Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Side 45

Vinnan - 01.12.1976, Side 45
fyrr. Á þessu hefur orðið alger breyt- ing. En ég harma hana ekki, síður en svo. Þegar hin pólitísku átök í ASÍ minnkuðu og meira samstarf var tekið upp varð um raunhæfari kjarabaráttu að ræða. Bræðravígunum linnti og fé- lögin gátu einbeitt sér að kjara- og réttindabaráttunni. Hitt er svo annað mál, að verkalýðs- samtökin verða að berjast á stjórn- málasviðinu einnig og styðjast þar við flokka, sem byggja á hugsjónum verka- lýðshreyfingarinnar. Hið pólitíska afl verkalýðshreyfingarinnar verður að styrkja til þess að ná meiri umbót- um til handa alþýðu manna. Svo ég taki dæmi af þessum nýju bráðabirgðalögum, þá hefðu þau aldrei orðið til ef ekki væri við lýði ríkisstjórn fjandsamleg verkalýðnum. Þess vegna verðum við að koma á ríkisvaldi vinnustéttanna. Hvað viltu segja um framtíð sjó- mannasamtakanna? Það má með rétti segja að sam- staða og starf sjómannafélaganna hef- ur ekki verið nægilega gott. En það er líka miklu erfiðara að haida uppi öflugu fólagsstarfi í sjómannasamtök- unum en öðrum verkalýðsfélögum. Oft er því erfitt að heyja baráttuna. Sjó- menn verða að þjappa sér betur um félög sín. Þátttaka í síðustu atkvæða- greiðslum um samningana var t.d. allt of lítil. Hjá okkur vantar aukið fræðslustarf og hugsanlega þyrftum við sérstakt baráttublað samtakanna, sem færi í öll skip. Ég held líka að það þurfi að vinna að betri samstöðu við Farmanna- og fiskimannasambandið. Ég tel að öl'l sjómannafélögin ættu að ganga í Sjó- mannasamband íslands. Það yrði okk- ur til styrktar. I dag eru félögin innan S.I. um 32 talsins, ýmist sjómannafé- lög eða deildir í verkalýðsfélögunum. Sjómeim verða að gera sér ljóst að framtíð þeirra er best tryggð með virku starfi í félögum sínum og sterkum heildarsamtökum, sem megna að knýja fram bætt kjör og aukin réttindi. Áhætta og erfiði sjómanna réttlætir að mun betur sé að þeim bú- ið en nú er gert. Annað er ekki sæm- andi í þjóðfélagi sem kennir sig við framfarir og menningu. VINNAN 45

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.