Víðförli - 15.09.1993, Side 12
LEIKMANNASKÓLI
KIRKJUNNAR1993-1994
Vetrarnámskeið
Haustönn 1993
Námsefni:
Inngangsfræði Gamla testamentisins
Kennari: Dr. Gunnlaugur A. Jónsson
Tími: Miðvikudagar, 22. sept. - 6. okt. kl. 20.00 - 22.00
Inngangsfræði Nýja testamentisins
Kennari: Sr. Kristján Búason
Tími: Miðvikudagar, 13. - 27. okt. kl. 20.00 - 22.00
Trúfræði
Kennari: Dr. Einar Sigurbjömsson
Tími: Miðvikudagar, 3. nóv. -1. des. kl. 20.00 - 22.00
Vorönn 1994
Námsefni:
Helgisiðir og táknmál kirkjunnar
Kennari: Sr. Karl Sigurbjörnsson
Tími: Miðvikudagar, 12. jan. - 9. febrúar kl. 20.00 -
22.00
Siðfræði
Kennari: Dr. Björn Bjömsson
Tími: Miðvikudagar, 16. feb. - 16. mars kl. 20.00 -
22.00
Sálgæsla
Kennari: Sr. Sigfinnur Þorleifsson
Tími: Laugardagur, 19. mars kl. 10.00 -16.00
Þjónusta leikmannsins í kirkjunni
Kennari: Halla Jónsdóttir, sagnfræðingur
Tími: Laugardagur, 26. mars kl. 10.00 -16.00
Kennsla fer fram í Odda, Háskóla íslands, stofu
101.
Styttri námskeið
Haustönn 1993
Námsefni:
Helstu trúarbrögð mannkyns
Kennari: Gunnar Jóhannes Gunnarsson, lektor
Tími: Mánudagar 4. - 25. október kl. 20.00 - 22.00
Um tilgang lífsins
Kennari: Dr. Páll Skúlason
Tími: Miðvikudagar 3. - 24. nóvember kl. 20.00 - 22.00
Kennsla fer fram í aðalbyggingu Háskóla íslands,
stofu 5.
Vorönn 1994
Námsefni:
Kristin íhugun
Kennari: Guðrún Edda Gunnarsdóttir, guðfræðingur
Nýtrúarhreyfingar
Kennari: Sr. Þórhallur Heimisson
Leiðsögn við lestur Biblíunnar
Kennari: Sr. Sigurður Pálsson
Upplýsingar og innritun á Biskupsstofu, Suðurgötu 22,
150 Reykjavík,
símar 91-621500/12445.
M O L A R
Rósir handa
Rosemarie Köhn
Fyrsti kvenbiskup á Norðurlönd-
um, Rosemarie Köhn var vígð í
Hamar dómkirkju 20. maí síðastlið-
inn. Hún er þriðja konan í heiminum
sem hlýtur biskupsvígslu innan lút-
ersku kirkjunnar. Áður hafa verið
vígðar þær Maria Jepsen í Hamborg
og April Larson í Bandaríkjunum.
Eftir vígsluathöfnina í Hamar beið
flöldi fólks á tröppunum og færðu
margir henni rós er hún gekk út. Val
hennar og vígsla hefur vakið mikla
umræðu í Noregi. Hópar presta
hafa sett sig upp á móti henni af
slíkri heift að það hlýtur að vekja
ótta allra kristinna að slíkar ofsóknir
skuli eiga sér stað á milli kristinna
systkina.
En hún á einnig stuðning og fyrir-
bæn trygga hjá mörgum. Köhn tek-
ur við starfí sínu 1. september.
Megi biskupsvígsla Rosmarie
Köhn verða mikilvægt skref til að
stuðla að auknu jafnrétti kynjanna í
kirkjunni á Norðurlöndum.
Nómskeið
á Lögumkloster
Lögumkloster er háskóli er einkum
býður upp á framhaldsmenntun fyrir
presta.
Dæmi um námskeið sem í boði eru:
í september verður þar námskeið
um fermingarfræðslu.
í febrúar verður námskeið í
brúðkaups- og jarðarfararræðum, ná
mskeið fyrir fermingarfræðara og um
Gamla testamentið í guðsþjónust-
unni.
Námskeið um Bibhumyndir á 20.
öld verður í apríl og í maí 1994 verður
námskeið um barnaguðsþjónustur.
Þetta eru aðeins örfá dæmi um
allan þann fjölda námskeiða sem í
boði eru . Þeir sem áhuga hafa skrifi
eftir nánari upplýsingum til:
Folkekirkens Pædagogiske
Institut
Slotsgade 9
6240 Lögumkloster
Danmark
Staalsett hættir
Framkvæmdastjóri Lúterska
heimssambandsins Gunnar Staals-
ett tilkynnti í mars síðastliðnum að
hann segði starfi sínu í Genf lausu.
Staalsett var ráðinn framkvæmda-
stjóri 1985 og náði ráðning hans til
ársins 1997.
Ástæðuna fyrir uppsögn sinni
segir hann vera að hann vilji gjarnan
flytja heim með fjölskyldu sína.
12