Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 20
til að greiða orlof samkvæmt því kerfi
sem um var getið í fyrrgreindu frum-
varpi, jafnvel þó Alþingi samþykkti
ekki siíka löggjöf. Fyrir þennan tíma
höfðu að vísu einstök iðnaðarmanna-
fólög náð inn í samninga ákvæðum um
orlof. Þannig hafði Hið íslenska prent-
arafélag fengið inn í samning árið
1920 sumarfrí 6 daga á fuhu kaupi.
Með samningnum haustið 1942 fékkst
12 daga sumarleyfi og atvinnurekend-
ur samþykktu að greiða 4% í orlofs-
sjóð. Þessi prósenta hækkaði um 1%
í verkfallinu 1952. Á þinginu 1942
til ’43 voru orlofslögin samþykkt
samkvæmt þcssum samningi en síðan
hefur orlofstíminn lengst, nú síðast
samhliða kjarasamningunum 1972 í
4 vikur. Þannig var unninn sigur í
þessu réttindamáli og knúin fram lög-
festing orlofs.
Hitt dæmið er sex vikna verkfallið
vorið 1955. Verkalýðshreyfingin hafði
búið við langvarandi atvinnuleysi frá
árinu 1950 og samhliða því verið
framkvæmd mikil kjaraskerðing. Taldi
ASÍ að ná yrði um 20% kauphækk-
un, því kaupmátturinn hafði rýrnað
um 17% fyrir utan hlut húsaleiguok-
ursins í kjararýrnuninni. Svo virðist er
verkalýðshreyfingin leggur til atlögu
í mars 1955 að ætlun atvinnurekenda
og ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks hafi verið að reyna að
beygja verkalýðsstéttina með lang-
vinnu verkfalli. Það tókst hins vegar
ekki því verkfallið varð stöðugt víð-
feðmara og verkfallsverðir hindruðu
ítrekaðar tilraunir til verkfallsbrota,
einkum varðandi olíulöndun. Eftir sex
vikna verkfall takast samningar um
10% kauphækkun. 1% veikindapen-
inga, 18 daga orlof og síðast en ekki
síst gefur ríkisstjórnin fyrirheit um að
lögfesta atvinnuleysistryggingar í
samræmi við frumvarp um slíkar
tryggingar, sem sósíalistar höfðu flutt
á Alþingi á hverju þingi í 14 ár. Þann-
ig þurfti sex vikna verkfall til að ná
fram þessu gamla baráttumáli alþýðu-
samtakanna, en fyrst hafði hugmynd-
inni um atvinnuleysistryggingar verið
hreyft hjá HlP veturinn 1899.
Krafan um eflingu íslensks
atvinnulífs
Þegar blaðað er í samþykktum Al-
þýðusambandsþinga í áranna rás, er
áberandi kröfugerðin um eflingu ís-
20 VINNAN