Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Qupperneq 13

Vinnan - 01.12.1976, Qupperneq 13
1930, rétt áður en áhrifa kreppunnar tók að gæta hér fyrir alvöru. Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar segir svo frá í afmælisviðtali á 70 ára af- mæli félagsins: „Persónulega er mér minnisstæð þessi breyting fyrri hluta árs 1930, að byrja vinnu kl. 7 á morgnana í stað kl. 6 áður. Ég hafði þá þegar unnið verkamannavinnu í nokkur ár og er mér cinkar minnisstætt, hve geysileg breyting þetta var. Fann ég þá best að fleira er kjarabót en kauphækkun ein. Undanfari þessarar vinnutíma- styttingar var sá, að veturinn 1929-30 hafði mikil næturvinna verið unnin við höfnina og margir verkamenn höfðu veikst úr lungnabólgu af vos- búð og þrældómi. Var þá um svipað leyti ákveðið að banna næturvinnu eftir kl. 10 á kvöldin og hefja vinnu klukkan 7 að morgni í stað klukkan 6.“17 1 þessari frásögn kemur fram, á hvern hátt Dagsbrúnarmenn fyrir tæp- lega hálfri öld brugðust við er þeir sáu á eftir vinnufélögum sínum í gröf- ina vegna lungnabólgu og þrældóms. 1 dag má spyrja, hvort hinn langi vinnudagur verkafólks sé ekki frum- orsök ýmissa sjúkdóma og meinsemda í íslensku samfélagj. Jafnframt er beint samband milli vmnuþrælkunar og tak- markaðs fræðslu- og félagsstarfs verkalýðsfélaganna. Söguleg reynsla verkalýðshreyfingarinnar sýnir vel að það er aðeins með eindregnum félags- skap og samtakamætti sem sigrar vinnast í baráttunni fyrir raunveru- legri styttingu vinnudagsins. Að hindra sveitaflutninga og vernda alþýðuheimilin Áður hefur verið að því vikið að íslenskur verkalýður þurfti ekki að heyja baráttu fyrir kosningarétti. Stjómarskráin 1915 tryggði nær öllum kosningarétt og frekari jöfnuður náð- ist við breytingu 1920. En eitt atriði skorti á. Samkvæmt lögum misstu menn kosningaréttiim, ef þeir sögðu sig til sveitar vegna fátæktar. Þetta ákvæði reyndi harkalega á, þegar harðnaði á dalnum á kreppuámnum. Árið 1932 urðu margir verkamenn að segja sig til sveitar vegna atvinnu- leysis og misstu þá kosningarétt. En annað ákvæði reyndist þó sárara fyr- ir fátæklinga á fslandi, en það var á- kvæðið um sveitaflutninga. Samkvæmt lögum gat sveitarfélagið (hreppurinn) þar sem maður dvaldi skotið sér und- ,an þeim kostnaði er sveitarlimir höfðu í för með sér og skipað viðkomandi aðila að fara á sinn fæðingarhrepp. Þannig var mögulegt að sundra fjöi- skyldum með valdboði og láta yfir- völd flytja viðkomandi aðila á sinn fæðingarhrepp. Þessu fengu fjölmarg- Gcrðardómslögin 1942 „Ríkisstjóri fslands gerir kuxmugt: Við s.l. áramót kom fram ágreiningur milli vinnuveit- enda og vinnuþega í nokkmm iðngreinum í Reykjavík út af kröfum um breytingu á kjara- samningum, aðallega í þá átt, að grunnkaup hækki frá því sem verið hefur. Ef sú stefna yrði tekin að hækka grunnkaup, yrði afleiðingin óhjákvæmilega sú, að dýrtíðin í landinu myndi auk- ast verulega og telur ríkisstjórn- in brýna nauðsyn bera til að koma í veg fyrir það, bæði með því að takmarka rétt til hækk- unar á grunnkaupi, svo og með því að gera víðtækar ráðstafan- ir til þess að halda verðlagi á nauðsynjavörum í skefjum. . . . 1. gr. Ríkisstjómin skipar 5 menn í gerðardóm í kaupgjalds- og verðlagsmálum, og skal einn þeirra skipaður formaður dóms- ins. ... 4. gr. Verkföll og verk- bönn sem gerð eru í því skyni að fá breytingar á kaupi eða kjörum em óheimil frá gildis- töku laga þessara og nær þetta einnig til verkfalla sem þegar em hafin“. „Dagur verkamannsins“ „Dagur verkamannsins — svo segja blöðin hvert með öðru, að þessi dagur heiti. Og ekki sýnist það óréttmætt, að erfiðismaður- inn eigi sinn sérstaka dag. Það er ekki ósanngjarnt, að þjóðar- heildin minnist verkamannsins sérstaklega á vissum degi, til- einki honum einn árlegan tylli- dag. Má ekki segja, að hinn vinnandi maður til lands og sjávar gefi oss, sem erfiðum ekki líkamlega, alla daga ársins? Hann gefur oss handtök sín, strit sitt. Hann sáir sveita sínum í svörð og mold, í möl og grjót landsins, og vér uppskerum á- vextina. Hann siglir særokinn um miðin kringum landið og til erlendra hafna oss til bjargræð- is. Upp af erfiði hans sprettur þjóðarauðurinn, þaðan fljóta fjármunirnir til styrktar andlegri VINNAN 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.