Vinnan


Vinnan - 01.05.1948, Page 11

Vinnan - 01.05.1948, Page 11
VINNAN 4.—5. tölublað Apríl—maí 1948 6. drgangur Reykjavík Ritnefnd: Bjöm Bjarnason Helgi Guðlaugsson Útgefundi: Alþýðusamband íslands FORNÓLFUR: Y F I R L I T Finnst þér meira um fommennina, sem fluttu hingað norrænt mól, landið tóku í gjöf af guði, gráir af járnum skóku stál , en hina, er lýðs í þyngstu þrautum þjóðernisins hafa gætt, — þennan ljóma lands og sóma létu til vor ganga í ætt? /------------------------------------------------- EFNISYFIRLIT Þorsteinn Jósepsson: Hjálp í Þjórsárdal, fðrsíðum. Fornólfur: Yfirlit, kvœði. Af alþjóðavettvangi. Jón Rafnsson: Galdur. Jón Bjarnason: Dagur hins vinnandi jólks. William Saroyan: Ég var bara að stríða, smásaga. Vilhjálmur frá Skáholti: Einvaldsherrann, kvæði. Sölvi Blöndal: Rússar leysa dýrtíðar.vandamál sín. Nýja strandferðaskipið M.s. Herðubreið. Jónas Haralz: Viðhorfin í dýrtíðarmálunum. Utbreiðsla Vinnunnar. Vilhjálmur frá Skáholti: Bœn, kvœði. Björn Þorsteinsson: Frá Tékkóslóvakíu. Björn Bjarnason: Alþjóðasambandið og ráðstefn- an í London. Elías Mar: Ljóð, kvœði. Nikulás Albertsson: Verkamannafél. Vopnafjarð- ar 25 ára. Bragi Sigurðsson: Af mönnum ertu kominn, saga. Elías Mar: Endurminning, smásaga. Olafur Þ. Kristjánsson: Esperantónámskeið. Skálc. Sambandstíðindi. Kaupgjaldstíðindi o. fl. -----------------------------------------------------/ Hvers manns, er þoldi marga raun um meini blandna tíð, önn fyrir land og örlög stríð, er allan þjáði lýð, með þreki bar vort þjóðarböl á þyngstu öldunum — hans minning skal í heiðri höfð að hinztu kvöldunum. Það skal verða munað, er skörungur lands hjá skaðræðismanninum stóð, af eigin hörmum haldinn þungt, og hóf sína rödd fyrir þjóð, og lögmannsins ekki, sem eiðinn vann fyrir ógnunum harðstjórans, — aldrei til eilífðar getum vér gleymt þeim grátstaf vors bezta manns. Þeir, sem tólf hundruð sextíu og tvö sóru eið fyrir tæling og ásælnisvél, þeir, sem kúgaðir voru í Kópavog undir kvalningar, meiðing og hel, hafa afsökun þá, hvernig á þá var sótt með erlendu harðræði og prett. ---- En hvað sýknar oss nú, ef vér sækjum það fast að semja af oss fornan rétt? Og vilja menn eiga undir því þeim ættjarðar gröm verð rögn og formælt þeim verði frá kyni til kyns eða kæfi þá gleymskunnar þögn? Vilja menn hlutskipti hreppa með þeim, sem hafa það verðskuldað nóg, að yfir þá kæmi biskupsins blóð, sem böðullinn sjötugan hjó. Virðist mönnum það vegarnest verða hvað frekast sér hent, að liðinna feðra þykkja þung, sem þrautanna mest hafa kennt, yfir þeim standi með ógnandi hefnd sem ógurlegt þrumuský, með viðbúinn sögunnar voða dóm? Eða vilja menn bíða eftir því, að hrópað upp verði í himininn frá hafsströnd til öræfa lands af brennandi hörmum það bænaróp frá brjósti hvers einasta manns: Guðs heift yfir þá, sem nú hika sér við að heimta vorn rétt eins og menn! Guðs hefnd yfir þá, sem oss rétti' hafa rænt og refjast að skila honum enn! VINNAN 69

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.