Vinnan - 01.12.1976, Síða 38
•
w
r
Hgp >;* ..
..awI
ríkisins vegna heilbrigðismála færist
yfir á tryggingarnar og einnig kostn-
aður þeirra þátta framfærslu sveitar-
félaga sem skyldastir eru tryggingum.
Meginskipulagsbreytingin er sú að
steypa öllum tryggingum í eitt kerfi og
sameina iðgjöldin. Nú eru í fyrsta sinn
almenn ákvæði í lögunum um fram-
kvæmd, sem geri bótaþeganum auð-
velt að fá þá fyrirgreiðslu, sem hann
á rétt á, og með þeim hverfur að veru-
legu leyti ölmusubragurinn sem á fé-
lagslegri aðstoð var.
Atvinnuleysistryggingasjóður var
lögfestur 1. október 1956 eftir lang-
vinnt verkfall. Leystist verkfallið bein-
línis með lagasetningu þessari.
SAMBAND MILLI BREYTINGAR
Á DAGVINNIJLAUNUM OG
BÓTAGREIÐSLNA
Lög nr. 13 frá 1960:
Með þeim kemur fyrst samband
milli breytinga á dagvinnulaunum í
almennri verkamannavinnu og bóta
almannatrygginga. Að þessu sinni
varðaði launabreyting þó aðeins bæt-
ur slysatrygginga.
Lög frá 1965:
Með þeim er ráðherra gert heimilt
að hækka allar bætur almannatrygg-
inga verði breyting á almennum dag-
vinnulaunum.
Lög frá 1971:
Með þeim er ráðherra ekki heimilt,
heldur skylt að hækka bætur almanna-
trygginga verði breytingar á launum
verkamanna. Skal það gert innan 6
mánaða frá kjarasamningum.
Árið 1971 var gerð umfangsmikil
breyting á greiðslum almannatrygg-
inga. Ákvæði um tekjutryggingu kem-
ur inn í þau lög. Er þá í fyrsta sinn
gert ráð fyrir að lífeyrisþegi geti lifað
af lífeyri sínum.
Með þessum lögum verður sú meg-
inbreyting, að íslenskan ríkisborgara-
rétt þarf ekki til að öðlast réttindi,
heldur nægir að eiga lögheimili á Is-
Iandi.
Réttur til flestra bótaflokka var
rýmkaður.
Árið 1972, en þá er Magnús Kjart-
ansson tryggingaráðherra var iðgjald
einstaklinga til almannatrygginga af-
numið. Almannatryggingar eru nú
fjármagnaðar með iðgjöldum atvinnu-
rekenda, framlagi rikisins og sveit-
arfélaga.
Jafnrétti karla og kvenna
Með lagabreytingu frá 1972 var rétt-
ur til bótagreiðslna færður jafnt kon-
um sem körlum. Börn fá nú barnalíf-
eyri vegna látinnar móður, vegna ör-
orku móður eins og var um föður,
feður geta fengið greitt meðlag frá
móður hjá Tryggingastofnun ríkisins.
38 VINNAN