Víðförli - 15.09.1993, Blaðsíða 24

Víðförli - 15.09.1993, Blaðsíða 24
Tekist hefur samstarf milli út- gáfufyrirtækisins Nýjar víddir og margra af sóknum landsins um útgáfu á kortum. Kortin verða samstæð röð vatnslita- mynda, en slík röð hefur aldrei verið gefin út áður. Viðkomandi sóknir munu selja kortin sér til fjáröflunar. Einnig munu Nýjar víddir sjá um að dreifa þeim á almennum markaði. Hluti sölu- andvirðisins rennur þá til Hjálp- arstofnunar kirkjunnar. Nýjar víddir er ungt útgáfufyrir- tæki sem m.a. gefur út dagatöl og ýmiss konar jóla- og tækifæriskort með myndum sem tengjast íslensku landslagi og menningu. Að sögn Daða Harðarsonar framkvæmdastjóra Nýrra vídda, var upphaflega hug- myndin sú að gefa út jólakort með myndefni sem tengdist kirkjunni. At- hyglin beindist fljótlega að kirkju- byggingunum sjálfum og þá ekki ein- vörðungu með jólin í huga því að kort með mynd af kirkju er fallegt tæki- færiskort. Á þessu ári er byrjað á að gefa út fallegar vetrarmyndir af kirkjum í snjókomu. Á næsta ári er ætlunin að bæta við kortum með sumarmynd- um. Vetrarkortin verður hægt að fá með prentaðri hefðbundinni jóla- kveðju. Einnig er hægt að fá kortin án texta og sé þess óskað munu Nýjar víddir sjá um að prenta í þau þann texta sem hæfir tilefninu hverju sinni. Kortin verða því falleg þakkarkort, samúðarkort, hamingjuóskakort eða boðskort í tilefni af hvers konar við- burðum í kirkjunni eða safnaðarstarfi, t.d. brúðkaupum, skírnum, ferming- um eða tónleikum. Gefinn verður út bæklingur með kynningu á kortunum, tillögum að notkun þeirra og dæmum um texta fyrir mismunandi tækifæri. Myndirnar á kortunum eru vatns- litamyndir unnar af Birnu Steingríms- dóttur, teiknara. Birna hefur mikla reynslu af slíkri vinnu og hefur m.a. gert mörg af kortum Nýrra vídda. Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, hefur haft yfirumsjón með útliti kortanna. Myndimar eru gerðar eftir ljósmyndum sem valdar eru í samráði við sóknarnefndir hverrar kirkju. Reynt er að finna sjónarhorn þar sem kirkjan nýtur sín og helst þannig að hún hafi ekki oft áður verið sýnd á nákvæmlega sama hátt. Vatnslitamyndir af kirkjum skoðaðar. Frá vmstri: Daði Harðarson, Birna Steingrímsdóttir og Kristín Þorkelsdóttir. Eins og áður sagði mun hver sókn selja kort með myndum af sinni kirkju en Nýjar víddir dreifa kortunum til sölu á almennum markaði. Samið hef- ur verið um að hluti andvirðis þeirra korta sem seljast á almennum mark- (Mynd: Hreinn Hreinsson) aði renni til Hjálparstofnunar kirkj- unnar. Nánari upplýsingar um kirkjukortin veita starfsmenn Nýrra vídda, s. 614300. Hughvörf Úr hugans leynum læðist til mín hljótt sú ljúfa bemskuminning hjartakær. Er bam ég undi um kvöld og allt var rótt og undrafriður lotningar var nær. Ég hljóður sat og hlýddi lestur á úr helgri bók um kærleik, frið á jörð. Og hugur barnsins fylltist birtu þá við bænarorð og dýra þakkargjörð. Hve árin breyta hug og hjarta manns en helgi þeirra stunda geymist þó. Og allt þó hafi annan lit og glans er enn þá gott að mega í kyrrð og ró þess horfna leita - finna friðarstund og færast nær þeim sanna helgidóm, er veitir sálu grið og vermir lund og vekja aftur löngu dáin blóm. Helgi Seljan

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.