Víðförli - 15.09.1993, Side 20

Víðförli - 15.09.1993, Side 20
t t nw\T t Tunn tmuac „Kirkja og börn í borg“ A vegum Dómkirkjusafnaðar voru í sumar haldin tvö námskeið fyrir börn. Annað var haldið í júní og hið síðara í ágúst. Þetta var tilraun á vegum safn- aðarins og þótti hún takast afar vel. Gæti þetta orðið öðrum söfnuðum hvati til sumarstarfs. Sr. Jakob Hjálmarsson og sr. María Agústs- dóttir höfðu yfirumsjón með nám- skeiðunum , en nutu auk þess starfs- krafta Kristínar Þórunnar Tómas- dóttur í ágúst. Auk þess lögðu sjálfboðaliðar kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar málinu lið. Myndirnar eru teknar á námskeið- um Dómkirkjunnar. Sumarbúðir ÆSKR í Heiðarskóla. Eins og undanfarin ár voru reknar sumarbúðir á vegum ÆSKR í sumar í Heiðarskóla. Forstöðumenn sumar- búðanna voru Haukur Ingi Jónasson og Kristín Þórunn Tómasdóttir. En þau höfðu með sér flokk valinkunnugs starfsfólks, Astu Sóllilju, Jónas, Hug- rúnu og Svenna. Sumarbúðirnar gefa einstakt tæki- færi til fræðslu og miðlunar kristin- dómsins, söngva og góðrar og skemmilegrar samveru. Enda voru það glaðir krakkar sem við sjáum hér á myndunum, og undu sér vel við margs konar skemmtun starf og fræðslu. Það var nýnæmi í starfmu að sam- starf var tekið upp við Kvennaat- hvarfið. 20

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.