Víðförli - 15.09.1993, Blaðsíða 17

Víðförli - 15.09.1993, Blaðsíða 17
Barnakór Breiðholtskirkju Aðventukvöld í Breiðholtskirkju. Það var rétt fyrir jólin 1989 að Barnakór Breiðholtskirkju stóð uppi stjómandalaus og var ég þá beðin að taka hann að mér. Eftir dálitla um- hugsun ákvað ég að reyna fram að vori. Síðan hef ég stjómað þessum kór ásamt Önnu Birgittu Bóasdóttur, sem kom mér til aðstoðar haustið 1991. Það fyrirkomulag að hafa tvo stjómendur hefur reynst okkur vel, við störfum saman sem einn maður og aldrei þarf að fella niður æfingu. Mig langar nú í fáeinum orðum að segja frá starfi okkar í vetur. I kóm- um okkar hafa verið 12 stúlkur á aldr- inum 8-10 ára, sem mynda fastan kjama en fjölmennastur hefur kórinn talið 26 stúlkur. Það er svolítið erfitt að halda hópnum saman vegna tíðra flutninga bamanna úr hverfinu okkar. Tvær stúlkur úr kjamanum búa í öðm hverfi en hafa haldið tryggð við kórinn sinn. Við höfum ekki náð neinum strákum í kórinn, því miður. Hluta vetrar höfðum við þó einn, en dansinn heillaði meir og hann hvarf á braut. Fyrirkomulagið hjá okkur er þannig að öll böm sem hafa áhuga fá inn- göngu, þ.e. við prófum ekki inn í kór- inn. Meginmarkmiðið er ekki að byggja upp fullkominn „konsertkór", heldur að leyfa öllum að vera með. Okkar álit er það að öll börn eigi rétt á að fá að syngja í kór. í vetur höfðum við æfingu einu sinni í viku, á laugardögum og vorum þá tvo tíma í senn. Það reyndist ekki nógu vel, því ef stúlkurnar misstu úr eina æfingu þá leið svo langur tími til þeirrar næstu og varð það jafnvel til þess að þær gáfust upp. Æfmgarnar hjá okkur fara þannig fram að fyrst hitum við vel upp, síðan lærum við ný lög, þá gerum við hlé, fáum okkur djús og kex og sprellum jafnvel eitthvað saman. Eftir hlé för- um við yfir nýju lögin aftur og endum alltaf á einhverju sem stúlkurnar kunna. Við æfum bæði veraldleg og Okkar álit er það að öll börn eigi rétt á að syngja í kór. kirkjuleg verk. í vetur kom kórinn fram einu sinni í mánuði í fjölskyldu- guðsþjónustum. Aukþess sunguþær í Kringlunni á kirkjuviku og á aðventu- kvöldi kirkjunnar. Við fórum í æfingabúðir í Vatna- skógi ásamt barnakórum Seljakirkju og Hallgrímskirkju. Það gekk mjög vel og voru stúlkumar mjög ánægðar. Þær fara nú fram á að þetta verði árlegur viðburður. Það er mjög gott að fara svona saman burt úr borginni, vinna við sönginn og kynnast stúlkun- um á allt annan hátt en gerist á æfing- unum. Það er ekki starfandi foreldra- félag innan kórsins, en allir hafa verið fúsir að leggja okkur lið, þegar við höfum farið fram á það. Tvær mæður fóru með í Vatna- skóg og var það ómetanleg hjálp sem þær veittu okkur. Þegar ekki voru æfingar tóku þær stelpurnar alfarið upp á sína arma, þannig að við stjórn- endurnir gátum hvílt okkur. Ekki má gleyma því að við fórum saman að sjá óperuna um Hans og Grétu sem sýnd var í Tónlistarskóla Kópavogs. Starfi vetrarins lauk síðan með fjöl- skylduskemmtun. Þar sungu stúlk- urnar yfir þau lög sem við höfum æft í vetur og buðu síðan gestum upp á kaffi og kökur. Ekki sluppu foreldramir burt fyrr en þeir höfðu tekið þátt í leikjum og skemmtu sér allir vel. Þær stúlkur sem voru í Reykjavík 5. júní tóku þátt í barnakóratónleikum sem haldnir voru í Langholtskirkju á vegum Kirkjulistahátíðar. Starfið nú í vetur mun taka miklum stakkaskiptum, við ætlum að reyna að stofna eldri og yngri hóp. Æfmg- arnar verða tvisvar í viku og líklega öðruvísi uppbyggðar en gerðist síð- astliðinn vetur. Ætlunin er að stofna foreldrafélag og reyna líka að hafa samstarf við skólann. Að starfa með barnakór er eitt- hvert skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér. Það er krefjandi, eins og raunar allt starf sem unnið er með börnum, þú gefur mikið af þér, en færð það hundraðfalt til baka. Að standa fyrir framan hóp af börnum sem syngja af hjartans einlægni, sjá gleðina sem skín úr augum þeirra, er eitthvað sem erfitt er að lýsa. Arný Albertsdóttir. 17

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.