Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 31
Fyrstu verkamannabústaðirnir við Selvogsgötu í Hafnarfirði í byggingu árið 1934.
átti sig betur á hve markið er sett
hátt má benda á, að hér er um að
ræða byggingu 800—900 íbúða á ári
hverju miðað við það, að heildarþörf
nýs húsnæðis sé um 2500—2700 íbúð-
ir á ári. 1 yfirlýsingunni segir einnig,
að íbúðir þessar skuii ýmist vera
verkamannabústaðir, söluíbúðir (eins
,og t.d. FB-íbúðimar) eða leiguíbúðir
(t.d. á vegum sveitarfélaga). Þar segir
einnig, að lánakjör á íbúðunum skuli
eigi vera Iakari en þau, sem nú gilda,
byggingaráfangar verði það stórir, að
kostir fjöldaframleiðslu nýtist svo sem
frekast er kostur og haft verði fuMt
samráð við verkalýðsfélögin um fram-
kvæmd þessa. Þá er því einn-
ig lýst yfir, að vænta megi þess
að launaskattur í þágu Bygginga-
sjóðs ríkisins verði hækkaður úr
1% í 2%, sem var gert með
lögum litlu síðar. Síðast en ekki
sízt segir, að yfiriýsingin sé gefin í
trausti þess, „að þátttaka lífeyrissjóða
stéttarfélaga í fjármögnun þessara fé-
lagslegu bygginga verði 20% af árlegu
ráðstöfunarfé þeirra". Er sú þátttaka
í framkvæmd á þann veg, að lífeyris-
sjóðimir kaupa skuldabréf af Bygg-
ingasjóði ríkisins og em þau verð-
tryggð til fulls í samræmi við þróun
byggingarvísitölunnar. — Undir þessa
yfirlýsingu skrifuðu þáverandi ráð-
herrar Björn Jónsson, Haildór E. Sig-
urðsson og Lúðvík Jósepsson. Sam-
hliða þessari yfirlýsingu var önnur gef-
jn út af samninganefnd ASl, þar sem
tilkynnt var m.a„ að hún hefði sam-
þykkt efnislega þessa húsnæðismála-
yfiriýsingu ríkisstjómarinnar.
Sú saga, sem hér hefur verið rakin
í tiltölulega stuttu máli, fjalíar í raun
um mjög mikilvæga þróun, sem hefur
haft jákvæð úrslitaáhrif á lífshamingju
mörg þúsund einstaklinga í fjölskyldum
Iaunafólks um land allt á síðustu
47 árum. Raunar er einnig ljóst, að
þær framkvæmdir sem hér um ræðir,
hafa haft mun víðtækari áhrif til góðs
í þjóðlífinu. Áður var bent á, að á
vegum „gamla verkamannabústaða-
kerfisins“ voru byggðar 1748 íbúðir,
Framkvæmdanefnd byggingaráætlun-
ar hefur þegar byggt 1221 íbúð og
nýja verkamannabústaðakerfið hefur
þegar fuilgert 126 íbúðir. Samtals em
þetta 3095 íbúðir, sem beinlínis hafa
verið byggðar fyrir launafólkið í land-
inu og í þágu þess. Þess er
að vænta, að „febrúar-yfirlýsing“
ríkisstjórnarinnar 1974 verði ásamt
öðru til þess að tryggja fram-
hald og eflingu þessarar jákvæðu þró-
unaT, svo að aJmenningur í landinu
fái notið hennar í mun ríkari mæli en
til þessa. Er enginn vafi á, að með
þeim hætti væri hag hans bezt borgið.
Sigurður E. Guðmundsson.
VINNAN 31