Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Qupperneq 21

Vinnan - 01.12.1976, Qupperneq 21
lensks atvinnulífs. Skýrast kemur þessi stefna fram er Alþýðusambandsþing samþykkir „4 ára áætlun um fram- kvæmdir 1935—39 er miðist við lýð- ræði í stjómmálum, skipulag á þjóð- arbúskapnum og vinnu handa öll- um.“21) Það sama verður uppi á ten- ingnum er verkalýðsflokkarnir mynda stjórn með höfuðstéttarandstæðingn- um, Sjálfstæðisflokknum, í okt. 1944 og hafin var nýsköpun íslenskra at- vinnuvega er byggði á innistæðum Is- lands í enskum bönkum (580 millj- ónum). Eftir atvinnuleysisárin 1950—1955 gerði verkalýðshreyfingin miklar kröf- ur um eflingu íslenskra atvinnutækja og því tengdist jafnframt krafan um að- gerðir í landhelgismálinu, þ.e. útfærslu í 12 milur. Þessar kröfur koma fram í samþykktum þinga og félagsfunda verkalýðssamtakanna. Þannig hefur verkalýðshreyfingin ávallt látið sig miklu skipta eflingu íslensks atvinnu- lífs svo tryggja megi atvinnuöryggið. Það eru einmitt tengsl landhelgismáls- ins við spurninguna um atvinnuörygg- ið sem beint hafa athygli samtaka launafólks svo mjög að þessu máli og hafa verkalýðssamtökin átt sinn þátt í landhelgisbaráttunni s.l. áratugi. Meðal annars hefur ASÍ staðið að mótmælafundum gegn yfirgangi breta. Á árinu 1961 var alvarlega um það rætt hér á landi, hvort sækja ætti um aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu. Viðskiptaráðherra bað um umsögn helstu hagsmunasamtaka um málið. 16. ágúst 1961 kallaði ráðherrann fuiltrúa á fund og kom þá fram að flestir fulitrúar töldu tímabært að sækja um aðild að EBE, ef bretar og danir sæktu um inngöngu. I ályktun miðstjórnar ASÍ kemur aftur á móti fram skelegg afstaða. Þar segir: „Mið- stjóm Alþýðusambands Islands telur, að ekki geti komið til niála, að ríkis- stjóm Islands hefji nú samninga við Efnahagsbandalagið nieð væntanlega þátttöku Islands fyrir augum.“ Varaði ASÍ sérstaklega við hættunum er Rómarsáttmálinn fæli í sér, þ.e. að erlent fjármagn og vinnuafl gæti flætt óhindrað innan bandalagsins, en slíkt væri ógnun við sjálfstæði landsins. Gaf ASt út upplýsingabækling um málið þar sem fyrrgreind samþykkt er birt. Þannig var það aðeins Alþýðusam- bandið sem hafði einurð til að mót- mæla aðild að EBE haustið 1961, er ráðamenn höfðu áætlað inngöngu í bandalagið, sem þýtt hefði uppgjöf sjálfstæðs íslensks atvinnureksturs á altari peningaveldis Vestur-Evrópu. Afskipti ASl og samtaka launa- fólks af atvinnumálum koma einkum fram á atvinnuleysistímum, þá leggur hreyfingin áherslu á að tryggja verði atvinnuöryggið. Árið 1935 heyja járniðnaðarmenn langt verkfall til að knýja skipaeigendur til að senda ekki skip út til viðgerða meðan verkefna- skortur var hérlendis. Andradeilan svonefnda stóð í 8 vikur og snerist fyrst og fremst um aðgerðir til að draga úr verkefnaskorti smiðjanna. Þannjg hefur Félag járniðnaðamianna og fl. orðið að beita samtakamættin- um til að knýja fram aðgerðir til að styrkja íslenskan iðnað. Húsnæðismálin eru kjaramál Snemma hóf verkalýðshreyfingin að hafa afskipti af húsnæðismálum. Eitt af fyrstu baráttumálum þing- manna Alþýðuflokksins á þriðja ára- tugnum var frumvarp til laga um verkamannabústaði. I fyrstu var