Vinnan - 01.05.1948, Page 32
BJORN BJARNASON:
Alþjóðasambandið
og ráðstefnan í London 9.-10. marz
Borgarablöðin hér hafa látið sér mjög tíðrætt um þá
ákvörðun Alþýðusambands íslands að hafna þátttöku
í ráðstefnu þeirri um Marshalláætlunina, er boðuð var
í nafni brezka verkalýðssambandsins og verkalýðs-
sambanda Beneluxlandanna svonefndu og haldin var í
London dagana 9. og 10. marz síðastliðinn. Hafa blöð
þessi komið fram með hinar furðulegustu ásakanir á
hendur miðstjórninni, talað um landráðastarfsemi, hót-
að klofningi í samtökum verkalýðsins og fleira þvílíkt.
Allur þessi bægslagangur út af því, að Alþýðusam-
band íslands skuli ekki taka þátt í skyndiráðstefnu
nokkurra verkalýðssambanda er í fljótu bragði lítt
skiljanlegur, en ef við hins vegar athugum tilgang
þeirra er frumkvæði áttu að því, að þessi ráðstefna
var haldin, förum við að eiga hægara með að átta
okkur á vonbrigðum andstæðinga verkalýðssamtakanna
yfir því að Alþýðusamband Islands var ekki í þessum
hópi.
Hugmyndin um að verkalýðssambönd Marshallland-
anna svonefndu héldu ráðstefnu um Marshalláætlun-
ina kom fyrst fram í okt. síðastl. frá bandaríska verka-
lýðssambandinu, American Federation of Labour (A.
F. L.), en það er sem kunnugt er utan Alþjóðasam-
bands verkalýðsfélaganna (W. F. T. U.) og svarinn
fjandmaður þess.
Síðan 1946 hefur A. F. L. haft erindreka sinn, Irving
Brown, í Evrópu beinlínis í þeim tilgangi að reyna að
koma á sundrungu innan Alþjóðasambandsins. Það
hefur með fégjöfum reynt að kaupa einstök verkalýðs-
sambönd til fylgis við sundrungarstefnu sína, og með
tilkomu Marshalláætlunarinnar fengu þessar sundr-
ungartilraunir fast form.
Að þessar fullyrðingar séu ekki fleypur eitt mun ég
nú sanna með nokkrum dæmum:
1. í janúar 1946 var sendinefnd frá Alþj óðasamband-
inu á ferð í Þýzkalandi til að kynna sér ástand verka-
lýðshreyfingarinnar þar. Um þá ferð skrifar Irving
Brown meðal annars: „Allt þeirra ferðalag var með
því sniði, er stórhöfðingjar ferðast . . . Mestur tími
nefndarinnar fór í át- og drykkj uveizlur með her-
námsyfirvöldunum.“ —- 1 þessari sendinefnd voru
meðal annarra þeir Kupers og Jouhaux, sem nú upp
á síðkastið hafa gengið í þjónustu sundrungarafl-
anna innan Alþjóðasambandsins, svo að þessi um-
mæli Browns hafa ekki átt að sverta þá persónulega,
heldur skapa almenna tortryggni í röðum þess.
2. 18. marz 1947 stendur eftirfarandi í blaði A. F. L.:
„Davíð Dubinsky, forseti sambands kvenfatasaumara
(A. F. L.) afhenti hollenzka sendiherranum í Banda-
ríkjunum, Alexander Loudon ávísun að upphæð
100.000 dollara, er var gjöf til hollenzka verkalýðs-
sambandsins N. V. V., gefin eins og hr. Dubinsky
tók fram, vegna skoðanalegs skildleika.
Rás viðburðanna hefur nú sýnt árangur þessa
skoðanalega skildleika, því að Kupers forseti N. V.
V. var einn af boðendum ráðstefnunnar í London.
3. I mánaðarriti A. F. L. jan. 1948 skrifar Irving
Brown lariga grein undir fyrirsögninni: „Góð tíð-
indi frá Frakklandi“. Þar ræðir hann um stofnun
hins nýja klofningssambands hægri-kratanna, Force
Ouvriere, sem hann gerir sér vonir um að muni ná
örari vexti en raun hefur orðið á. I þessari grein
hvetur hann A. F. L. til að veita þessu nýja klofn-
ingssambandi allan þann stuðning er það megi, bæði
siðferðilegan og fj árhagslegan, og ennfremur að
beita verði Marshalláætluninni út í æsar til að ná
forystunni í alþjóðamálum verkalýðssamtakanna, og
til þess beri að nota þau verkalýðssambönd er standi
utan Alþjóðasambandsins.
4. Ennfremur segir þessi sami erindreki A. F. L. í viku-
blaði þess frá 6. jan. 1948, þar sem hann ræðir um
ráðstefnuna í London: „Upp úr þessari ráðstefnu á
að rísa nýtt alþj óðasamband er taki við af W. F.
T. U.“ (Alþjóðasambandi verkalýðsfélaganna).
Þessi dæmi ættu að nægja til að sýna að það er ég
sagði í upphafi var sízt ofmælt, og um tilgang þeirra er
frumkvæði áttu að þessari ráðstefnu þarf ekki að fara
í neinar grafgötur, hann var sá að efna til sundrungar
og, ef hentugt þætti, klofnings í Alþjóðasambandinu,
enda undirbúningur allur í samræmi við þann tilgang.
Fulltrúum á ráðstefnunni var ætlað að taka afstöðu til
málsins á tveggja daga ráðstefnu, án þess að hafa átt
þess nokkurn kost að kynna sér málið áður.
Að undirlagi A. F. L. koma þeir Deakin frá Bret-
90
VINNAN