Vinnan - 01.05.1948, Síða 14
Um 200 milljónir Kínverja hafa einnig heimt frelsi
sitt.
Nýlenduþjóðirnar eru nú sem óðast að skilja vitj-
unartíma sinn, og Vestur-Evrópa er tapað fé heimsauð-
valdinu senn hvað líður, ef þjóðir þessar fá ótruflaðar
að ákveða örlög sín á grundvelli lýðræðisins.
En einn hinn mesti þyrnir í augum hins fasistiska
auðvalds er verkalýðshreyfingin í landi hverju og hið
sterka alþjóðasamband hennar, sem nú telur um 85
milljónir meðlima.
Af öllu þessu má sjá, að voröfl mannkynsins eru nú
í mikilli sókn og að haug-ganga lífsins á hendur dauð-
anum og forneskjunni um allan heim, sækist vel.
Er nú furða þótt auðstétt heimsins bregði í brún
og grípi af meiri áfergju en nokkru sinni fyrri til gald-
ursins? Vissulega ekki.
Svo langt sem vald hins ameríska dollars nær hefur
nú mátt heyra bumbur barðar og horn þeytt til heilags
stríðs gegn einhverju hroðalegu, hryllilegu, hróplegu
og djöfullegu sem skeð hefur í Tékkóslóvakíu fyrir til-
stilli kommúnista að undirlagi Rússa!
Andstæðingablöð alþýðunnar, frá „Alþýðublaðinu‘‘
til Vísis hafa með hárreisandi fyrirsögnum og stóryrða-
flóði birt frásagnir um „ógnaröld“ komúnista í þessu
landi og hættuna sem gjörvöllum heimi stafar af því,
sem þarna er að gerast.
Hvað er það sem í rauninni er að gerast, spurðu
menn, sem létu sér ekki nægja aðeins ókvæðisorðin og
feitu fyrirsagnirnar til að æsast upp gegn íslenzku
kommunum. — Og sjá, þegar hinar miklu umbúðir
stóryrðanna og fyrirsagnanna voru teknar af kom
þetta í lj ós:
í Tékkóslóvakíu hafði komizt upp um samsæri til að
steypa hinni löglegu ríkisstjórn, eftir fyrirmynd Franco-
fasistanna á Spáni, og miklar birgðir vopna fundust á
vegum samsærismanna. Ýmsir háttsettir náungar úr
borgaraflokkunum voru við þetta riðnir og erlent ríki.
Samsærismennirnir eru sviptir trúnaðarstöðum í rík-
isstjórn og þingi samkvæmt lögum og stjórnarskrá
þessa lands.
Stjórnarkreppan, sem samsærismenn skipulögðu er
leyst lögum samkvæmt á þingræðisgrundvelli og ný
stjórn mynduð með þátttöku allra flokka sem áður. —
Almennar þingkosningar eru boðaðar nú í maí.
Og þetta gengur allt fyrir sig án nokkurra vopna-
viðskipta eða mannfórna.
Stúdentadrápin, sem mjög var haldið á lofti sem
dæmi hinnar „kommúnistisku“ grimmdar tékknesku
lögreglunnar reyndist, þegar að var gætt, sár af slysa-
skoti á fæti eins ungs manns o. s. frv.
Elskaður og virtur maður af þjóð sinni, Jan Masaryk,
ræður sér bana. Hann hafði ekki fengizt til að fyllá hóp
samsærismanna, en reynzt trúr þjóð sinni á örlaga-
stundu, hafði setið kyrr í ráðherrasæti sínu og tekið
þátt í lausn stjórnarkreppunnar, en bakað sér þess
vegna persónulegar árásir „vinanna“ í vestri.
Þótt erfitt sé með augum ótruflaðrar skynsemi að
sjá neitt við þessa atburði sem gæti gefið ástæðu til að
fólk óskaði eftir alheimsstríði, eru það eigi að síður
þessir atburðir, sem haugbúum nútímans hefur þótt
gefa tilefni til glórulausrar gjörningahríðar gegn ríkj-
um alþýðunnar og samtökum hennar í öllum löndum.
Ástæðan er þessi: Tékkneska þjóðin hafði lært það
mikið af reynslu þeirra ára, er nazisminn ríkti þar
og var enn það minnug þess hvaðan þeir komu er sviku
hana í hendur nazismanum með Múnchen-samningun-
um, að hún lét ekki hinn nazistiska galdur villa sér
sýn, þótt hann kæmi að þessu sinni vestan um haf og
sama lagið væri kyrjað á engilsaxneska tungu.
Hinn vestræni fasismi, með lýðræðið og þingræðið
á vörunum, byggði von sína á samsæri og vopnaðri
uppreisn gegn löglegri stjórn og löglegu þingi Tékkó-
slóvaka, eins og möndulríkin forðum í sambandi við
Franco-uppreisnina á Spáni, en varð uppvís að glæpn-
um áður en tími vannst til að kotna honum í framkvæmd.
Það er hinn misheppnaði galdur, það er ósigurinn
fyrir ótruflaðri skynsemi menningarþjóðarinnar í
Tékkóslóvakíu, Það er óttinn við að lýðræðið í Italíu
og öðrum grannríkjum Tékkanna haldi sömu leið, er
kemur nú haugbúum tuttugustu aldarinnar til að magna
seið sinn um allan heim, ef takast mætti enn um skeið
að tefja sókn lífsins og sigur mannvitsins yfir forn-
eskjunni, um gjörvalla jörð.
Með kynjamyndum úr ríkjum alþýðunnar er það
hlutverk galdursins að réttlæta það, að undir forystu
Bandaríkja Norður-Ameríku hefur verið riðað net her-
stöðva umhverfis alþýðulýðveldin, frá Alaska austur
og hringinn suður og vestur og norður til íslands, en
ekki hvað sízt, að fá heiminn til að gleyma því, að í
Bandaríkjunum fer nú fram nazistisk hreinsun af öll-
um „óamerískum“ skoðunum, sem sé skoðanakúgun,
sem stefnt er, eftir fyrirmynd Hitlers, fyrst og fremst
að samtökum verkalýðsins og beztu forystumönnum
þeirra.
í Bandaríkjunum hefur auðstéttin þegar hafið árás
á hagsmuni vinnandi fólks og hyggst að velta hinni
komandi kreppu yfir á herðar þess með enn stærri
árás.
Þetta gráðuga og grimma auðvald hefur sem kunn-
ugt er með skipulagningu svonefndra Marshall-landa
ýmist ginnt eða kúgað hóp þjóða inn í kreppukerfi sitt
og skipuleggur nú fjárplógsstéttirnar þar til hungur-
árása á alþýðu þessara landa.
Undir áhrifum galdursins er alþýðu auðvaldsland-
anna ætlað að stara skelfdum augum á kynjamynd-
72
VINNAN