Víðförli - 15.12.1989, Síða 31
I 90 ár hafa KFUM og KFUK í
Reykjavík haldið uppi fjölbreyttu
kristilegu starfi, fyrst lengi vel aðeins
í miðborg Reykjavíkur, en síðan hafa
verið byggðar upp starfsstöðvar í
nýjum hverfum. í vetur er rekið
barna- og unglingastarf á nærri 10
stöðum ýmist í félagshúsum, skólum
eða kirkjum. Nýlega var hús félag-
anna við Amtmannsstíg 2b selt rík-
inu og framundan er því það stór-
verkefni að byggja nýjar aðalstöðvar
fyrir félögin. Til að fá nánari fréttir
af félagsstarfinu var leitað til Mál-
fríðar Finnbogadóttur formanns
KFUK og Arnmundar Kr. Jónasson-
ar formanns KFUM.
— Helsta verkefni stjórna félag-
anna í vetur verður að ganga frá
framtíðarskipulagi fyrir aðalstöðvar
félaganna nú eftir að húsið við Amt-
mannsstíg var selt. Félögin eiga að
afhenda það í vor svo Ijóst er að við
höfum ekki mikinn tíma. Félags-
svæðið við Holtaveg, þar sem nú er
fyrir hendi félagsheimili og íþrótta-
aðstaða, hefur verið valið sem fram-
tíðarstaður. Ákveðið er að núver-
andi húsnæði við Holtaveg verði að
mestu breytt í skrifstofu- og starfs-
mannaaðstöðu og síðan verði reist
þarna framtíðaraðstaða fyrir starfið
í Reykjavík. Þetta verkefni er mjög
umfangsmikið og hefur þegar verið
leitað til sérfræðinga innan félags
sem utan til að leggja á ráðin, því auk
þess sem sjálfar byggingarfram-
kvæmdirnar eru umfangsmiklar, er
Ijóst að fjáröflun til þeirra verður
ekki síður viðamikið mál.
Aðalmarkmið KFUM og KFUK
segja þau vera þau að kynna börnum
og unglingum boðskap Biblíunnar
um einn sannan Guð og Jesú Krist
sem frelsara.
— Félögin starfa í dag að sama
markmiði og þau gerðu við stofnun
fyrir 90 árum en auk þess að halda
merki kristindómsins á lofti í öllu fé-
lagsstarfinu er leitast við að bjóða
börnum ýmislegt annað fundarefni
um leið. Það var kannski einkum áð-
ur fyrr þegar minna var um hvers
konar tilboð um tómstundastarf,
íþróttir eða tónlistariðkun að félögin
höfðu forgöngu um slíkt starf. Ekki
má gleyma sumarbúðunum í Vatna-
skógi og Vindáshlíð sem hafa í ára-
tugi haft aðdráttarafl fyrir þúsundir
barna og unglinga. í dag má hins
KFUM
OG
KFUK
í
REYKJA-
r
VIK
90ÁRA
vegar segja að aðrir aðilar bjóði upp
á svo fjölbreytta starfsemi á þessum
sviðum að félögin keppi varla við
það allt en þá viljum við leggja því
meiri áherslu á að sinna kristin-
dómsfræðslunni — þessu sem við
viljum meina að sé jafnan aðalatrið-
ið i starfi félaganna.
Á þessu ári hafa félögin minnst 90
ára afmælisins með ýmsum hætti.
Afmælissamkoma var haldin
snemma á árinu, sérstakur hátíðar-
fundur barnastarfsins fór fram í Há-
skólabíói á liðnu vori og hinar ýmsu
deildir og starfsgreinar hafa haft sín-
ar afmælishátiðir. í október var tek-
ið í notkun nýtt félagshús við Suður-
hóla í Breiðholti og er þegar byrjað
barnastarf þar. Þau Málfríður og
Arnmundur eru spurð nánar um
stjórnun á félagsstarfinu:
— Félögin starfa sem tvö sjálf-
stæð félög hvort með sína stjórn en
samstarf er að sjálfsögðu mikið og
sameiginlegir stjórnarfundir því tíð-
ir. í fyrra var tekin upp sú nýbreytni
að skipa sérstök ráð fulltrúa beggja
stjórna til að annast ákveðna mála-
flokka og hefur það gefið góða raun.
Þannig hefur samfélagsráð séð um
að leggja línur varðandi fundi og
samkomur, æskulýðsráð sér um
starf meðal barna og unglinga og
rekstrarráð um ýmis fjármál og
rekstur félagshúsanna. Síðan eru
nokkrir launaðir starfsmenn en
fjöldi þeirra er þó í algjöru lágmarki
enda hafa félögin jafnan lagt áherslu
á að byggja upp starf sitt með fram-
lagi sjálfboðaliða.
Verður áfram þörf fyrir þessi félög
— hafa ekki aðrir tekið við hlutverk-
inu?
— Ljóst er að framboð á kristi-
legu starfi fyrir börn hefur aukist en
um Ieið hefur einnig vaxið framboð
á öðrum tómstundatilboðum. Á
sama tíma virðist þekking barna á
kristindómi, biblíusögum og bæn-
um hafa minnkað. Meðan enn eru til
börn og unglingar á íslandi sem ekki
þekkja Jesú Krist þá er þörf á starfi
KFUM og KFUK.
Frá stúlknafundi í hinu nýja félagshusi KFUM og KFUK við Suðurhóla í Breiðholti.
VÍÐFÖRLI — 31