Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2017, Page 47
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS46
Líkur benda til að jarðhýsin séu yfirleitt frá elsta skeiði mannvirkja
á Íslandi. Karen Milek birtir töf lu um aldur jarðhýsa þar sem tíu eru
tímasett með geislakolsmælingum. Sé miðað við tvö staðalfrávik, sem er
venjulega talið gefa um 95% vissu, og tímasett samkvæmt miðtölu á milli
ystu tímamarka, mælist eitt hús frá sjöundu öld, tvö frá níundu öld, fjögur
frá tíundu öld og þrjú frá elleftu öld.37 Þar sem geislakolsmæling mælir
tímann frá því að lífrænt efni sýnisins dó, hætti að taka til sín næringu,
getur vel staðist að þessi jarðhýsi séu frá níundu, tíundu og elleftu öld.
Það bendir enn á háan aldur að hvergi hafa, svo að ég viti, fundist merki
þess að jarðhýsi hafi verið byggt ofan í eldri húsarúst, nema í Sveigakoti í
Mývatnssveit þar sem eitt jarðhýsi var byggt ofan í annað.38 Hins vegar er
nokkuð um að bæjarhús hafi verið byggð ofan á jarðhýsi. Í Gjáskógum var
jarðhýsið undir gólfi stofu sem hafði farið í eyði fyrir 1104. Varla er hægt
að ímynda sér að það hafi verið byggt síðar en á 10. öld. Í Hvítárholti hefur
að líkindum verið byggt á 10. öld líka og byggðin farin í eyði fyrir 1104, og
voru að minnsta kosti þrjú jarðhýsanna frá elsta byggingarskeiði á staðnum.
Eitt var undir viðbyggingu við skála, annað hafði verið lagt af og fyllt
með sorpi meðan þarna var enn byggð. Í Grelutóttum í Arnarfirði tengjast
jarðhýsarústir byggð sem líklega er ekki yngri en frá 10. öld. Á Granastöðum
í Eyjafirði fannst landnámssyrpa gjóskulaga í veggjatorfi. Á Hjálmstöðum
fannst landnámsgjóska í f leiri en einu lagi fyrir ofan neðri gólfskán og
hefur væntanlega borist þangað í torfi. Guðmundur Ólafsson giskaði á að
húsið hefði verið byggt á 10. öld. Jarðhýsin í Sveigakoti í Mývatnssveit eru
yngri en landnámslagið frá því um 870 en eldri en gjóskulag frá því um
940.39 Jarðhýsi G á Hofstöðum virðist hafa verið byggt skömmu eftir að
þetta sama gjósku lag féll, og vísbending er um að húsið hafi verið fallið
um miðja öldina.40 Lauslega hefur verið giskað á að Stóruborgarhýsið sé frá
11. eða 12. öld.41
Í síðustu rannsóknar skýrslunni um upp gröftinn í Sveigakoti lagði Orri
Vésteinsson drög að f lokkun íslenskra jarð hýsa. Hvítárholtsgerð kallaði hann
þá gerð húsa sem hafði engan sýnilegan inngang, og hlýtur að hafa verið
gengið inn í ofan frá um stiga. Þessi hús ein kenndust líka af gólfskán í
miðju húsi og hlutum sem bentu til ullariðju; þau voru tiltölulega lítil og
37 Milek 2012, bls. 87-88.
38 Það eru húsin sem uppgraftarmenn kölluðu T (house I) og MT (house II). - Orri Vésteinsson ritstj.
2003, bls. 35-39.
39 Orri Vésteinsson 2010, bls. 494-497.
40 Batt o.fl. 2015, bls. 166-167.
41 Heimildir um þessar aldursgreiningar má finna eftir tilvísunum í töflu 1 á bls. 62-63.