Vinnan - 01.05.1948, Qupperneq 29
og viðhorf manna. Andstæðingar verkalýSsins skilja
þetta til hlítar. Þess vegna halda þeir úti fjölda blaSa
og rita, sem beinlínis hafa þaS hlutverk aS villa um
fyrir fólki og forheimska þaS. Til þessarar starfsemi er
hvorki spöruS fyrirhöfn né fé.
Hlutverk blaSa og tímarita verkalýSsins er alveg
gagnstætt. Þau eru gefin út til þess aS flytja lesendun-
um réttar upplýsingar og fræSslu um þau félagslegu
vandamál, sem eru á dagskrá í hvert skipti, efla skiln-
ing þeirra og gera þeim færara en ella mundi til þess
aS sjá viS blekkingum stéttarandstæSingsins, og aS
leggja fram, af grundvallaSri þekkingu, virkan skerf í
þeirri baráttu, sem verkalýSsstéttin á jafnan óhjákvæini-
lega í fyrir betri kjörum og aukinni menningu.
Rit og blöS verkalýSsins eru uppeldis- og fræSslu-
tæki fyrir stéttina, jafnframt því sem þau vinna aS því
aS skapa málstaS og viShorfum samtakanna skilning
og fylgi þeirra, sem utan viS standa.
BlöS og tímarit eru þau vopn, sem verkalýSsstéttin
getur nú einna sízt án veriS í frelsisbaráttu sinni.
En gildi blaSa og tímarita fer eftir útbreiSslu og les-
endafjölda. Vel skrifaS og útbreitt rit er ómetanlegur
stuSningur hverju máli, sem þaS beitir sér fyrir og er
ein dýrmætasta eign, sem félagsskapur vinnandi stétta
getur komiS höndum yfir.
Þetta á ekki sízt viS nú, þegar lögS er á þaS meiri
áherzla en e. t. v. nokkru sinni fyrr aS afflytja réttinda-
og menningarbaráttu alþýSunnar og gerSar eru ósvífn-
ari tilraunir en áSur hafa þekkzt til þess aS telja fólki
trú um aS svart sé hvítt og hvítt svart. Fyrsta skilyrSiS
sem þarf aS uppfylla til þess aS alþýSa manna sleppi
ókalin úr þessu gerningaveSri, er aukin þekking, og
aftur aukin þekking. Og í því efni hafa blöS og tímarit
alþýSunnar vissulega mikilsverSu hlutverki aS gegna.
ASstandendur Vinnunnar hafa fullan hug á aS efla
ritiS og bæta sem vopn og verju í baráttu alþýSunnar
fyrir bættri lífsafkomu og vaxandi menningarskiIyrS-
um. En allar umbætur og framfarir kosta fé. Til viSbót-
ar því, sem fyrr er sagt um nauSsyn aukinnar út-
breiSslu, þarf Vinnan fleiri kaupendur og meira fé til
umráSa, eigi ritiS aS taka verulegum framförum og
uppfylla óskir lesendanna um fjölbreyttara efnisval.
Því er treyst, aS Vinnan eigi þeim vinsældum aS fagna,
aS fjölmennur hópur lesenda hennar og áhugamanna í
verkalýSshreyfingunni um allt land bregSi nú viS og
safni hundruSum nýrra kaupenda. Vinnan heitir ekki
aSeins á sína tryggu og gömlu liSsmenn til þátttöku í
þessari sókn. Þeir munu enn sem fyrr reynast verSugir
þess trausts, sem til þeirra hefur veriS boriS. En Vinn-
an væntir nýrra liSsmanna til viSbótar. Vinnan inn
á hvert heimili meSlima alþýðusamtakanna er takmark-
iS, sem aS er stefnt. Og því marki verSur náS, leggi
nægilega margir krafta og starf fram.
/■-----------------------------------------------------------------------------------N
Vilhjálmur frá Skáholti:
BÆ N
GefSu mér, Drottinn, dýrSlegt sólskin þitt,
og dálítiS regn til aS vökva jurtir mínar,
verndaSu fjóluna, fegursta blómið mitt,
Fjólu Jónsdóttur, eins og nunnur þínar.
VerndaSu hana sem hló aS trú minni í gær,
hana sem forboSiS eitriS í leyni drekkur
og byggSi okkur höll í landi sem lindin tær,
h'Sur fallega niSur grænar brekkur.
Veittu okkur snauSum gull úr grænum mó,
gimsteina úr hjarta, perlu af snjöllum orSum,
fallegan bíl, og föt meS engri ló,
freySandi vín, og mat á glæstum borSum.
Bæn mín er helguS blóSi manns, sem dó,
bjargi þaS mér, sem ræningjanum forSum.
'---------------------------------------------J
MaSur hringdi til kunningja síns og bauS honum
í staupinu. Þá orti kunninginn eftirfarandi vísu:
Undarleg er ævin mín,
alltaf harSnar glíman.
Mér var boSið brennivín,
en bara í gegnum símann.
Bakkusarvísa
Eg hef drukkið eins og svín
og í sukkiS gengið.
Því hefur lukkan lífsins mín.
ljótar hrukkur fengiS.
Halldór Stefánsson.
VINNAPr
87