Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Síða 44

Vinnan - 01.12.1976, Síða 44
- Nú hefur heyrst að þú munir láta af formannsstarfi Sjóinannasambands- ins á þessu þingi. Er það rétt? Já, ég ætlaði reyndar að hætta á þinginu 1974 en vegna áskorana gaf ég kost á því að vera eitt kjörtímabil enn. Ég verð 75 ára á næsta ári og því mál að ég láti af störfum. Heilsan er heldur ekki of góð. Menn eiga ekki að lifa sjálfa sig í forustustörfum sam- takanna. Maður tapar að sjálfsögðu einhverju með ellinni og það er tími til kominn að yngri menn taki við Sjó- mannasambandinu. Því hef ég ákveð- ið að taka ekki endurkjöri á kom- andi þingi. Ég er búinn að vera í sjómannasam- tökunum síðan 1924 og lengst af þeim tíma framarlega í baráttunni. Ég var fyrst kjörinn ritari Sjómannafélags 44 VINNAN Reykjavíkur 1927. Ég var á sjó til árs- ins 1930 en fór þá að vinna að fisk- sölu. 1 byrjun árs 1934 var ég ráðinn erindreki Alþýðusambandsins. Helstu verkefni mín þá voru að stofna félög þar sem þau voru ekki til staðar og aðstoða þau í kaupdeilum. Ég var farinn að þekkja vel til þeirra mála sem ritari Sjómannafélagsins. Ég ferð- aðist um landið þvert og endilangt í þessum erindum og vann að því um leið að félögin gengju í Alþýðusam- bandið. Meðal þeirra félaga sem ég vann að að stofna má nefna: Vlf. Hólmavíkur 1934 Þrótt, Siglufirði 1934 Frama, áður Hreyfil 1934 Iðju, Reykjavík 1934 Jötun, Vestmannaeyjum 1934 Vfl. Fáskrúðsfjarðar 1935 Vlf. Grindavíkur 1937 Vlf. Jökul, Ólafsvík 1937 Vlf. Arnameshrepps 1937 Vlf. Vestmannaeyja 1939 Ég varð síðan framkvæmdastjóri Al- þýðusambandsins 1941—1944 og aft- ur 1949 — 1954. Auk þess hef ég átt oft og lengi sæti í miðstjórn Alþýðu- sambandsins. Það má því segja að saga mín sé samofin sögu verkalýðs- samtakanna. Nú hafa bæði verið mun harðari stéttaátök og meiri barátta um yfir- ráð félaganna á fyrstu árum þínum í ASl en nú er? Já, ég er nú hræddur um það. Það var gífurleg barátta bæði um yfirráð félaganna og Alþýðusambandsins áður

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.