Víðförli - 15.02.1990, Side 5
og félagslegum aðstæðum þeirra. Á
grundvelli slíkrar greiningar bæri
síðan að velja úr þeim starfsþáttum,
er stefnumörkun kirkjunnar tæki til.
Það er, marka stefnu og starfshætti
safnaðarins á grundvelli heildar-
stefnu kirkjunnar. I þessu atriði var
talið mikilvægt, að söfnuðir ættu
aðgang að ráðgjafa, er skoðað gæti
málin utanfrá og hlutlaust. Þessi
skref eru tiltölulega hagnýt og getur
kirkjan í þessu efni starfað á svipað-
an hátt og aðrar stofnanir, er marka
vilja sér stefnu út frá tiltölulega
fræðilegum forsendum og á grund-
velli staðbundinnar greiningar. Má
þar til dæmis nefna skólakerfið. í
þessu efni á kirkjan einnig við sama
vanda að stríða, en hann felst í því,
að sameina kenningu og starf. Til
þess að eitthvað verði úr áformunum
verður því ákveðið viðtökuferli að
eiga sér stað. Það felst í því, að þeir,
sem starfa innan stofnunarinnar,
Ieggi sameiginlegan skilning í hlut-
verk sitt, telji að ákveðinnar endur-
skoðunar sé þörf og vilji taka þátt í
endurskoðunarstarfinu, hvert sem
það kann að leiða og hvaða óþæg-
indi, sem það kann að hafa í för með
sér. Þetta var kallað vitundarvakn-
ing og lögðu þátttakendur áherslu á,
að hún yrði að hefjast innan hinnar
virku eða starfandi kirkju, sem
stundum er kölluð íslenska presta-
kirkjan.
Ef til vill skynjar einhver merki
krossins í skýringarmyndinni.
Spurningin er: Hvort merkir það
kvöl kirkjunnar eða von hennar?
Hjalti Hugason
í NÁND VIÐ DAUÐANN;
sjúklingar, aðstandendur, fagfólk
Námsstefna laugardaginn 3. mars 1990
í ráðstefnusal A, Hótel Sögu
Dagskrá:
Kl. 10:00 Setning
Kl. 10:10 Heimspekilegt forspjall: Vilhjálmur Árnason heimspek.
Kl. 10:40 Jákvætt afl sálgæslu: Séra Frank M. Halldórsson.
Kl. 11:10 KAFFI
Kl. 11:30 Óttinn við dauðann: Sigurður Árnason krabbameinslæknir.
Kl. 12:00 Staða aðstandenda: Rúnar Matthíasson.
Kl. 12:30 MATARHLÉ
Kl. 14:00 Aðhlynning á sjúkradeild: Erna Haraldsdóttir hjúkrunarfr.
Kl. 14:30 Aðhlynning i heimahúsum: Lilja Þormar hjúkrunarfr.
Kl. 15:00 KAFFI
Kl. 15:45 Stuðningur við aðstandendur: Nanna K. Sigurðard. félagsr.
Kl. 16:15 Stuðningur við fagfólk: Högni Óskarsson geðiæknir.
Kl. 16:45 Fyrirspurnir og pallborð.
Kl. 17:30 Námsstefnunni slitið.
Fundarstjórar verða Guðrún Agnarsdóttir læknir og alþingismaður
og Alda Halldórsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Að námsstefnunni standa eftirfarandi aðilar:
Krabbameinsfélagið, Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga,
Hjúkrunarfélag íslands, Félag áhugamanna um heimspeki, Þjóðkirkj-
an og Fræðslunefnd læknafélaganna.
Námsstefnugjald er kr. 950 og fjöldi þátttakenda er takmarkaður
við 150.
Innritun fer fram alla virka daga fyrir hádegi í síma 36284.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri námsstefnunnar Ás-
geir R. Helgason í sima 621414.
Nefnd um
safnaðaruppbyggingu
Kirkjuráð hefur skipað nefnd til
að vinna að átaki um safnaðarupp-
byggingu, eftir samþykkt Kirkju-
þings. Nefndina skipa:
Guðmundur Magnússon fræðslu-
stjóri, sr. Gunnar Kristjánsson sókn-
arprestur (form.), sr. Karl Sigur-
björnsson sóknarprestur, Ragnheið-
ur Sverrisdóttir djákni og Sigríð-
ur Halldórsdóttir lektor. Þröstur Ei-
ríksson organleikari sem skipaður
var í nefndina, hefur sagt af sér
vegna brottflutnings.
Kirkjuráð lagði áherslu á að
nefndin móti ekki aðeins heildar-
stefnu heldur skilgreini verksvið sitt.
Þá var talið nauðsynlegt að nefndin
ynni í nánu samstarfi við Fræðslu-
deild þjóðkirkjunnar, segir í bókun
Kirkjuráðs. Þeir sr. Örn Bárður
Jónsson væntanlegur verkefnisstjóri
við safnaðaruppbyggingu og sr.
Bernharður Guðmundsson fræðslu-
stjóri starfa með nefndinni.
Nývígðir prestar
Ólafur biskup hefur þegar vígt 4
presta í embættistíð sinni. Fyrst
vígði hann þau Jónu Kristínu Þor-
valdsdóttur sem farprest, þjónar hún
Norðfjarðarprestakalli í vetur og
Gunnar R. Matthíasson til þjónustu
sem sjúkrahúsprestur i Vesturheimi,
en sr. Gunnar stundar þar jafnframt
framhaldsnám í sálgæslu. Kona sr.
Gunnars er sr. Arnfríður Guð-
mundsdóttir og eru þá fern íslensk
hjón þar sem bæði eru prestvígð. Sr.
Jóna Kristín er 18. íslenska konan
sem tekur prestsvígslu.
Guðfræðikandidatarnir Bragi
Ingibergsson og Eiríkur Jóhannsson
voru vígðir til prestsþjónustu 12.
nóvember 1989 í Dómkirkjunni. Sr.
Bragi Ingibergsson hefur verið kjör-
inn prestur Siglfirðinga, en sr. Vigfús
Þór Árnason sem þar hefur þjónað
um árabil, hefur verið kjörinn prest-
ur Grafarvogssóknar í Reykjavík. Sr.
Eiríkur Jóhannsson hefur verið
skipaður prestur í Skinnastaðar-
prestakalli en séra Sigurvin Elíasson
hefur látið af embætti þar vegna
aldurs.
VÍÐFÖRLI — 5