Vinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 11
VINNAN
4.—5. tölublað
Apríl—maí 1948
6. drgangur
Reykjavík
Ritnefnd:
Bjöm Bjarnason
Helgi Guðlaugsson
Útgefundi: Alþýðusamband íslands
FORNÓLFUR:
Y F I R L I T
Finnst þér meira um fommennina,
sem fluttu hingað norrænt mól,
landið tóku í gjöf af guði,
gráir af járnum skóku stál ,
en hina, er lýðs í þyngstu þrautum
þjóðernisins hafa gætt, —
þennan ljóma lands og sóma
létu til vor ganga í ætt?
/-------------------------------------------------
EFNISYFIRLIT
Þorsteinn Jósepsson: Hjálp í Þjórsárdal, fðrsíðum.
Fornólfur: Yfirlit, kvœði.
Af alþjóðavettvangi.
Jón Rafnsson: Galdur.
Jón Bjarnason: Dagur hins vinnandi jólks.
William Saroyan: Ég var bara að stríða, smásaga.
Vilhjálmur frá Skáholti: Einvaldsherrann, kvæði.
Sölvi Blöndal: Rússar leysa dýrtíðar.vandamál sín.
Nýja strandferðaskipið M.s. Herðubreið.
Jónas Haralz: Viðhorfin í dýrtíðarmálunum.
Utbreiðsla Vinnunnar.
Vilhjálmur frá Skáholti: Bœn, kvœði.
Björn Þorsteinsson: Frá Tékkóslóvakíu.
Björn Bjarnason: Alþjóðasambandið og ráðstefn-
an í London.
Elías Mar: Ljóð, kvœði.
Nikulás Albertsson: Verkamannafél. Vopnafjarð-
ar 25 ára.
Bragi Sigurðsson: Af mönnum ertu kominn, saga.
Elías Mar: Endurminning, smásaga.
Olafur Þ. Kristjánsson: Esperantónámskeið.
Skálc.
Sambandstíðindi.
Kaupgjaldstíðindi o. fl.
-----------------------------------------------------/
Hvers manns, er þoldi marga raun
um meini blandna tíð,
önn fyrir land og örlög stríð,
er allan þjáði lýð,
með þreki bar vort þjóðarböl
á þyngstu öldunum —
hans minning skal í heiðri höfð
að hinztu kvöldunum.
Það skal verða munað, er skörungur lands
hjá skaðræðismanninum stóð,
af eigin hörmum haldinn þungt,
og hóf sína rödd fyrir þjóð,
og lögmannsins ekki, sem eiðinn vann
fyrir ógnunum harðstjórans, —
aldrei til eilífðar getum vér gleymt
þeim grátstaf vors bezta manns.
Þeir, sem tólf hundruð sextíu og tvö sóru eið
fyrir tæling og ásælnisvél,
þeir, sem kúgaðir voru í Kópavog
undir kvalningar, meiðing og hel,
hafa afsökun þá, hvernig á þá var sótt
með erlendu harðræði og prett. ----
En hvað sýknar oss nú, ef vér sækjum það fast
að semja af oss fornan rétt?
Og vilja menn eiga undir því
þeim ættjarðar gröm verð rögn
og formælt þeim verði frá kyni til kyns
eða kæfi þá gleymskunnar þögn?
Vilja menn hlutskipti hreppa með þeim,
sem hafa það verðskuldað nóg,
að yfir þá kæmi biskupsins blóð,
sem böðullinn sjötugan hjó.
Virðist mönnum það vegarnest
verða hvað frekast sér hent,
að liðinna feðra þykkja þung,
sem þrautanna mest hafa kennt,
yfir þeim standi með ógnandi hefnd
sem ógurlegt þrumuský,
með viðbúinn sögunnar voða dóm?
Eða vilja menn bíða eftir því,
að hrópað upp verði í himininn
frá hafsströnd til öræfa lands
af brennandi hörmum það bænaróp
frá brjósti hvers einasta manns:
Guðs heift yfir þá, sem nú hika sér við
að heimta vorn rétt eins og menn!
Guðs hefnd yfir þá, sem oss rétti' hafa rænt
og refjast að skila honum enn!
VINNAN
69