Vinnan - 01.12.1976, Qupperneq 15
» /æ í':(: u fl
Úr verslun Zimsen í Reykjavík.
arflutiiingi var beitt sérstaklega gagn-
vart þeim er höfðu sýnt þá djörfung
að taka forystu í verkalýðsbaráttunni
í sínu plássi. Þannig vofði sveitarfiutn-
ingur yfir formanni Verkalýðsfélags
Bolungarvíkur vorið 1932 eftir að hann,
vegna veiikinda um veturinn, hafði
orðið að leita aðstoðar hreppsfélags-
ins. Fékk hann bróf frá hreppsnefnd-
inni þess efnis að ef hann tryggði ekki,
að hann þyrfti ekki að leita á náðir
sveitarinnar, þá yrðu börnin tafarlaust
tekin af honum og komið fyrir á „góð-
um heimilum“. Ekki er að efa að þeir
hefðu framfylgt þessari hótun, enda
var Hannibal Valdimarsson fluttur
nauðugur frá Bolungarvík er hann var
þar í erindagjörðum fyrir verkalýðs-
hreyfinguna á þessu sama ári. At-
vinnurekendur staðarins og hrepps-
nefndin urðu að láta undan í báðum
þessum málum vegna eindreginna mót-
mæla verkalýðsins. 20)
Baráttan gegn sveitaflutningunum
hafði mikið að segja í atvinnuleysis-
baráttu verkalýðsins 1930—40. 1 þeirri
baráttu fundu mörg alþýðuheimilin,
að það voru hin pólitísku og faglegu
samtök verkalýðsins sem voru brjóst-
vöm alþýðuheimilanna. Þegar Alþýðu-
flokkurinn vann sinn mikla kosninga-
sigur 1934, þá setti hann það sem skil-
yrði við myndun ríkisstjómar,, hinna
vinnandi stétta“, að lögin um sveita-
flutninga yrðu afnumin og menn
misstu ekki kosningarétt sökum fá-
tæktar.
Alþjóðleg samstaða
verkalýðsins
Að líkindum hefur alþjóðahyggja
verkalýðsins aldrei verið meiri en á
kreppuárunum og svo var einnig hér
á landi. Þá beittu íslensk verkalýðsfé-
lög samtakamættinum til að sýna
stéttarbræðrum sínum eriendis sam-
hug. Skýrast birtist þetta í þeim að-
gerðum hafnarverkamanna að neita
að vinna undir hakakrossfána nasista
í þýskum skipum, þeim sama fána er
var tákn ofbeldisaðgerða gegn þýskum
verkalýð. Andfasistabaráttan var eink-
um áberandi hjá Kommúnistaflokki
fslands og einnig Alþýðuflokknum, en
hvað verkalýðsfélögin snertir voru að-
gerðir hafnarverkamanna í Díönu-
slagnum í Reykjavík, Siglufirði, Akur-
eyri, Eskifirði og Vestmannaeyjum
skeleggastar. Þar var neitað að vinna
undir hakakrossfánum, þeir ýmist
skornir niður eða neitað um afgreiðslu
á viðkomandi skipum. Þá birtist bar-
áttan gegn ógnunum fasismans í sam-
hug verkalýðsins með baráttu alþýðu
Spánar í borgarastyrjöldinni 1936—39
og vaxandi samfylkingartilraunum
verkalýðsflokkanna á þeim tíma hér
á landi.
Á eftirstríðsárunum hefur heldur
minna farið fyrir alþjóðahyggj-
unni en þó einna helst orðið vart við
skilning á nauðsyn alþjóðlegrar sam-
stöðu varðandi glímuna við fjölþjóða-
fyrirtækin.
Nauðsyn pólitískrar
samstöðu
Þegar Alþýðusamband fslands var
stofnað fyrir 60 árum var sambandið
jafnframt Alþýðuflokkurinn. Er
Kommúnistaflokkur fslands var stofn-
aður 1930, var kommúnistum meinuð
VINNAN 15