 17

Víðförli - 15.12.1989, Qupperneq 17
létu hvorki óhreinindin né kuldann á sig fá. En þessa nótt fæddi Maria barnið sitt. Hún vafði um það þeim flíkum, sem hún hafði við höndina, og lagði það í jötuna. Úti í haganum í grenndinni voru fjárhirðar, sem vöktu yfir fé sínu. Nóttin var dimm og allt var kyrrt og hljótt, nema þegar lamb jarmaði í myrkrinu. En skyndilega Ijómaði skært ljós í kring um þá — svo skært, að þeir fengu ofbirtu í augun. Þeir grúfðu sig niður, dauðskelkaðir. Þá birtist engill Guðs og sagði við þá: „Verið óhræddir, því ég flyt ykkur gleðifréttir, og öllum mönnum. Frelsarinn er fæddur í Betlehem — konungurinn, sem Guð hét að senda, Kristur. Þið munuð finna þar ung- barn, sem liggur í jötu.“ Allt i einu sáu þeir ótal engla, sem sungu Guði dásamlegan lofsöng: „Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu hjá mönnunum sem Guð elskar.“ Svo hurfu englarnir, og nóttin varð niðdimm á nýjan Ieik, og hirð- arnir sögðu hver við annan: „Við skulum flýta okkur til Betle- hem og sjá þetta.“ Þeir gengu úr skugga um að féð væri óhult og hröðuðu sér síðan til bæjarins. Þeir fundu Mariu og Jósef i fjárhúsinu — og ungbarnið litla í jötunni, — allt eins og engillinn hafði sagt. Þeir sögðu Maríu og Jósef hvað þeir höfðu séð og heyrt, og sneru svo aftur út i hagann, en á leiðinni sögðu þeir öllum, sem á vegi þeirra urðu, frá barninu í jötunni og því, sem englarnir sögðu um það. Þeir voru svo glaðir, að þeir sungu hátt og alla ævi minntust þeir þessarar nætur með gleði og þakklæti til Guðs. Úr Barnabiblíunni. VÍÐFÖRLI — 17

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.