Víðförli - 15.09.1993, Blaðsíða 4
Prestastefna 1993
Dagana 21. - 23. júní var haldin
prestastefna í Áskirkju í Reykjavík.
Meginviðfangsefni prestastefnu að
þessu sinni var „Staða og skilgreining
embættanna", en dr. Einar Sigur-
bjömsson prófessor og sr. Bragi
Skúlason héldu erindi, þar sem þeir
frá ólíkum sjónarhornum fjölluðu um
yfirskrift þessa.
Dr. Einar dró fram hina guðfræði-
legu stöðu og skilning á embættum
kirkjunnar, en sr. Bragi rakti sögu-
lega stöðu og starf sjúkrahúspresta,
og annarra í sérþjónustu.
Um málefni þetta urðu miklar um-
ræður og tengdust þær einkum fyrir-
huguðu djáknanámi, og stöðu og
starfssviði presta, aðstoðarpresta og
djákna.
Annað meginefni prestastefnunnar
var „Áfangaskýrsla um kirkjueignir“.
Sr. Þórhallur Höskuldsson formaður
kirkjueignanefndar þjóðkirkjunnar
flallaði um hana og sr. Halldór Gunn-
arsson formaður synodalnefndar,
fjallaði um vörslu kirkjueigna.
Tvö synoduserindi voru flutt í út-
varpi, dr. Guðrún Kvaran fjallaði um
„Sögu biblíuþýðinga á íslandi“ og sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson talaði um
„Kirkjuna og atvinnumálin“.
Auk þess má nefna að sr. Karl Sig-
urbjörnsson flutti skýrslu fráfarandi
safnaðaruppbyggingamefndar, þar
sem rakið er starf nefndarinnar og
verkefnastjóra.
Og fræðsludeild kynnti nýja tilhög-
un á starfi leikmannaskólans, djákna-
nám er hefjast mun við Háskóla Is-
lands í haust og nýsamið fermingar-
bamakver er tilraunakennt verður á
vetri komanda.
til gagngerrar endurskoðunar.
Prestastefna kýs þriggja manna nefnd
sem hefur fullt umboð prestastefnu til
að móta framtíðarskipulag þessara
greiðslna í samstarfi við stjóm
Prestafélags íslands og biskup ís-
lands.
Prestastefnan mælist til þess við
kirkjustjómina, að hún beiti sér fyrir
framkvæmd skoðanakönnunar, þar
sem kannað verði nánar viðhorf al-
mennings til þjóðkirkjunnar og hvaða
þættir það eru í þjóðmálaumræðunni
og starfi kirkjunnar, sem helst móta
þau viðhorf.
Prestastefnan hvetur starfsfólk,
fulltrúaráð og stjóm Sólheima í
Grímsnesi til að vinna saman að far-
sælum lyktum aðsteðjandi ágrein-
ingsmála með hag og farsæld heimil-
isfólks að leiðarljósi.
Prestastefnan samþykkir að skora
á yfirstjórn kirkjunnar að beita sér
fyrir því að réttarstaða presta við
mismunandi starfsaðstæður verði
jöfn og skilgreind á viðunandi hátt.
Hvar sem tveir eða fleiri prestar
starfa í sama prestakalli verði prest-
leg staða þeirra jöfn. Lagt er til að
starfsheitið „aðstoðarprestur" verði
lagt niður, vegna margháttaðs mis-
skilnings sem af því hefur hlotist. í
stað núverandi starfsheitis „aðstoð-
arprestur" er lagt til að tekið verði
upp starfsheitið „safnaðarprestur“
ellegar notað starfsheitið „prestur"
og kenni presturinn sig þá við þá sókn
er hann starfar við.
Prestastefnan ítrekar og tekur
undir ályktanir kirkjuþings og héraðs-
funda sem leggja áherslu á skyldu
þjóðkirkjunnar að taka á með þeim
aðilum sem vinna að lausnum í at-
vinnumálum og vilja styðja atvinnu-
lausa og fólk í atvinnuleit.
Ennfremur hvetur prestastefnan
þjóðmálanefnd kirkjunnar til að halda
áfram vandaðri umfjöllun sinni um
þessi mál.
Ályktanir
presta-
stefnu 1993
Prestastefna
sendi frá sér eft-
irtaldar ályktan-
ir:
Prestastefna
íslands 1993 álít-
ur að taka þurfi
aukaverka-
greiðslur presta
4