Víðförli - 15.12.1989, Page 28
Fermingarbörn frá Hafnarfjarðarkirkju og Fríkirkjunni í Hafnarfirði með fermingarfrœðurum sínum þeim sr. Gunnþóri Ingasyni
og sr. Einari Eyjólfssyni fyrir utan Skálholtskirkju að loknu velheppnuðu námskeiði í Skálholti í október sl.
Þankar um
fermingarbarnanámskeið
Nú eru fermingarnámskeið Kjal-
arnesprófastsdæmis í Skálholti ný-
afstaðin. Er engum blöðum um það
að fletta að námskeiðin tókust mjög
vel. Bæði börn og foreldrar hafa lýst
yfir ánægju sinni. í könnun meðal
foreldra í Garðabæ kom t.d. í ljós að
það eftirminnilegasta í hugum barn-
anna eftir dvölina í Skálholti var
hversu prestarnir og leiðbeinendurn-
ir hefðu verið skemmtilegir, myrkrið
í kvöldgöngunni og guðsþjónustan
og helgihaldið í kirkjunni. Þetta eru
mjög jákvæðar niðurstöður. Þá hafa
prestar og starfsfólk lýst yfir ánægju
sinni.
Tildrög
Upphafið að þessum fermingar-
barnanámskeiðum má rekja til þess
að prófastur Kjalnesinga kom að
máli við Skálholtsrektor. Hugmynd-
in var sú að skipuleggja námskeið
fyrir fermingarbörn, sem væru á
nokkurn annan veg en verið hefði.
Ferðalög með fermingarbörn hafa
oft verið hreinar skemmti- og skáta-
ferðir. Nú skyldi hins vegar skipulagt
námskeið fyrir fermingarbörn, þar
sem saman færu skemmtilegheit og
trúarupplifun. í stað venjubundinn-
ar kennslu, yrði fræðslan í formi
skapandi vinnu og upplifunar. Svo
virðist sem með þessari hugmynd
hafi naglinn verið sleginn á höfuðið.
Fræðsludeild kirkjunnar var fljót-
lega fengin með í málið til að skipu-
leggja dagskrá og útvega starfsfólk.
Allt var þetta gert með góðum fyrir-
vara, enda tókst að fá mjög gott fólk
til starfa, sem er lykilatriði við þessi
velheppnuðu námskeið. Einnig sá
Fræðsludeildin um að útbúa bækl-
ing og kennsluefni fyrir námskeiðin.
Ákveðið var að börnin fengju í hend-
urnar bækling, sem væri í senn
fræðsla og minning um góða dvöl.
Bæklinginn nefndum við „Eigi
stjörnum ofar“, í samræmi við það
að boðskapur námskeiðanna var sá
að Guð er nálægur. Fyrir utan sam-
nefndan sálm var í bæklingnum
fræðsla og auðar síður, „mundu
mjg, ég man þig“, þar sem börnin
gátu safnað í nöfnum þátttakend-
anna.
Þriggja manna framkvæmda-
nefnd sá öðrum fremur um skipu-
lagninguna og framkvæmdina. í
nefndinni áttu sæti þeir Gunnlaugur
Garðarsson, prestur í Kjalarnespró-
fastsdæmi, Sigurður Árni Þórðar-
son, rektor í Skálholti og Magnús
Erlingsson, fulltrúi Fræðsludeildar.
Skipulag
Góður árangur á námskeiðunum
varð m.a. vegna þess hversu vel við
vorum mannaðir. Fjórir leiðbein-
28 — VÍÐFÖRLI