Víðförli - 15.09.1993, Side 23

Víðförli - 15.09.1993, Side 23
Vetur, sumar, vor og haust Eldri deild Æskulýðssambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófasts- dæmum hóf starfsemi sína árið 1989. Lengstum hefur þetta verið fámenn- ur hópur, sem komið hefur saman hálfsmánaðarlega að vetrinum til að eiga samfélag, uppbyggjast saman og stjnkja hvert annað til góðra verka. Hefur samfélagið eflst mjög og því aukist kraftur. Um miðjan vetur kom upp sú hugmynd að fara hringferð um landið að vori, þegar skólar væru úti, til að heimsækja og hvetja ungan æskulýð á landsbyggðinni. Fundaherferðin hófst í Oddakirkju í Rangárvallaprófastsdæmi, við fórum austur um og enduðum á Skagaströnd í Húnavatnsprófastsdæmi. Tók ferð- in alls 10 daga (14.maí-23.maí) og á þeim tíma héldum við 8 fundi á jafn- mörgum stöðum vítt og dreift um landið og gengu þeir framar okkar björtustu vonum hvað varðaði aðsókn og áhuga á málefninu. Var haldinn dæmigerður æsku- lýðsfundur með helgistund á hverjum stað með því sniði, að heimamenn gætu haldið slíka fundi í framtíðinni. Við buðum þá einnig velkomna á næsta landsmót æskulýðsfélaganna, sem haldið verður í haust, svo að auð- veldara verði að hefjast handa heima fyrir að því loknu. Vel var tekið á móti okkur, hvar sem við komum, og gaman að mæta vinum í Kristi, þótt við þekktum þá ekki persónulega fyrir. Viljum við þakka ágætar móttökur og viður- gjörning allan. Það sem einkenndi þessa ferð, fyrir okkur ferðalangana, voru öll til- brigði íslenskrar veðráttu, sem við lentum í, t.d. sandstormi, þurftum að sæta lagi til að komast yfir sandana á Suðurlandi, snjókomu svo um mun- aði, ófært var um tíma á fjallvegum fyrir austan, bíllinn rann einu sinni útaf, en ósködduð komumst við á leiðarenda og gátum haldið áætlun. „AU thanks to Jesus“ vildi Sigurður bflstjóri meina, enda var Jesús með í för. Kostnaður við ferðina var þó nokk- ur. Eftirtaldir aðilar styrktu hópinn til fararinnar, Kristnisjóður, Menntamálaráðuneytið, ölgerðin Egill Skallagrímsson og kex- verksmiðjan Frón. ÆSKR þakkar þeim stuðninginn og öllum þeim öðr- um, sem gerðu þessa ferð mögulega. 23

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.