Vinnan - 01.05.1948, Qupperneq 16
JÓN BJARNASON:
Dagur hins vinnandi fólks
Einn vordag á ári hverju dunar jörðin af fótataki
hinna vinnandi milljóna. Þeirra milljóna sem jörðina
erja í sveita síns andlitis, vinna í námum málma og
kola, smíðar vélar og skip, byggja hús og aflstöðvar.
sigla um höfin, veiða fiskinn, framleiða brauð.
Þessi dagur er fyrsti maí. Hann er reikningsskiladag-
ur vinnandi manna um heim allan. Hátíðardagur og
baráttudagur þess fólks er framleiðir þær nauðsynjar
sem nútíma menningarlíf byggist á. Án starfs þessa
fólks væru engin lífsþægindi, engin menning, maðurinn
enn einungis eitt af dýrum merkurinnar, verkfæralaus.
nakinn, hefðist við í hellisskútum og undir trjábolum.
Það er vinnan sem hefur skapað þau verðmæti og lífs-
þægindi sem mannkynið í dag nýtur og dásamar. Án
vinnu engin lífsþægindi, ekkert menningarlíf, aðeins
umkomulaust volæði skepnunnar sem á líf sitt undir
veðrum og vindum.
Enginn hlutur virðist eðlilegri og sjálfsagðari en
það, að á hátíðardegi þess fólks sem með starfi sínu
skapar allt það sem nútíma menningarlíf byggist á, ríki
einróma fögnuður og gleði. Það er þó síður en svo sé.
1. maí er ekki aðeins hátíðardagur vegna unninna af-
reka, dagur fagnaðar og gleði, hann er jafnframt og
miklu fremur dagur baráttu. heitstrenginga, liðssafn-
aðar. — Margan 1. maí hefur jörðin litazt blóði þess
fólks sem framleiðir lífsgæðin.
Það er vegna þess að þeir er lífsgæðin framleiða eru
ekki eigendur þeirra, né njótendur nema að takmörk-
uðu leyti. Það eru aðrir sem „eiga“ og njóta. Það eru
þeir menn sem slegið hafa eign sinni á jörðina og auð-
lindir hennar, mennirnir sem ;,eiga“ verksmiðjurnar,
skipin, framleiðslutækin, hverju nafni sem þau nefnast.
Án vinnandi manna er vélin aðeins máhnur sem stend-
ur kyrr; án vinnu verða engin föt til, ekki matvæli né
hús, engin verkfæri, ekkert þeirra nauðsynja sem nú-
tíma mannfélag þarfnast. En í þjóðfélagi kapitalismans
fær hið vinnandi fólki ekki þau verðmæti sem það
skapar með vinnu sinni, heldur greiðir „eigandi" fram-
leiðslutækjanna því kaup. Það kaup er ekki nema nokk-
ur hluti þess verðmætis sem verkamaðurinn hefur skap-
Kröfugangan I. maí 1947
að staðnœmast á Lœkjartorgi
áður en útifundurinn hefst.
74
VINNAN