illa tekið í þetta en loks látið undan árið 1927 (sjá grein um húsnæðismálin í þessu hefti Vinnunnar). Annars leit hið opinbera svo á, að það væri ekki í verkahring þess að stuðla að bygg- ingu íbúðarhúsnæðis. Einkum vora Sjálfstæðismenn fyrir stríð mjög and- vígir afskiptum hins opinbera af hús- næðismálum, eins og reyndar alþýðu- tryggingum. En gagngerð breyting varð á þessu cftir stríð, einkum eftir 1959. Um bein afskipti verkalýðssamtak- anna af húsnæðismálum er gleggsta dæmið frá samningum verkalýðsfé- laganna vorið 1965. I tengslum við þá var birt yfirlýsing ríkisstjórnarinn- ar um húsnæðismál, samin af sam- starfsnefnd ASl og stjórnvalda. Þar var m.a. lýst yfir að hafist verði handa um byggingu hagkvæmra íbúða fyrir láglaunafólk og verði í því skyni byggðar 250 íbúðir árlega á áranum 1966—70. Veitt verði lán til a.m.k. 33 ára fyrir 80% kostnaðarverðs íbúð- anna. Jafnframt átti að framkvæma heildarendurskoðun laga um verka- mannabústaði með það fyrir augum að þetta nýja átak í húsnæðismálum nái til landsins alls. Um þessa yfirlýsingu sagði einn forsvarsmanna Verkamannasambands Islands: „Takist að framkvæma þessa áætlun um íbúðabyggingar, er það stærsta félagslegt átak, sem fram- kvæmt hefur verið til lausnar á hús- næðismálum láglaunafólks og mun brjóta blað í húsnæðiskostnaði lægst launaða verkafólksins í Reykjavík og annars staðar á landinu.“2/') I síðari samningum hefur einnig verið fjallað um húsnæðismál og þó menn greini á um framkvæmd samkomulags af þessu tagi, þá verður ekki framhjá því gengið að húsnæðismálin eru mál sem verkalýðshreyfingin verður að láta til sín taka. Án hennar afskipta er lítið um félagslegt átak á sviði hús- næðismála. Að vernda vinnufélaga gegn uppsögnum Barátta íslenskrar verkalýðshreyf- ingar kann að greina frá fjölmörgum dæmum þess að trúnaðarmenn launa- fólks hafi sætt atvinnuofsóknum. Gegn slíkum aðgerðum atvinnurekenda er aðeins til eitt svar og það er samstaða stéttarbræðranna á vinnustað. Mörg dæmi era um skyndiaðgerðir af þessu tilefni. Á kreppuárunum var Félag járn- iðnaðarmanna eitt skcleggasta stéttar- félagið á höfuðborgarsvæðinu. For- maöur þess Loftur Þorsteinsson þótti ærið róttækur og bundust smiðjueig- endur samtökum um að ráða hann ekki eftir að honum var sagt upp í Vélsmiðjunni Héðni árið 1936. Stóðu járnsmiðir vcl við hlið forystu- manns síns og loks tókst að koma þessum færa eldsmið aftur í vinnu í smiðju. Aftur beittu smiðjueigendur þessu á atvinnuleysistímanum 1952 er þrem forystumönnum félagsins var sagt upp störfum hjá Héðni, þeim Snorra Jónssyni formanni félagsins, Kristni Ágúst Eiríkssyni varaformanni og Jónasi Hallgrímssyni trúnaðar- manni félagsins á staðnum. Þessari á- rás var harðlega mótmælt af verka- lýðssamtökunum, en nú var öldin önnur því vinnulöggjöfin gerði kleift að kæra þetta atriði fyrir Félagsdómi. Var Vélsmiðjan Héðinn dærnd í sektir en ekki skylduð til að ráða þá aftur. Skammt er síðan atvik af ámóta til- efni kom fyrir í Kaupfélagssmiðjunum á Selfossi og varð til þess að þar var háð langvinn vinnudeila. Þá hefur nokkuð borið á því að atvinnurekend- ur hafi reynt að segja upp eldri verka- VINNAN 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.